| 01.01.2009 |
Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum sæmdi forseti Íslands ellefu
Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Fréttatilkynning. Mynd
|
| 01.01.2009 |
Forseti
flytur nýársávarp frá Bessastöðum. Ávarpinu er
útvarpað og sjónvarpað. Flutningur
|
| 02.01.2009 |
Forseti er viðstaddur útnefningu íþróttamanns ársins fyrir árið 2008 og
flytur ávarp í sjónvarpsútsendingu frá atburðinum.
|
| 04.01.2009 |
Jólatrésfagnaður
er haldinn fyrir börn starfsmanna erlendra sendiráða á Íslandi, starfsmanna
utanríkisþjónustunnar, starfsfólk og samstarfsaðila forsetaembættisins og
fjölskylduvini.
|
| 05.01.2009 |
Forseti á
fund með fulltrúum verkfræðifyrirtækisins EFLA sem sinnir verkefnum víða um
heim og byggir á framlagi íslenskra verkfræðinga, vísindamanna og tæknimanna.
|
| 05.01.2009 |
Forseti á
fund með Helen Clark fyrrum forsætisráðherra Nýja Sjálands og fylgdarliði
hennar sem dvalið hefur á Íslandi undanfarna daga.
|
| 07.01.2009 |
Forseti á
fund með Nirði P. Njarðvík ræðismanni Tógó á Íslandi um uppbyggingu skóla- og
fræðslustarfs á vegum Spes hjálparsamtakanna.
|
| 07.01.2009 |
Forseti
afhendir Íslensku bjartsýnisverðlaunin en þau hlaut að þessu sinni Brynhildur
Guðjónsdóttir.
|
| 08.01.2009 |
Forseti á fund með Soma Mukhopadhyay sérfræðingi í meðferð einhverfu og forráðamönnum
kvikmyndarinnar Sólskinsdrengurinn sem frumsýnd verður á morgun. Rætt var um
fjölgun einhverfra á undanförnum árum, ýmsar aðferðir varðandi meðferð og
hvernig hægt væri að nýta kvikmyndina til að auka skilning á einhverfu víða
um veröld.
|
| 09.01.2009 |
Forseti er
viðstaddur frumsýningu á kvikmyndinni Sólskinsdrengurinn sem fjallar um
einhverfu en stjórnandi hennar er Friðrik Þór Friðriksson.
|
| 09.01.2009 |
Forseti
afhendir rannsóknarstyrk Fræðslunets Suðurlands en ýmis sveitarfélög og
samtök í landshlutanum standa að rannsóknarsjóðnum. Athöfnin fór fram í
Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi.
|
| 10.01.2009 |
Forseti er
viðstaddur hátíðarkvöldverð Klúbbs matreiðslumanna sem haldinn er í
samkomusal Bláa lónsins. Forseti flutti ávarp í lok kvöldverðarins og
fjallaði einkum um árangur íslenskra matreiðslumanna á liðnu ári, bæði
landsliðsins og kjör Íslendings sem forseta Alheimssamtaka matreiðslumanna.
|
| 11.01.2009 |
Forseti sækir
hátíðarsamkomu til heiðurs Böðvari Guðmundssyni skáldi og rithöfundi
sjötugum.
|
| 11.01.2009 |
Forseti á
fund með hópi íslenskra jöklafræðinga og indverska jöklafræðingnum dr. Syed
Iqbal Hasnain um alþjóðarlegar rannsóknir á jöklum í Himalajafjöllum.
Loftslagsbreytingar hafa haft mikil áhrif á þá jökla og ógnar sú þróun
lífsskilyrðum hundruða milljóna manna í Indlandi, Kína og öðrum löndum.
|
| 12.01.2009 |
Forseti ræðir
við fréttamann BBC um fjármálakreppuna á Íslandi og í veröldinni, uppbyggingu
íslensks efnahagslífs, umræður og kröfur um endurbætur og aðgerðir,
mótmælafundi sem og samskipti Íslands og breskra stjórnvalda. Viðtalið
|
| 23.01.2009 |
Forseti ræðir
við blaðamanninn Do Woon Lee frá Suður-Kóreu um ný tækifæri í samstarfi
landanna, reynslu Íslendinga í orkumálum og ýmis verkefni á alþjóðavettvangi.
|
| 23.01.2009 |
Forseti á
fund með Steve Cowper fyrrum ríkisstjóra Alaska, Greg Varisco, Sighvati
Péturssyni og Jóni Birni Jónssyni um byggingu gagnavera á Íslandi, samstarf
Íslands og Bandaríkjanna um nýtingu hreinnar orku og önnur verkefni á
vettvangi grænnar tækni.
|
| 26.01.2009 |
Forseti á
fund með formanni Frjálslynda flokksins Guðjóni Arnari Kristjánssyni um
stöðuna í kjölfar afsagnar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.
|
| 26.01.2009 |
Forseti á
fund með formanni Framsóknarflokksins Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni um stöðuna
í kjölfar afsagnar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.
|
| 26.01.2009 |
Forseti á
fund með formanni Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs Steingrími J.
Sigfússyni um stöðuna í kjölfar afsagnar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar.
|
| 26.01.2009 |
Forseti á
fund með formanni Samfylkingarinnar Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur um stöðuna
í kjölfar afsagnar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.
|
| 26.01.2009 |
Forseti ræðir
við forsætisráðherra Geir H. Haarde. Að loknum fundi þeirra ræðir forseti við
fréttamenn.
|
| 27.01.2009 |
Forseti
afhendir Íslensku
bókmenntaverðlaunin 2008 á Bessastöðum. Verðlaunahafar
og tilnefningar.
|
| 27.01.2009 |
Forseti á
fund með sendiherra Frakklands Olivier Mauvisseau sem senn lætur af störfum.
Rætt var um samskipti landanna á sviði menningar og vísinda, þróun mála á
Norðurslóðum og áhuga í íslensku háskólasamfélagi á franskri menningu og
tungu.
|
| 27.01.2009 |
Forseti felur
Samfylkingunni og Vinstri hreyfingunni - grænu framboði að ræða saman um
myndun ríkisstjórnar sem nyti stuðnings Framsóknarflokksins og með könnun á
afstöðu Frjálslynda flokksins. Þessi ákvörðun kom fram á fundi forseta með
formönnum Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, og
var formanni Samfylkingarinnar falið að leiða þær viðræður.
|
| 28.01.2009 |
Forseti ræðir
við blaðamann norska vikublaðsins Morgenbladet um atburðina á Íslandi síðustu
daga, glímuna við efnahagslega erfiðleika, samskiptin við Bretland, myndun
nýrrar ríkisstjórnar og horfurnar á næstu árum. Viðtalið mun birtast í
blaðinu um helgina.
|
| 29.01.2009 |
Forseti á
fund með Viðari Hreinssyni bókmenntafræðingi og Þór Saari hagfræðingi sem
kynntu forseta umræður í ýmsum hópum og grasrótarhreyfingu sem varða nýja
skipan lýðræðis á Íslandi, lýðveldi og stjórnskipun.
|
| 29.01.2009 |
Forseti ræðir
við blaðamann norska blaðsins Dagens næringsliv um myndun nýrrar
ríkisstjórnar, efnahagsleg áföll þjóðarinnar og viðbrögð við þeim.
|
| 30.01.2009 |
Forseti á
fund með fulltrúum hreyfingarinnar Raddir fólksins, Herði Torfasyni og
Hilmari Hafsteinssyni, sem kynntu forseta hugmyndir hreyfingarinnar um nýja
stjórnskipan og utanþingsstjórn, nauðsyn á þátttöku almennings í umræðum um
nýtt lýðveldi sem og árangurinn af fundum hreyfingarinnar undanfarnar vikur.
|
| 31.01.2009 |
Forseti er
heiðursgestur í kvöldverði Melvin Jones félaga Lionshreyfingarinnar og tekur
við sérstakri viðurkenningu fyrir stuðning sinn við starf
Lionshreyfingarinnar á Íslandi og á heimsvísu, einkum verkefnið í þágu
blindra.
|
Febrúar
|
| 01.02.2009 |
Forseti
skipar á fundi í ríkisráði nýtt ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra. Ráðuneytið skipa ráðherrar Samfylkingar og Vinstri
hreyfingarinnar - græns framboðs og tveir ráðherrar sem ekki eiga sæti á
Alþingi. Þingflokkur Framsóknarflokksins hefur samþykt að verja hið nýja
ráðuneyti vantrausti á Alþingi. Mynd
|
| 01.02.2009 |
Forseti
veitir ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar lausn frá störfum á
fundi í ríkisráði.
|
| 01.02.2009 |
Forseti á
fundi með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur formanni Samfylkingarinnar og
Jóhönnu Sigurðardóttur um myndun nýrrar ríkisstjórnar.
|
| 03.02.2009 |
Forseti á
fund með Ólafi Gunnarssyni rithöfundi um verðlaun og viðurkenningar á
vettvangi bókmennta og stöðu Íslendingasagna í heimsbókmenntunum.
|
| 05.02.2009 |
Forseti ræðir
við ritstjórn Skólablaðs MR um dvöl sína í skólanum, nám og félagslíf, sem og
framtíðartækifæri Íslendinga og viðbrögðin við efnahagslegum áföllum. Viðtalið við forseta.
|
| 05.02.2009 |
Forseti ræðir
við blaðamann frá Financial Times Þýskalandi um lærdómana sem draga má af
bankahruninu á Íslandi, hinni alþjóðlegu fjármagnskreppu, viðbrögðum einstakra
landa í Evrópu og tækifæri Íslendinga til uppbyggingar.
|
| 05.02.2009 |
Forseti
skrifar í minningabók í Indverska sendiráðið vegna andláts Ramaswamy
Venkataraman fyrrum forsætisráðherra Indlands. Einnig á forseti fund með
sendiherranum varðandi sameiginleg verkefni Indverja og Íslendinga, aukinn
áhuga á samvinnu landanna og tímasetningu á ferð forseta til Indlands.
|
| 06.02.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi menntaskólakennara frá Færeyjum og ræðir við þá um samskipti
þjóðanna að fornu og nýju, sameiginlega sögu og hagsmuni á Norðurslóðum.
|
| 06.02.2009 |
Forseti á
fund með Björgvin Filipussyni stjórnanda fyrirtækisins Kompás sem unnið hefur
að nýju upplýsingakerfi til að styrkja mannauðsstjórnun stofnana og
fyrirtækja.
|
| 06.02.2009 |
Forseti tekur
á móti minningarbók Rósu Benediktsson, dóttur Stephans G. Stephanssonar
skálds, sem Viðar Hreinsson afhenti forseta á Bessastöðum fyrir hönd Stephans
Benediktsson, sonar Rósu.
|
| 07.02.2009 |
Forseti sækir verðlaunahátíð iðnsveina sem Iðnaðarmannafélag Reykjavíkur
efnir til í samvinnu við iðnaðarmannafélög og menntastofnanir. Þar eru
heiðraðir nemendur í ýmsum iðngreinum sem skarað hafa fram úr og tilnefndur
iðnaðarmaður ársins. Mynd
|
| 08.02.2009 |
Forseti tekur
á móti fulltrúum William Morris fyrirtækisins í Bandaríkjunum sem einbeitir
sér að því að koma listamönnum á framfæri og uppgötva ungt hæfileikafólk á
ýmsum sviðum menningar. Heimsókn þeirra til Íslands beinist að því að kanna
möguleika á þessu sviði.
|
| 10.02.2009 |
Forseti á
fund með sendiherra Króatíu á Íslandi hr. Aleksandar Heina sem senn lætur af
störfum. Rætt var um stöðu smærri ríkja í Evrópu og viðbrögð þeirra við
efnahagskreppunni svo og umsókn Króatíu um aðild að Atlantshafsbandalaginu.
|
| 10.02.2009 |
Forseti
sendir frá sér yfirlýsingu á ensku til þýskra fjölmiðla. Fréttatilkynning.
|
| 10.02.2009 |
Eyrarrósin afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Eyrarrósin er
sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni
sem Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands hafa sett á
stofn. Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff forsetafrú og mun hún
afhenda viðurkenninguna og verðlaunagripinn.
|
| 11.02.2009 |
Forseti
sendir ríkisstjóra Ástralíu og stjórnvöldum landsins samúðarkveðjur vegna
skógareldanna sem geisað hafa þar. Fréttatilkynning.
|
| 11.02.2009 |
Forseti
heimsækir Þingborg í Árnessýslu þar sem unnið er úr íslenskri ull og
framleiðsla kvenna í héraðinu er til sýnis og sölu.
|
| 11.02.2009 |
Forseti
heimsækir Hvolsskóla á Hvolsvelli sem hlaut Íslensku
menntaverðlaunin 2008 og kynnir sér nýjungar í kennsluaðferðum og
skólastarfi, flytur ávarp á samkomu nemenda og kennara og svarar
fyrirspurnum. Auk stjórnenda og nemenda skólans voru fulltrúar
sveitarfélagsins og sparisjóðanna með í för en sparisjóðirnir eru
styrktaraðilar Íslensku menntaverðlaunanna. Myndir
|
| 12.02.2009 |
Forseti tekur
á móti fyrsta eintaki Flora Islandica sem Eggert Pétursson og Kristján B.
Jónasson afhentu forseta á Bessastöðum. Flora Islandica geymir myndir af
íslenskum jurtum sem Eggert Pétursson hefur teiknað og voru upphaflega
tengdar Íslenskri flóru eftir Ágúst H. Bjarnason. Bókin er með veglegri ritum
sem gefin hafa verið út á Íslandi á síðari árum.
|
| 12.02.2009 |
Forseti á fund með fulltrúum Stykkishólmsbæjar um eldfjallasafn og
fræðamiðstöð sem komið yrði upp í Stykkishólmi meðal annars í tengslum við
fyrirhugaða gjöf Haraldar Sigurðssonar jarðfræðings. Einnig var rætt um
sérstaka kynningarsýningu.
|
| 13.02.2009 |
Forseti tekur á móti forystumönnum Orators og norrænum laganemum sem
funda á Íslandi. Rætt var um verkefni lögfræðinnar í kjölfar hinna
efnahagslegu hamfara í heiminum, samspil markaðar, réttarríkis og lýðræðis
sem og ýmsa þætti í íslenskri stjórnskipan.
|
| 13.02.2009 |
Forseti sækir
ráðstefnu Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga "Nýsköpun - tækifæri á
nýjum tímum" og afhendir Íslensku þekkingarverðlaunin og sérstök
verðlaun viðskiptafræðingi-hagfræðingi ársins 2008.
|
| 16.02.2009 |
Forsetaskrifstofa
sendir utanríkismálanefnd Alþingis greinargerð að boði nefndarinnar
vegna fréttar í Financial Times Deutschland. Greinargerð.
|
| 17.02.2009 |
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru
afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Markmið þeirra er að verðlauna
námsmenn sem unnið hafa framúrskarandi starf við úrlausn verkefna. Verðlaunin
hlaut verkefnið Gönguhermir sem unnið er af Andra Yngvasyni, Bjarka
Má Elíassyni og Jónu Guðnýju Arthúrsdóttur. Fréttatilkynning.
Myndir
|
| 18.02.2009 |
Forseti
afhendir sérstök heiðursverðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum í
sjónvarpssal Ríkissjónvarpsins.
|
| 18.02.2009 |
Forseti
heimsækir Gallerí Brák í Brákarey í Borgarnesi en þar rekur Ólöf Sig.
Davíðsdóttir fjölþætta listastarfsemi.
|
| 18.02.2009 |
Forseti
heimsækir Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi og tekur þátt í samverustund og
ræðir við vistmenn.
|
| 18.02.2009 |
Forseti á
fund meðsveitarstjórnarmönnum og stjórnendum Borgarbyggðar um atvinnumál
byggðarlagsins, áhrif efnahags- og fjármálakreppunnar, og tækifærin sem þróun
skólastarfs og menningarstofnana felur í sér.
|
| 18.02.2009 |
Forseti
heimsækir Landnámssetur sem nýlega hlaut Eyrarrósina, menningarverðlaun
landsbyggðarinnar, en forsetafrú er verndari verðlaunanna. Kynnt var
starfsemi Landnámsseturs og áform um frekari þróun.
|
| 18.02.2009 |
Forseti
heimsækir Menntaskóla Borgarfjarðar, flytur ávarp og svarar fyrirspurnum á
fundi með nemendum og kennurum, kynnir sér starfsemi þessa nýja skóla og þá
stefnu í mennta- og upplýsingamálum sem þar er lögð til grundvallar.
|
| 20.02.2009 |
Forseti tekur
á móti forystumönnum Félags vélstjóra og málmtæknimanna en formaður VM
Guðmundur Ragnarsson afhenti forseta nýtt rit, Sögu Vélstjórafélags Íslands,
sem gefið hefur verið út í tilefni af 100 ára afmæli vélstjórafélaga. Fyrsta
stéttarfélag vélstjóra var stofnað 20. febrúar 1909. Jón Þ. Þór er höfundur
sögunnar og í ritinu er ítarlega greint frá þróun vélsmíða, menntunar og
framkvæmda á síðustu öld.
|
| 20.02.2009 |
Forseti setur
Framadaga í Háskólabíói en þeir eru samstarfsverkefni háskólanemenda og
atvinnulífs, skipulagðir af AIESEC, alþjóðlegum stúdentasamtökum. Í ávarpi
sínu lagði forseti áherslu á mikilvægi sprotafyrirtækja og tækifærin sem
opnast hefðu á mörgum sviðum þrátt fyrir hina efnahagslegu erfiðleika. Einnig
kynnti hann boð Masdar stofnunarinnar um styrki til íslenskra námsmanna.
Slíkt boð væri vitnisburður um að víða um veröldina væri sóst eftir þátttöku
og þekkingu Íslendinga. Í kynningarriti Framadaga var einnig birt ávarp forseta.
|
| 20.02.2009 |
Forseti opnar
Framadaga 2009 í Háskólabíói. Tilkynnt um að
Masdar stofnunin í Abu Dhabi hafi boðið forseta að tilnefna sex til tíu
íslenska stúdenta í alþjóðlega sveit námsmanna sem úr verða valdir styrkþegar
til meistaranáms í verkfræði, umhverfisfræðum, upplýsingatækni og stjórnun.
|
| 22.02.2009 |
Forseti á
fund með Cristovam Buarque þingmann í Brasilíu og fyrrverandi
menntamálaráðherra og Candido Mendes de Almeida háskólarektor sem heimsækja
Ísland til að skapa samvinnu við íslenska háskóla og rannsóknarstofnanir,
einkum varðandi þróun mannréttinda og norrænt samfélag. Meðal hugmynda þeirra
er að stofna deild sem helguð yrði umfjöllun um þróun Norðurlanda.
|
| 22.02.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi eldri iðnaðarmanna sem heimsækja Bessastaði.
|
| 23.02.2009 |
Forseti
heimsækir garðyrkjustöðina Kvista í Reykholti í Biskupstungum sem sinnir
sérstaklega skógarplönturæktun fyrir nytjaskóga, einkum á Suðurlandi.
Undanfarin ár hefur ársframleiðsla í stöðinni verið um ein milljón
trjáplantna.
|
| 23.02.2009 |
Forseti
heimsækir garðyrkjustöðina Espiflöt í Reykholti í Biskupstungum þar sem
stunduð er ein umfangsmesta skrautblómarækt landsins en á garðyrkjustöðinni
hafa verið farnar nýjar leiðir í ræktun og markaðssetningu og nýlega var þar
reist stórt gróðurshús til viðbótar þeim sem fyrir voru.
|
| 23.02.2009 |
Forseti
heimsækir garðyrkjubændurna að Melum í Hrunamannahreppi og kynnir sér ræktun
á tómötum en Melabændur voru frumkvöðlar í lýsingarræktun og heilsársræktun á
tómötum. Þeir hafa að undanförnu sett á markað sérstaka heilsutómata sem
taldir eru veita viðnám gegn hjartasjúkdómum.
|
| 23.02.2009 |
Forseti
heimsækir Flúðasveppi og kynnir sér ræktun sveppa og íslensks grænmetis.
Markaðshlutdeild þeirra hefur vaxið á undanförnum árum.
|
| 24.02.2009 |
Forseti
heimsækir Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og ræðir við rektor skólans Ágúst
Sigurðsson og forystumenn einstakra náms- og rannsóknasviða og á fund með
stjórnendum nemendafélagsins þar sem þeir kynntu forseta sýn sína á fjölmörg
tækifæri sem nám og rannsóknir við skólann í búfræði, náttúrufræðum,
búvísindum og skipulags- og umhverfisfræðum fela í sér.
|
| 24.02.2009 |
Forseti
kynnir sér starfsemi frumkvöðla- og tækniþróunarsetursins Sprota sem nýlega
var stofnað á Hvanneyri af Landbúnaðarháskólanum í samvinnu við Samtök
sveitarfélaga á Vesturlandi, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Vaxtarsamning
Vesturlands. Ætlunin er að bjóða frumkvöðlum rannsókna- og þróunaraðstöðu við
háskólann sem og leiðbeiningar og ráðgjöf kennara við skólann.
|
| 24.02.2009 |
Forseti
heimsækir leikskólann Andabæ á Hvanneyri í nýju húsnæði sem tekið var í
notkun fyrr um daginn. Börn og starfsmenn sýndu forseta þessa glæsilegu
aðstöðu sem styrkir mjög búsetu í hinu vaxandi byggðarlagi á Hvanneyri.
|
| 24.02.2009 |
Forseti
heimsækir Háskólann í Bifröst, kynnir sér starfsemi skólans, ræðir við
stjórnendur hans, flytur ávarp og svarar fyrirspurnum á fjölmennum fundi
nemenda og kennara. Rætt var um þróun háskólans, alþjóðavæðingu menntunar,
lærdóma sem draga má af efnahagskreppunni á Íslandi og í veröldinni og
mikilvægi þess að háskólafólk taki virkan þátt í umræðunni um nýjar leiðir.
Einnig lagði forseti áherslu á ríkan mannauð Íslendinga og þær auðlindir sem
þjóðin býr yfir.
|
| 25.02.2009 |
Forseti
heimsækir Fjölbrautaskólann í Garðabæ þar sem Imbrudagar skólans eru helgaðir
Indlandi. Forseti flutti erindi um Indland og svaraði fyrirspurnum á
fjölmennum fundi nemenda.
|
| 27.02.2009 |
Forseti
heimsækir verkfræðifyrirtækið Mannvit,
ræðir við stjórnendur fyrirtækisins, ávarpar starfsfólk og svarar
fyrirspurnum. Forseti kynnti sér starfsemi fyrirtækisins á Íslandi og víða um
heim en Mannvit varð til á síðasta ári þegar þrjú gamalgróin verkfræði- og
tæknifyrirtæki sameinuðust. Á vegum Mannvits starfa um 400 manns og ríkur
áhugi er á að auka verkefni fyrirtækisins víða um heim.
|
| 28.02.2009 |
Forseti er viðstaddur brautskráningu stúdenta frá Háskóla Íslands. Hún er
hin fyrsta samkvæmt nýju skipulagi sem tekið var upp þegar Kennaraháskóli
Íslands var sameinaður Háskóla Íslands sem þá var skipt í nokkur fræðasvið.
|
Mars
|
| 01.03.2009 |
Forseti sækir
setningu Búnaðarþings þar sem formaður Bændasamtaka
Íslands Haraldur Benediktsson og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Steingrímur J. Sigfússon flytja ræðu. Einnig flutti háttíðarræðu Emma
Eyþórsdóttir, dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands og Landbúnaðarverðlaun
voru afhent. Kjörorð setningar Búnaðarþings voru "Treystum á
landbúnaðinn".
|
| 01.03.2009 |
Forseti tekur
á móti forystumönnum Hjartaheilla
sem afhenda forseta fyrsta merki söfnunar samtakanna "Hjartans mál"
en tilgangur hennar er að safna fyrir nýju og fullkomnu hjartagreiningartæki
á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi. Söfnunin er í tilefni af 25 ára afmæli
Hjartaheilla og er forseti verndari söfnunarinnar.
|
| 02.03.2009 |
Forseti á
fund með Halldóri Gíslasyni sem veitt hefur forstöðu hönnunardeildum við
íslenska og erlenda háskóla. Fjallað var um mikilvægi hönnunar í víðtækum
skilningi, hlutdeild hennar í nýrri sýn á samfélag og efnahagsstarfsemi og
nauðsyn þess að ólíkar menntastofnanir, atvinnulíf og fyrirtæki skapi nýjan
vettvang, þar sem ungt fólk getur tekið þátt í frjórri og margþættri hönnun.
|
| 02.03.2009 |
Forseti á
fund með skipuleggjendum alþjóðaþings um vatnsorku sem haldið verður á
Íslandi 23.-26. júní. The International Hydropower Association skipuleggur
þingið í samvinnu við fjölmarga íslenska aðila, stofnanir og fyrirtæki. Á
þinginu verður fjallað um hlut vatnsorku í orkubúskap veraldar á komandi
áratugum, mikilvægi hennar í baráttunni við loftslagsbreytingar sem og
grundvallarreglur varðandi sjálfbærni.
|
| 03.03.2009 |
Forsetaembættinu
barst fyrirspurn frá Fréttablaðinu um ferðir forseta og starfsmanna
forsetaembættisins með flugvélum utan áætlunarflugs á árunum 2005-2008.
Forsetaskrifstofan sendi Fréttablaðinu ítarlega greinargerð. Greinargerð
embættisins.
|
| 03.03.2009 |
Forseti á fund með nýjum sendiherra Slóveníu á Íslandi hr. Bogdan Benko
sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um samvinnu
landanna á undanförnum árum og þróun Evrópusamstarfsins og hvernig einstök
lönd bregðast við hinni alþjóðlegu efnahagskreppu. Mynd
|
| 03.03.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra San Marino Antonella Benedettini sem afhenti trúnaðarbréf
sitt á Bessastöðum. Rætt var um stöðu smárra ríkja í Evrópu, samstarf þeirra,
rannsóknir við Háskóla Íslands og smáþjóðaleikana þar sem íþróttamenn frá
smærri löndum Evrópu taka þátt. Mynd
|
| 03.03.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Suður-Afríku á Íslandi Beryl Rose Sisulu sem
afhendir trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um þær breytingar sem orðið
hafa á íslenskri utanríkisþjónustu, m.a. í Suður-Afríku, í kjölfar
efnahagserfiðleikanna, hvernig hægt er að halda áfram í ljósi nýrra aðstæðna
og hvernig efla megi samvinnu Íslands við Suður-Afríku og önnur lönd
álfunnar. Mynd
|
| 03.03.2009 |
Forseti ræðir
við fulltrúa íslenskra aðila sem beita sér fyrir nýtingu íslenskra
byggingaraðferða í Bandaríkjunum í því skyni að reisa hús sem sparar orku mun
meira en tíðkast hefur í byggingum þar í landi.
|
| 04.03.2009 |
Forseti
heimsækir Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna og ræðir við hóp nemenda frá
Afríku, Asíu og Mið-Ameríku sem sögðu frá rannsóknum sínum og verkefnum og
lýstu tækifærum í jarðhitavinnslu í heimalöndum sínum. Myndir
|
| 04.03.2009 |
Forseti á
fund með starfsmönnum í Orkugarði við Grensásveg þar sem rætt var um
framtíðarhorfur í orkumálum, baráttuna gegn loftslagsbreytingum, nýjar
áherslur ýmissa ríkja sem og verkefni í þróunarlöndum, Evrópu og Vesturheimi.
Forseti flutti ávarp og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.
|
| 04.03.2009 |
Forseti á
fund með stjórnendum Orkustofnunar og ÍSOR þar sem rætt var um verkefni
Íslendinga víða um heim. Einnig var rætt um horfur á olíuvinnslu á
Drekasvæðinu.
|
| 05.03.2009 |
Forseti sækir
tónleika Sinfóníuhljómsveitar tónlistarskólanna en Tónlistarskóli FÍH,
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar, Tónlistarskóli Kópavogs og Tónskóli Sigursveins
D. Kristinssonar skipulögðu tónleikana. Hljómsveitin var skipuð nemendum
tónlistarskólanna og lék hún verk eftir innlend og erlend tónskáld.
|
| 05.03.2009 |
Forseti
afhendir Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins við hátíðlega athöfn í
Þjóðmenningarhúsinu. Verðlaunin hlaut Ásgarður handverkstæði.
|
| 05.03.2009 |
Forseti
heimsækir nýja byggingu í Reykjanesbæ sem reist hefur verið yfir víkingaskipið
Íslending og ræðir við Gunnar Marelsson og Árna Sigfússon bæjarstjóra um
hvernig skipið og sú víkingasýning frá Smithsonian safninu í Washington sem
komið verður upp í byggingunni mun nýtast við eflingu ferðaþjónustu á
svæðinu. Ráðgert er að byggingin verði vígð í maí.
|
| 05.03.2009 |
Forseti
heimsækir starfsstöð menntasetursins Keilis
á Vallarsvæðinu í Reykjanesbæ og ræðir við kennara, starfsmenn og nemendur.
Einnig kynnti forseti sér frumkvöðlasetrið Eldey sem sett hefur verið á stofn
á Vallarsvæðinu og ræddi við forsvarsmenn ýmissa sprotafyrirtækja sem þar
starfa. Mynd
|
| 05.03.2009 |
Forseti
heimsækir stjórnendur og starfsmenn fyrirtækisins HBT sem starfar á Vallarsvæðinu í
Reykjanesbæ og kynnir sér starfsemi þess en fyrirtækið markaðssetur búnað sem
lækkar eldsneytiskostnað með íblöndun vetnis.
|
| 05.03.2009 |
Forseti
heimsækir Gagnavörsluna í Reykjanesbæ og ræðir við stjórnendur og starfsmenn
en fyrirtækið sem nýlega var stofnað annast vörslu og afhendingu margvíslegra
gagna í húsnæði sem áður var nýtt af varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli.
Fjölmörg tækifæri eru í slíkri gagnavörslu, bæði fyrir innlenda og erlenda
aðila og getur húsnæði víða um land nýst í því skyni auk þeirra bygginga sem
varnarliðið skildi eftir á Keflavíkurflugvelli.
|
| 05.03.2009 |
Forseti
heimsækir nýjan vettvang, Virkjun, sem
komið hefur verið upp á Vallarsvæðinu í Reykjanesbæ þar sem leitast er við að
nýta mannauð og efla samstöðu fókls sem glímir við atvinnuleysi sem og
þjónusta aðra áhugamenn. Forseti ræddi við þátttakendur í starfseminni og
kynnti sér hugmyndir um þróun hennar en Virkjun er nýjung í viðbrögðum
sveitarfélaga við þeim efnahagsvanda sem þjóðin glímir við.
|
| 05.03.2009 |
Forseti á
fund með Árna Sigfússyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar og starfsmönnum bæjarins
um þjónustu við æskufólk og starf í skólum sveitarfélagsins, sem og aðstoð
við þá sem eru atvinnulausir og glíma við félagsleg vandamál.
|
| 05.03.2009 |
Forseti á
fund með forsvarsmönnum Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi. Rætt var um
samstarf íslenskra aðila sem vinna að jarðhitamálum, bæði innanlands og
erlendis, sem og þau verkefni sem Geysir Green Energy stendur að í Kína,
Þýskalandi og Bandaríkjunum.
|
| 05.03.2009 |
Forseti á
fund með starfsmönnum líftæknifyrirtækisins ORF
Líftækni í gróðurhúsi sem fyrirtækið hefur nýlega reist í Grindavík,
kynnir sér verklag við framleiðslu á sérhönnuðum prótínum og hugmyndir
stjórnenda um framtíð fyrirtækisins. Myndir
|
| 06.03.2009 |
Forseti sækir
frumsýningu á rokkóperunni Hero sem flutt er af ungu fólki sem starfar innan
vébanda kristilegra æskulýðssamtaka KFUM og KFUK. Óperan sviðsetur frásagnir
Biblíunnar af ævi og boðskap Krists í ímynduðu lögregluríki New York borgar.
|
| 06.03.2009 |
Forseti
heimsækir Mentor, sem þróað hefur
hugbúnaðarkerfi fyrir grunnskóla í þeim tilgangi að efla árangur nemenda og
styrkja skólastarf. Kerfið er notað í nokkur hundruð skólum á Íslandi og í
Svíþjóð og verið er að kynna það í fleiri löndum. Það nýtist
skólastjórnendum, kennurum, nemendum og foreldrum og felur í sér fjölþætt
tækifæri til að efla skólastarf.
|
| 06.03.2009 |
Forseti
heimsækir hugbúnaðarfyrirtækið Calidris
og ræðir við stjórnendur þess og starfsmenn. Calidris framleiðir hugbúnað sem
gerir flugfélögum kleift að eyða ógildum bókunum og bæta þannig sætanýtingu.
Kerfið er nú notað af allmörgum stórum flugfélögum víða um heim. Mynd
|
| 08.03.2009 |
Forseti opnar sýninguna Æskan og Jarðarsáttmálinn en hún fjallar um
sjálfbæra þróun á heimsvísu, mátt einstaklingsins til breytinga á umhverfi
sínu og þjóðfélagi. Sýningin er í Ráðhúsi Reykjavíkur og verður sérstök
leiðsögn um hana fyrir skólanemendur. Í ávarpi sínu fjallaði forseti um
hættuna af loftslagsbreytingum, nýja sýn á sjálfbæra þróun og hvernig
breytingar á sérhverju sviði mannlífsins geta skilað árangri, öll bærum við
sameiginlega ábyrgð á framtíð Jarðarinnar.
|
| 09.03.2009 |
Forseti tekur
á móti framkvæmdastjórum Farfuglafélaga í ýmsum löndum, Hosteling
International, sem halda þing sitt á Íslandi. Þingið er skipulagt af Bandalagi íslenskra
farfugla en samtökunum er ætlað að stuðla að ferðalögum sem auka þekkingu
fólks á umhverfinu, umhyggju fyrir náttúrunni og virðingu fyrir
menningarlegum gildum.
|
| 09.03.2009 |
Forseti heimsækir
Fellaskóla í Breiðholti, kynnir sér starfsemi skólans, ræðir við nemendur og
kennara, kemur við í kennslustofum og tekur þátt í samkomu allra nemenda
skólans þar sem flutt voru tónlistaratriði, forseti flutti ávarp og svaraði
fyrirspurnum. Í Fellaskóla eru nemendur af meira en 40 þjóðernum og tala þeir
margvísleg tungumál. Skólinn glímir við það verkefni að fræða og þjálfa
nemendur frá mörgum löndum, kenna þeim íslensku og stuðla að nýsköpun
samfélagsins í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa á uppruna íbúa. Forseti
ávarpaði einnig fund kennara og fræddist um starf skólans og hvernig
erfiðleikar í efnahagsmálum hafa áhrif á hugarfar nemenda og starf skólans.
|
| 10.03.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Víetnams á Íslandi hr. Vu Van Luu sem afhenti
trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Sendiherrann ítrekaði boð til forseta um að
heimsækja Víetnam og lagði áherslu á að aukin samvinna landanna gæti skapað
góð tækifæri, einkum á sviði viðskipta og efnahagslífs. Mynd
|
| 10.03.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Sádi Arabíu á Íslandi dr. Abdulrahman Gdaia sem
afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um heimsókn sendinefndar
frá Sádi Arabíu til Íslands á síðasta ári og aukin tengsl landanna og
möguleika á samvinnu á sviði orkumála, læknisrannsókna og vatnsútflutnings. Mynd
|
| 10.03.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Lettlands á Íslandi hr. Andris Sekacis sem afhenti
trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um samvinnu Eystrasaltsríkja og
Norðurlanda á alþjóðlegum vettvangi og aukin tengsl Íslands og Lettlands á
undanförnum árum, bæði á sviði viðskipta og alþjóðamála. Einnig var fjallað
um áhrif hinnar alþjóðlegu efnahagskreppu á Lettland og Ísland og hvað læra
má af þeirri reynslu og þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til í hvoru
landi fyrir sig. Mynd
|
| 10.03.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Ísraels á Íslandi hr. Michael Eligal sem afhenti
trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um þróun mála í Miðausturlöndum,
samræður forseta Íslands og forseta Ísraels Simon Peres síðastliðið haust og
möguleikana á að auka samvinnu landanna á sviði vísinda og tækni. Mynd
|
| 11.03.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi eldri borgara á Álftanesi, ræðir sögu Bessastaða að fornu og
nýju.
|
| 11.03.2009 |
Forseti ræðir
við fulltrúa andlegu samtakanna Brahma Kumaris og tekur á móti kveðjum og
gjöfum frá leiðtoga þeirra Dadi Janki. Starfsemi samtakanna á Íslandi hefur
eflst mjög á undanförnum árum. Forseti átti á sínum tíma fund með Dadi Janki
á Bessastöðum.
|
| 12.03.2009 |
Á samkomu sem
haldin var í Háskólanum í Reykjavík í tilefni af afmæli
rannsóknastofnunarinnar Rannsókna og greiningar var forseta veitt sérstök
viðurkenning fyrir stuðning við vísindastarf og rannsóknir í þágu ungs fólks.
|
| 12.03.2009 |
Forseti
heimsækir hönnunarfyrirtækið Syrusson
sem hannað hefur fjölbreytt húsgögn, bæði fyrir heimli, stofnanir og
fyrirtæki sem og hina nýju Guðríðarkirkju í Grafarholti. Öll húsgögnin eru
smíðuð á Íslandi og var rætt um möguleika íslenskrar hönnunar og
húsgagnafyrirtækja á að koma sér á framfæri. Mynd
|
| 12.03.2009 |
Forseti
heimsækir fyrirtækið Kaldara Green Energy
og kynnir sér hönnun fyrirtækisins á litlum jarðhitavirkjunum sem hentað geta
vel við þróun jarðhitanýtingar bæði á Íslandi og víða um heim. Verið er að
smíða fyrsta rafalinn í slíka virkjun í Bangalore á Indlandi og er áformað að
hann verði tekinn í notkun við Hellisheiðarvirkjun í haust. Fyrirtækið er að
leggja grundvöll að hliðstæðum verkefnum í Kólumbíu, Alsír og víðar. Mynd
|
| 13.03.2009 |
Forseti sækir
frumsýningu Nemendaleikhúss Listaháskóla Íslands á Þrettándakvöldi eftir
William Shakespeare. Sýningin er útskriftarverkefni við Listaháskólann.
|
| 13.03.2009 |
Forseti tekur
á móti fornleifafræðinemum við Háskóla Íslands, sem heimsóttu Bessastaði í
vísindaferð á vegum félags síns Kuml. Forseti kynnti þeim þjóðminjar á
Bessastöðum, ræddi um varðveislu fornleifa og minja en nemendurnir skoðuðu
síðan Bessastaði, einkum fornleifakjallarann sem sýnir merki um byggð á
Bessastöðum, meðal annars konungsgarðinn á fyrri öldum.
|
| 13.03.2009 |
Forseti á
fund með Steve Rochlin og fulltrúum lagadeildar Háskólans í Reykjavík og
fulltrúum íslenskra fyrirtækja sem skipa stjórn Eþikos, rannsóknaseturs við HR. Rætt
var um hvernig fyrirtæki geta byggt upp traust og samkeppnishæfni á
grundvelli samfélagslegrar ábyrgðar og alþjóðlegan samanburð ríkja á þessu
sviði en rannsóknir Rochlins hafa sýnt að Ísland er meðal þeirra ríkja sem
mestum árangri hafa náð. Rætt var um áhrif hinnar alþjóðlegu efnahagskreppu á
viðhorf til markaðar og samfélags, þróun mála í Bandaríkjunum og árangur
Íslendinga á sviði sjálfbærrar nýtingar orku- og sjávarauðlinda.
|
| 14.03.2009 |
Forseti sækir
sýningu Leikfélags Rangæinga í Njálsbúð sem sett er upp í tilefni af þrjátíu
ára starfsafmæli leikfélagsins.
|
| 14.03.2009 |
Forseti opnar
sýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands þar sem sýnt er úrval fréttamynda frá
liðnu ári og sérstök sýning er til heiðurs Jim Smart.
|
| 16.03.2009 |
Forseti
heimsækir upplýsingatæknifyrirtækið Skýrr,
ræðir við stjórnendur fyrirtækisins um helstu verksvið þess, þróun á
undanförnum árum, þjónustu við opinberar stofnanir og fyrirtæki og
framtíðarmöguleika innanlands og á alþjóðlegum vettvangi. Forseti flutti
ávarp á hádegisfundi starfsmanna og heimsótti ýmsar deildir fyrirtækisins. Myndir
|
| 17.03.2009 |
Forseti er
viðstaddur lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar sem haldin er í Hafnarborg í
Hafnarfirði þar sem nemendur úr sjöundu bekkjum í öllum grunnskólum í
Hafnarfirði og á Álftanesi lesa úr verkum Brynhildar Þórarinsdóttur og Arnar
Arnarsonar. Auk þess verða kynnt úrslit í smásagnasamkeppni 8.-10. bekkja grunnskóla
Hafnarfjarðar.
|
| 17.03.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Norður-Kóreu á Íslandi hr. Ri Hui Choi sem afhenti
trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um þróun mála á Kóreuskaga, sambúð
ríkjanna og friðaráætlanir sem og áhuga Norður-Kóreu á að senda nemendur í
Sjávarútvegs- og Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna sem starfræktir eru á
Íslandi. Mynd
|
| 18.03.2009 |
Forseti á
fund með Ásbirni Óttarssyni forseta bæjarstjórnar, Kristni Jónassyni
bæjarstjóra og fleiri forsvars- og framkvæmdamönnum í Snæfellsbæ. Rætt var um
þróun nýrra atvinnutækifæra í héraðinu, samstarf sveitarfélaga á
Snæfellsnesi, nýtingu hinnar fjölþættu náttúru á Snæfellsnesi og á
Breiðafirði í þágu alþjóðlegrar rannsóknastarfsemi sem og þekkingartengda
ferðaþjónustu. Myndir.
|
| 18.03.2009 |
Forseti
heimsækir Sjóminjasafnið á Hellissandi, ræðir við Skúla Alexandersson
forsvarsmann þess og tekur við bókagjöf frá safninu. Búið er að reisa nýja
álmu til viðbótar við núverandi húsakost safnsins þar sem m.a. er ætlunin að
varðveita einn elsta sexæring sem til er í landinu, upphaflega smíðaðan á
fyrri hluta 19. aldar. Myndir.
|
| 18.03.2009 |
Forseti ræðir
við forsvarsmenn nýrrar vatnsverksmiðju sem verið er að reisa á Rifi en hún
mun nýta drykkjarvatn sem upprunnið er við Snæfellsjökul. Áformað er að selja
neysluvatn til margra landa, ýmist í flöskum eða gámum.
|
| 18.03.2009 |
Forseti
heimsækir Þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi, skoðar líkan af fyrirhugaðri
byggingu miðstöðvarinnar og ræðir við Guðbjörgu Gunnarsdóttur þjóðgarðsvörð
um þjóðgarðinn og ferðamannastefnu héraðsins. Mynd
|
| 18.03.2009 |
Forseti
heimsækir samkomu eldri borgara í Ólafsvík sem reglulega hittast í
félagsheimilinu Klifi, fræðist um fjölþætta starfsemi á vegum eldri borgara,
hlýðir á tónlistaratriði og flytur ávarp. Myndir
|
| 18.03.2009 |
Forseti
heimsækir Átthagastofuna í Ólafsvík þar sem Margrét B. Björnsdóttir kynnir
fyrirhugaða starfsemi í húsnæði sem áður hýsti járnsmiðju en ætlunin er að
átthagastofan stuðli að margvíslegum sameiginlegum verkefnum og frumkvæði
íbúa á ýmsum sviðum.
|
| 18.03.2009 |
Forseti
heimsækir Vör, sjávarrannsóknasetur í Ólafsvík, sem helgað er rannsóknum á
lífríki Breiðafjarðar og ræðir við starfsmenn sem meðal annars kynna forseta
rannsóknir á beitukóngi í Breiðafirði. Mynd
|
| 18.03.2009 |
Forseti heimsækir starfsstöð Fiskmarkaðar Íslands í Ólafsvík sem miðlað
hefur sjávarfangi milli kaupenda og seljenda í tæp tuttugu ár. Páll
Ingólfsson kynnti starfsemi fyrirtækisins sem hefur vaxið jafnt og þétt
á undanförnum árum og nýtir fullkomið uppboðskerfi í starfsemi sinni.
Fiskmarkaðurinn starfar á ýmsum stöðum á landinu. Mynd
|
| 18.03.2009 |
Forseti
heimsækir Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík í fylgd bæjarstjóra
Snæfellsbæjar Kristins Jónassonar og bæjarfulltrúa, og svarar spurningum
nemenda skólans á samkomu þeirra og kennara. Myndir
|
| 18.03.2009 |
Forseti
heimsækir Eyrbyggju - Sögumiðstöð í Grundarfirði, skoðar sýningar,
gamla muni sem meðal annars tengjast útgerð og gömlum lífsháttum og
kynnir sér ljósmyndasafn Bærings Cecilssonar sem veitir einstæða sýn á
mannlíf, fjölskyldur og atvinnuhætti í Grundarfirði í meira en hálfa öld.
Ingi Hans Jónsson forstöðumaður Sögumiðstöðvarinnar tók á móti forseta. Mynd
|
| 18.03.2009 |
Forseti
heimsækir dvalarheimilið Fellaskjól í Grundarfirði, ræðir við starfsfólk
og dvalargesti, eldri borgara í Grundarfirði og nágrenni.
|
| 18.03.2009 |
Forseti heimsækir sjávarútvegsfyrirtækið Guðmund Runólfsson hf. í Grundarfirði, ræðir
við stjórnendur, heilsar upp á starfsfólk; fjallað var um stöðu
sjávarútvegsfyrirtækja í kjölfar efnahagskreppunnar, alþjóðlega eftirspurn
eftir sjávarafurðum og aðlögunarhæfni íslensks sjávarútvegs. Guðmundur
Runólfsson, stofnandi fyrirtækisins, tók þátt í viðræðum við forseta en
fyrirtækið hefur starfað í rúm 60 ár í útgerð, fiskverkun og netagerð. Myndir
|
| 18.03.2009 |
Forseti heimsækir grunnskóla Grundarfjarðar, kynnir sér starfsemi
skólans, á fund með stjórnendum og kennurum og flytur ávarp á samkomu með
nemendum og svarar fyrirspurnum þeirra. Myndir
|
| 18.03.2009 |
Forseti heimsækir leikskólann Sólvelli í Grundarfirði og ræðir við
starfsmenn og börn í fylgd með forsvarsmönnum sveitarfélagsins. Mynd
|
| 18.03.2009 |
Forseti á fund með Sigríði Finsen forseta bæjarstjórnar Grundarfjarðar, Guðmundi Inga Gunnlaugssyni
bæjarstjóra, bæjarfulltrúum og embættismönnum bæjarins þar sem fjallað er um
viðfangsefni sveitarfélagsins, vandamál og framtíðarhorfur í ljósi
efnahagserfiðleika á landsvísu.
|
| 19.03.2009 |
Forseti sækir
tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands
sem haldnir voru til heiðurs Atla Heimi Sveinssyni tónskáldi í tilefni af
sjötíu ára afmæli hans. Flutt voru þrjú verk eftir Atla Heimi, meðal annars
sinfónía sem samin var í fyrra.
|
| 19.03.2009 |
Forseti
heimsækir rannsóknar- og þróunarfyrirtækið Mentis
Cura sem hefur sérhæft sig í notkun heilarita við greiningu á ýmsum
heilasjúkdómum, m.a. Alzheimer. Fyrirtækið hlaut nýlega Nýsköpunarverðlaun
Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs. Sú tækni sem fyrirtækið
hefur þróað getur styrkt mjög greiningu og meðferð þessara sjúkdóma en
rannsóknirnar hafa meðal annars verið í samvinnu við minnismóttöku
Landspítalans, rannsóknarstofu Landspítalans í öldrunarfræðum og BUGL. Mynd.
|
| 20.03.2009 |
Forseti sækir
frumsýningu á heimildamynd um framgöngu íslenska landsliðsins í handbolta á
Ólympíuleikunum en myndin ber heitið Gott silfur gulli betra.
|
| 20.03.2009 |
Forseti
hittir hóp menntaskólanema frá Alaska sem eru í heimsókn á Íslandi en forseti
hitti hópinn í heimsókn sinni til Alaska síðastliðið haust. Nemendurnir eru
meðal annars að kynna sér umhverfisvæna orku, loftslagsbreytingar og þróun
íslensks samfélags.
|
| 20.03.2009 |
Forseti á
fund með fulltrúum íslenskra aðila og erlendum samstarfsmönnum þeirra um nýja
tækni sem felur í sér verulegan orkusparnað skipa og er dæmi um margvíslega
nýsköpun í orkumálum á Íslandi.
|
| 20.03.2009 |
Forseti á
fund með Lassi Heininen prófessor, Þorsteini Gunnarssyni rektor Háskólans á
Akureyri og Gúðrún Rósu Þorsteinsdóttur starfsmanni Rannsóknarþings Norðursins um árangurinn af
þinginu sem haldið var í Alaska síðastliðið haust og skipulagningu þess næsta
sem haldið verður í Noregi árið 2010, en undirbúningsfundir verða haldnir
síðar á þessu ári. Milli þinga starfa fimm samstarfshópar sem meðal annars
fjalla um hagkerfi norðurslóða, orkumál, nýjar siglingaleiðir,
loftslagsbreytingar og öryggismál.
|
| 21.03.2009 |
Forseti
heimsækir Waldorfskólann í Lækjarbotnum á sérstakri kynningu um skólastarfið
sem byggt er á því að efla vitsmunalegan, tilfinningalegan og líkamlegan
þroska nemenda með fjölbreyttum kennsluháttum. Nemendum gefst kostur á að
komast í nána snertingu við náttúruna sem umlykur Lækjarbotna, lifa með
hrynjanda árstíðanna og upplifa náttúruöflin. Forseti ræddi við kennara,
nemendur og foreldra um starfshætti skólans.
|
| 24.03.2009 |
Forseti á
fund með Halldóri B. Runólfssyni forstöðumanni Listasafns Íslands og
Christian Schoen forstöðumanni Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar,
Center for Icelandic Art, um kynningu á íslenskri samtímalist en meðal annars
er fyrirhuguð útgáfa bókar um það efni í tengslum við alþjóðlegar
listsýningar síðar á þessu ári.
|
| 24.03.2009 |
Forseti á
fund með formanni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands Ólafi Rafnssyni og
Líney Rut Halldórsdóttur framkvæmdastjóra ÍSÍ um væntanlegt þing sambandsins,
smáþjóðaleikana sem haldnir verða í sumar og væntanlega vetrarólympíuleika í
Kanada. Einnig var rætt um þjálfun yngstu flokka íþróttafélaganna,
æskulýðsstarf, mikilvægi þess að efla framlag sjálfboðaliða og þátttöku
fjölskyldna í íþróttastarfi barna og unglinga.
|
| 24.03.2009 |
Forseti á
fund með forsvarsmönnum ÓB-ráðgjafar um foreldrafræðslu sem einkum er miðuð
við það þegar foreldrar eiga sitt fyrsta barn í vændum. Fræðslan er byggð á
alþjóðlegum rannsóknum og hefur verið skipulögð meðal annars í samvinnu við
Reykjavíkurborg og Kópavogsbæ. Námskeiðin bera heitið "Barnið komið
heim".
|
| 24.03.2009 |
Forseti
heimsækir upplýsingatæknifyrirtækið TrackWell sem þróar kerfi sem annast
eftirlit með fiskveiðum og umferð og fleiri þáttum. Kerfin hafa verið notuð á
Íslandi um árabil og eru nú m.a. notuð til að fylgjast með flutningabifreiðum
í Bandaríkjunum og fiskveiðum á Maldíveyjum. Rætt var um hvernig nýta mætti
sóknarfæri íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja á alþjóðavísu, einkum í ljósi þess
hlutverks sem Ísland hefur gegnt sem þróunarmiðstöð slíkra kerfa. Mynd
|
| 25.03.2009 |
Forseti
heimsækir Síldarminjasafnið og ræðir við Örlyg Kristfinnsson safnstjóra ásamt
bæjarráðsmönnum um þróun safnsins og ný sóknarfæri í menningartengdri
ferðaþjónustu. Myndir.
|
| 25.03.2009 |
Forseti
heimsækir Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar, ræðir við lækna og annað
starfsfólk og drekkur síðdegiskaffi með vistmönnum. Myndir
|
| 25.03.2009 |
Forseti
heimsækir sjávarútvegsfyrirtækið Ramma, skoðar þar nýja rækjuverksmiðju sem
tekur til starfa á næstu vikum og kynnir sér ýmis lækningaefni sem framleidd
eru úr rækjuskel. Mynd.
|
| 25.03.2009 |
Forseti
kynnir sér nýja ferðaþjónustu sem verið er að byggja upp í Siglufirði á vegum
nýs fyrirtækis, Rauðku. Það vinnur að því að gera upp ýmis eldri hús
staðarins og byggja upp þjónustusvæði í kringum smábátahöfnina, sem og að
gera ýmis vannýtt íbúðarhús staðarins að gistirými fyrir fjölskyldur. Mynd.
|
| 25.03.2009 |
Forseti
heimsækir Skálarhlíð, dvalarheimili aldraðra í Siglufirði, snæðir hádegisverð
með eldri borgurum og ræðir við þá um þær breytingar sem orðið hafa í
atvinnuháttum og búsetu í Siglufirði á undanförnum áratugum. Myndir.
|
| 25.03.2009 |
Forseti
heimsækir Sparisjóð Siglufjarðar og á fund með stjórnendum sparisjóðsins og
stöðu hans og þjónustu við byggðarlagið og skoðar síðan fjarvinnsluver sem
rekið hefur verið á vegum sparisjóðsins um árabil en þar vinna um 30
starfsmenn við upplýsingaþjónustu í þágu lífeyrissjóða. Myndir.
|
| 25.03.2009 |
Forseti
heimsækir leikskólann Leikskála í Siglufirði þar sem Kristín María
Karlsdóttir leikskólastjóri tók ásamt börnum og starfsmönnum á móti forseta
sem skoðaði skólann og kynnti sér starfsemi hans. Myndir.
|
| 25.03.2009 |
Forseti
heimsækir Grunnskóla Siglufjarðar ásamt Þóri Þórissyni bæjarstjóra og
bæjarfulltrúum Fjallabyggðar. Jónína Magnúsdóttir skólastjóri stjórnaði
samkomu með nemendum í leikfimisal skólans þar sem nemendur sungu og forseti
flutti ávarp og svaraði fyrirspurnum nemenda. Myndir.
|
| 25.03.2009 |
Forseti á
fund með bæjarráði Fjallabyggðar í Þjóðlagasetrinu í Siglufirði. Rætt var um
atvinnumál bæjarins, uppbyggingu safna og menningartengdrar ferðaþjónustu. Mynd.
|
| 26.03.2009 |
Forseti
heimsækir verkstæði Skiltagerðarinnar í Ólafsfirði sem sérhæfir sig í
skiltagerð, steinsmíði og líkkistusmíði fyrir markað sunnanlands og víðar. Mynd
|
| 26.03.2009 |
Forseti
heimsækir Hornbrekku, dvalarheimili aldraðra í Ólafsfirði, ræðir við
heimilisfólk og starfsmenn og skoðar húsakynni. Myndir
|
| 26.03.2009 |
Forseti
skoðar vinnuaðstöðu netagerðarinnar Kristbjargar sem um árabil hefur þjónað
fiskveiðiflota Norðlendinga og annarra. Mynd
|
| 26.03.2009 |
Forseti
heimsækir fyrirtæki Sigurjóns Magnússonar sem sérhæft hefur sig í að smíða
sjúkrabíla og brunabíla og annast nú að stórum hluta byggingu slíkra bifreiða
sem notaðar eru í landinu. Myndir
|
| 26.03.2009 |
Forseti sækir
samkomu nemenda í Grunnskóla Ólafsfjarðar sem haldin er í Tjarnarborg,
menningarhúsi Fjallabyggðar. Nemendur fluttu tónlistaratriði, forseti
ávarpaði þvínæst nemendur og svaraði fjölda fyrirspurna. Myndir
|
| 26.03.2009 |
Forseti
heimsækir leikskólann Leikhóla í Ólafsfirði, kynnir sér starfsemi hans og
ræðir við börn og starfsfólk. Myndir
|
| 26.03.2009 |
Forseti á
fund með bæjarfulltrúum Fjallabyggðar í Ólafsfirði um ýmis verkefni
bæjarfélagsins í Ólafsfirði en áður hafði forseti rætt við bæjarráðsmenn
Fjallabyggðar í Siglufirði. Myndir
|
| 26.03.2009 |
Forseti á
hádegisverðarfund með forsvarsmönnum fiskvinnslufyrirtækja í Dalvíkurbyggð
þar sem þeir kynntu starfsemi og stöðu sinna fyrirtækja sem öll eru traust
þrátt fyrir erfiðleika í efnahagslífi og sækja fram á mörgum sviðum. Á
hádegisverðarfundinum voru fulltrúar Ektafisks, Fiskverkunar Dagmanns,
Norðurstrandar, O. Jakobssonar og Samherja, sem allir gerðu grein fyrir
sinni starfsemi. Hádegisverðurinn var eldaður af Júlíusi Júlíussyni sem er
framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla á Dalvík. Myndir
|
| 26.03.2009 |
Forseti
heimsækir fiskvinnslu Samherja á Dalvík sem um áraraðir hefur verið í fremstu
röð sjávarútvegsfyrirtækja í landinu, skoðar framleiðsluhætti og ræðir við
forsvarsmenn fyrirtækisins um trausta stöðu þeirra á ýmsum mörkuðum og
vaxandi framleiðslu. Mynd
|
| 26.03.2009 |
Forseti á
fund með starfsmönnum iðnaðarfyrirtækisins Sæplasts sem nú starfar víða um
heim undir samheitinu Promens en hefur verið burðarás í atvinnulífi á Dalvík
í aldarfjórðung. Að loknum samræðufundi með starfsfólki skoðaði forseti
framleiðslusali fyrirtækisins. Myndir
|
| 26.03.2009 |
Forseti
heimsækir Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík og á samræðustund með vistmönnum
og starfsfólki. Myndir
|
| 26.03.2009 |
Forseti skoðar Menningarhúsið á Dalvík sem verið hefur í byggingu og
áformað er að opna síðar á þessu ári. Þar verður vegleg aðstaða fyrir
tónleika og samkomur auk þess sem bókasafn byggðarlagsins verður þar til
húsa. Sparisjóður Svarfdæla gefur byggðarlaginu húsið. Myndir
|
| 26.03.2009 |
Forseti ræðir
við stjórnendur Sparisjóðs Svarfdæla, Jónas Pétursson sparisjóðsstjóra og
Jóhann Antonsson stjórnarformann um stöðu sparisjóðsins í kjölfar
bankahrunsins, þróun sparisjóðakerfisins í landinu og mikilvægi sparisjóðsins
fyrir atvinnulíf og menningu við Eyjafjörð.
|
| 26.03.2009 |
Forseti heimsækir Fiskmiðlunina Sölku og ræðir við forystukonur
fyrirtækisins um útflutning á skreið til Níegríu en fyrirtækið hefur verið
burðarás í slíkum útflutningi um langt skeið. Mynd
|
| 26.03.2009 |
Forseti á fund með bæjarstjóra Dalvíkurbyggðar Svanfríði Jónasdóttur og
fulltrúum í bæjarráði Dalvíkurbyggðar þar sem rætt var um stöðu bæjarins,
uppbyggingu og atvinnumál og hvort og á hvern hátt erfiðleikar í
efnahagsmálum hafa áhrif á atvinnustig og lífskjör bæjarbúa. Myndir
|
| 26.03.2009 |
Forseti heimsækir leikskólann Krílakot á Dalvík og kynnir sér starfsemi
skólans. Myndir
|
| 26.03.2009 |
Forseti heimsækir Grunnskóla Dalvíkurbyggðar, ávarpar nemendur, svarar
fyrirspurnum á sérstakri samkomu og kynnir sér starfsemi skólans. Myndir
|
| 26.03.2009 |
Forseti er verndari landssöfnunar Hjartaheilla, landssamtaka
hjartasjúklinga, og í sérstöku fylgiblaði með Fréttablaðinu er birt ávarp
forseta. Það ber heitið Samstaða hjálpar sjúkum.
|
| 27.03.2009 |
Forseti
flytur ávarp á ársfundi ÍSOR, Íslenskra orkurannsókna, og fjallar ávarp
forseta um þau tækifæri sem þekkingarauður Íslendinga skapar á tímum þegar
brýnt er að sporna við loftslagsbreytingum með nýskipan í orkubúskap
veraldar. Ávarp.
|
| 27.03.2009 |
Forseti
heimsækir húsgagnafyrirtækið Á. Guðmundsson sem í meira en hálfa öld hefur
framleitt húsgögn fyrir skóla, stofnanir, fyrirtæki og aðra. Húsgögnin eru
hönnuð af íslenskum arkitektum og hefur fyrirtækið um langt skeið verið
öflugasti aðilinn á þessum vettvangi. Myndir
|
| 27.03.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi skiptanema frá mörgum þjóðlöndum sem dvalið hafa á Íslandi á
vegum AFS. Rætt var um þá lærdóma sem draga má af kynnum af Íslandi og
íslenskri menningu.
|
| 28.03.2009 |
Forseti tekur þátt í sérstakri dagskrá á Stöð 2 í tilefni af landssöfnun
Hjartaheilla en forseti er verndari söfnunarinnar. Fjármunum sem safnast
verður varið til að efla tækjakost Landspítala Háskólasjúkrahúss. Ávarp
forseta.
|
| 28.03.2009 |
Forseti
flytur ávarp á hátíðarsamkomu í Þjóðmenningarhúsi í tilefni af aldarafmæli
hússins og skoðar sýningar sem opnaðar voru af þessu tilefni. Ávarp
forseta.
|
| 28.03.2009 |
Forseti
flytur ávarp á samkomu Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík þegar tekin er í
notkun ný viðbygging og afhendir jafnframt Sigurði Magnússyni viðurkenningu
sem fyrsta heiðursfélaga Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík.
|
| 28.03.2009 |
Forseti sækir
opnun á sýningu Ólafs Elíassonar Limbóland og frumsýningu í Borgarleikhúsinu
á nýju leikriti, Þú ert hér, en báðir þessir listviðburðir glíma við að túlka
þá atburði sem orðið hafa á undanförnum mánuðum.
|
| 29.03.2009 |
Forseti tekur
á móti forystumönnum HönnunarMars og erlendum gestum, fræðimönnum og
fjölmiðlamönnum sem fjallað hafa um þróun hönnunar og tækifæri á því sviði á
fjölmörgum viðburðum sem Hönnunarmiðstöð hefur skipulagt að undanförnu.
|
Apríl
|
| 03.04.2009 |
Forseti
flytur ávarp á ráðstefnu Landgræðslu ríkisins
og Háskólafélags Suðurlands um landgræðslu og evrópskt fræðasamstarf,
gróðurvernd og endurheimt landgæða. Ráðstefnan var haldin í Frægarði,
rannsóknasetri Landgræðslunnar í Gunnarsholti. Á ráðstefnunni afhjúpaði
forseti skilti í tilefni af opnun rannsókna- og fræðaseturs Háskóla Íslands í
Frægarði. Ávarp
|
| 06.04.2009 |
Forseti á
fund með Þorsteini Gunnarssyni arkitekt sem vann að endurgerð Bessastaða á
sínum tíma og Þór Magnússyni fyrrverandi þjóðminjaverði um Bessastaðakirkju,
gerð hennar á fyrri tíð og hugsanlegar lagfæringar.
|
| 06.04.2009 |
Forseti
sendir forseta Ítalíu samúðarkveðju vegna mikilla jarðskjálfta í Abruzzo. Fréttatilkynning.
|
| 07.04.2009 |
Forseti sækir frumsýningu á heimildakvikmyndinni Draumalandið sem byggð
er á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar sem hlaut Íslensku
bókmenntaverðlaunin 2006.
|
| 07.04.2009 |
Forseti á
fund með sendiherra Kína á Íslandi Zhang Keyuan um samstarf landanna á ýmsum
sviðum sem og þróun efnahagsmála í Kína og á heimsvísu.
|
| 07.04.2009 |
Forseti tekur á móti hópi erlendra stúdenta við Háskóla Íslands sem
leggja stund á nám í íslensku og ræðir við þá um sögu og menningu
þjóðarinnar.
|
| 15.04.2009 |
Forseti á
fund með Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra og Roger Croft, sérfræðingi í
landnýtingu og þjóðgörðum, um þær auðlindir sem Ísland býr yfir og hvernig
hægt er að nýta þær á sjálfbæran og arðbæran hátt á komandi tímum, meðal
annars á grundvelli heildarskipulags á nýtingu náttúruauðlinda. Í slíku
verkefni þarf að taka mið af breyttum áherslum í veröldinni gagnvart
landgæðum og náttúruauðlindum.
|
| 15.04.2009 |
Forseti
kynnir sér nýsköpunarstarfsemi sem fram fer í eldra húsnæði í miðborg
Reykjavíkur sem breytt hefur verið á vegum Smugunnar í aðsetur fyrir
tónlistarfólk, myndlistarfólk, ljósmyndara, hugmyndasmiði, vefhönnuði og
fleiri aðila. Myndir.
|
| 15.04.2009 |
Forseti
heimsækir Marimo sem sérhæfir sig í þróun
upplýsingatækni á ýmsum sviðum og ræðir möguleika upplýsingatækninnar á
Íslandi, hvernig hún hefur á jákvæðan hátt brugðist við þeim tækifærum sem
skapast hafa þrátt fyrir erfiðleika í efnahagslífi. Mynd.
|
| 16.04.2009 |
Forseti
heimsækir Norðurál á Grundartanga, kynnir sér framleiðslu fyrirtækisins, á
fund með stjórnendum þess og ávarpar starfsfólk í matsal ásamt því að svara
fyrirspurnum. Myndir.
|
| 17.04.2009 |
Forseti tekur
á móti starfsmönnum Vinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins sem heimsækja
Bessastaði og ræðir um áhrifin af efnahagserfiðleikum undanfarinna mánaða.
|
| 17.04.2009 |
Forseti er
viðstaddur setningu íþróttaþings ÍSÍ og flytur ávarp. Ávarp forseta.
|
| 20.04.2009 |
Viðtal við
forset birtist í skólablaði Menntaskólas í Reykjavík. Viðtalið
|
| 20.04.2009 |
Forseti
flytur ávarp í hljóðútgáfu bókar MND félagsins Björt framtíð Íslands en í
henni skrifa ýmsir um vanda íslenskrar þjóðar og tækifæri á komandi tímum.
Ávarp forseta ber heitið Sagan veitir
sóknarkraft.
|
| 22.04.2009 |
Forseti tekur
á móti nýrri bók Guðrúnar G. Bergmann sem ber heitið Konur geta breytt
heiminum með nýjum lífsstíl en í bókinni er lögð áhersla á fjölmargar leiðir
í daglegu lífi til að styrkja sjálfbæra þróun og sjálfbæra lífshætti.
Fyrirhugað er að bókin komi út í Bandaríkjunum og fleiri löndum síðar á þessu
ári.
|
| 22.04.2009 |
Forseti
afhendir útflutningsverðlaun við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin
hlaut Vaki fiskeldiskerfi.
|
| 23.04.2009 |
Forseti
afhendir Íslensku þýðingarverðlaunin við hátíðlega athöfn á Gljúfrasteini.
Verðlaunin hlaut Hjörleifur Sveinbjörnsson fyrir þýðingu sína á kínverskum
bókmenntum í bókinni Apakóngurinn á silkiveginum. Í kjölfarið var
undirritaður samningur um réttindi til útgáfu á verkum Halldórs Laxness milli
Forlagsins og fulltrúa erfingja Halldórs Laxness.
|
| 23.04.2009 |
Forseti sækir
skátamessu á sumardaginn fyrsta í Hallgrímskirkju og tekur í kjölfarið þátt í
skátakaffi í tilefni dagsins.
|
| 24.04.2009 |
Forseti sækir
lokahátíð Þjóðleiks sem haldin er á Egilsstöðum en Þjóðleikur er samstarfsverkefni
Þjóðleikhússins og skóla á Austurlandi, allt frá Borgarfirði eystra og
Vopnafirði til Hornafjarðar. Nemendur fluttu þrjú ný íslensk leikrit sem
samin hafa verð af Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann, Sigtryggi
Magnasyni og Bjarna Jónssyni sérstaklega fyrir Þjóðleik. Í upphafi var farin
skrúðganga allra þátttakenda frá Valaskjálf að hinni nýju menningarmiðstöð
sem sett hefur verið á fót í gamla sláturhúsinu á Egilsstöðum. Þjóðleikur er
nýjung í samstarfi Þjóðleikhússins við skóla og byggðarlög á landsbyggðinni.
|
| 24.04.2009 |
Forseti á
fund með sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi Carol van Voorst sem nú lætur af
störfum. Rætt var um samband landanna í nútíð og framtíð, vaxandi áherslur á
nýtingu hreinnar orku og samvinnu háskóla og vísindasamfélags.
|
| 27.04.2009 |
Forseti á
fund með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra þar sem rætt var um úrslit
alþingiskosninganna og viðræður Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar
græns framboðs um framhald ríkisstjórnarsamstarfsins. Á blaðamannafundi
áréttaði forseti að minnihlutastjórnin sem Jóhönnu Sigurðardóttur hefði verið
falið að mynda í lok janúar hefði nú hlotið stuðning meirihluta alþingis og
þjóðarinnar. Því væri stjórnskipulega ekkert því til fyrirstöðu að hún sæti
áfram sem fullburðug ríkisstjórn. Flokkarnir gætu því tekið sér þann tíma sem
þyrfti fyrir þær viðræður sem forsætisráðherra fjallaði um á fundi sínum
með forseta. Myndir.
|
| 28.04.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Ómans á Íslandi hr. Khalifa bin Ali Al-Harthy sem
afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um aukna samvinnu Íslands
við ríki í Miðausturlöndum, einkum smærri ríki, meðal annars á sviði
orkumála, og möguleika á að þróa samvinnu Íslands og Ómans á því sviði svo og
varðandi nýtingu sjávarauðlinda. Mynd
|
| 28.04.2009 |
Forseti á
fund með sendiherra Filippseyja á Íslandi frú Elizabeth Pineda Buensuceso sem
afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um vaxandi samvinnu
landanna, meðal annars á sviði jarðhita og nýtingu hreinnar orku sem og
fjölþætt framlag fólks af filippeyskum ættum til íslensks samfélags. Mynd
|
| 28.04.2009 |
Forseti á
fund með sendiherra Afgangistans á Ísland i hr. Jawed Ludin sem senn lætur af
störfum. Rætt var um þróun mála í landinu og þátttöku Íslendinga og
Norðurlanda í ýmsum verkefnum í Afganistan.
|
| 29.04.2009 |
Forseti
heimsækir skútuna Southern Star og ræðir við áhöfn hennar um siglingar
skútunnar umhverfis Norður-Ameríku og yfir Atlantshafið í því skyni að kanna
og kynna þær breytingar sem eru að verða á norðursvæðum og hafinu vegna
loftslagsbreytinga, sem fram koma í bráðnun hafíss.
|
Maí
|
| 01.05.2009 |
Forseti á
fund með kvikmyndaleikstjóranum David Lynch sem heimsækir Ísland til að kynna
áhrif innhverfrar íhugunar á einstaklinga og samfélög en hann byggir á
viðtækri reynslu og þátttöku milljóna manna víða um heim.
|
| 02.05.2009 |
Forseti
flytur ávarp á ráðstefnu um Pál Lýðsson, bóndann, félagsmálamanninn og
fræðimanninn sem haldin er á Selfossi til að fjalla um merkan feril Páls
Lýðssonar sem lést af slysförum árið 2008. Ávarp forseta.
|
| 03.05.2009 |
Forseti heimsækir æfingu hjá yngstu flokkum Breiðabliks í
knattspyrnuhúsinu Fífunni, fylgist með æfingum og ræðir við þátttakendur,
þjálfara og foreldra um víðtækt starf sem fram fer á vegum íþróttafélagsins. Myndir
|
| 04.05.2009 |
Forseti á
fund með Harrith Wickgrema, bandarískum ferðamálafrömuði, og fulltrúum
iðnaðarráðuneytis og íslenskra ferðaþjónustuaðila um skipulagningu ferða til
Íslands þar sem áhersla er lögð á að kynna í senn náttúru og nýtingu hreinnar
orku.
|
| 04.05.2009 |
Forseti á
fund með Hreini Haraldssyni vegamálastjóra og Jónasi Snæbjörnssyni
verkfræðingi um fyrirhugaða vegagerð á Álftanesi en umræður hafa verið um
vegarstæðið að undanförnu.
|
| 05.05.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Egyptalands hr. Tamer Abdel-Aziz Abdalla Khalil sem
afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um þróun mála í
Miðausturlöndum og framlag Egyptalands til friðarumleitana bæði milli
Palestínumanna innbyrðis og Palestínumanna og Ísraela. Einnig var rætt um
nýjar áherslur í afvopnunarmálum í ljósi stefnu Obama Bandaríkjaforseta um að
útrýma öllum kjarnorkuvopnum en Egyptaland hefur í áratugi gegnt mikilvægu
hlutverki í fjölþjóðaviðræðum um það efni, einkum í ljósi hættu á
kjarnorkukapphlaupi í Miðausturlöndum.
|
| 05.05.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Beníns frú Arlette Claudine Kpèdétin Dagnon
Vignikin sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um möguleika á
auknum samskiptum landanna, einkum á sviði sjávarútvegs og tækniþróunar.
Stjórnvöld í Benín hafa mikinn áhuga á að nýta sjávarauðlindir landsins á
arðbæran og skipulegan hátt og nýta þá reynslu sem fengist hefur í samvinnu
Íslands og Nígeríu, nágrannalands Beníns.
|
| 05.05.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Mongólíu hr. Bulgaa Altangerel sem afhenti
trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um nýtingu jarðhita í Mongólíu en
nokkrir sérfræðingar frá landinu hafa hlotið þjálfun í Jarðhitaskóla
Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Breytingar á orkukerfinu eru mikilvægur þáttur
í þróun landsins. Einnig var rætt um reynsluna af sambúð Mongólíu við
nágranna sína Kína og Rússland.
|
| 06.05.2009 |
Forseti tekur
á móti þátttakendum í norrænni ráðstefnu um málefni blindra og sjónskertra en
flestir þátttakendur eru kennarar og starfsþjálfarar sem stuðla að því að
blindir og sjónskertir geti stundað atvinnu og notið menningar og daglegs
lífs.
|
| 06.05.2009 |
Forseti á
fund með forystumönnum hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi um starfsemi
félagsins, nýtingu beitar á Bessastaðanesi og varðveislu náttúrunnar á
nesinu.
|
| 07.05.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi fræðslustjóra sinfóníuhljómsveita frá nokkrum evrópskum borgum
og ræðir um íslenskt tónlistarlíf og menningu.
|
| 07.05.2009 |
Forseti er viðstaddur setningu Kópavogsdaga
og opnun á sýningu Baltasars ,,Mýtur og táknmyndir" í Gerðarsafni.
|
| 07.05.2009 |
Forseti á
fund með fulltrúum söluaðila íslenskra sjávarafurða í Bandaríkjunum um ný
tækifæri sem myndast með því að nýta upplýsingatækni á þann hátt að veita
neytendum meiri upplýsingar um uppruna framleiðslunnar.
|
| 07.05.2009 |
Forseti ræðir við blaðamann Bændablaðsins um íslenskan landbúnað,
fæðuöryggi þjóðarinnar, hlutverk landbúnaðarins í baráttunni gegn
loftslagsbreytingum og þátt landbúnaðarins í að endurreisa íslenskt efnahagslíf.
Viðtalið mun birtast í Bændablaðinu í næstu viku.
|
| 10.05.2009 |
Á
ríkisráðsfundum sem haldnir voru á Bessastöðum tók ný ríkisstjórn, annað
ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur, við af fyrri ríkisstjórn, fyrsta ráðuneyti
Jóhönnu Sigurðardóttur. Mynd
frá ríkisráðsfundi nýrrar ríkisstjórnar.
|
| 10.05.2009 |
Forseti sækir
messu í Kirkju Óháða safnaðarins í tilefni af fimmtíu ára afmæli kirkjunnar.
|
| 12.05.2009 |
Forseti
heimsækir Íþróttamiðstöðina í Laugardal og íþróttaaðstöðu Þróttar og kynnir
sér þjálfun æskufólks í frjálsum íþróttum og fimleikum sem þar fer fram.
|
| 12.05.2009 |
Forseti
heimsækir Íslenska getspá og Íslenskar getraunir en meginhluta tekna þeirra
er varið í þágu íþróttastarfs í landinu.
|
| 12.05.2009 |
Forseti
heimsækir höfuðstöðvar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og á fund með
forseta ÍSÍ, framkvæmdastjóra og öðrum stjórnendum um starfsemi sambandsins
og íþróttafélaga vítt um land.
|
| 12.05.2009 |
Forseti
áritar minningarumslög sem send verða hvaðanæva úr heiminum til að votta
fórnarlömbum jarðskjálftanna í Kína og fjölskyldum þeirra samúð og virðingu
en um þessar mundir er ár liðið frá jarðskjálftunum í Kína.
|
| 12.05.2009 |
Forseti á
fund með sóknarnefnd og prestum um málefni Bessakirkju, nýtingu hennar og
viðhald.
|
| 13.05.2009 |
Forseti á fund með fulltrúum verslunarkeðjunnar Waitrose í Bretlandi og
íslenskra útflytjenda um sölu á íslenskum sjávarafurðum í Bretlandi, trausta
markaðsstöðu þeirra og hvernig hægt er að nýta upplýsingatækni til að koma
til móts við óskir neytenda um að fá að vita meira um uppruna matvæla.
|
| 14.05.2009 |
Bændablaðið
birtir viðtal við forseta um landbúnað, fæðuöryggi og framtíðarhorfur
Íslendinga. Sjá
viðtalið.
|
| 15.05.2009 |
Forseti er
viðstaddur setningu Listahátíðar á Kjarvalsstöðum og skoðar sýningar sem
opnaðar eru á málverkum Nínu Tryggvadóttur og Louisu Matthíasdóttur og
sýningu á íslenskri hönnun. Forseti er verndari Listahátíðar.
|
| 15.05.2009 |
Forseti setur
Alþingi að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Alþingi kemur nú saman í
kjölfar nýafstaðinna kosninga. Ræða
forseta.
|
| 15.05.2009 |
Ræða forseta
"Iceland: A laboratory for green driving" er flutt á ráðstefnu sem haldin
er í Stavanger í Noregi. Ráðstefnan ber heitið EVS
24 - Towards Zero Emission og sækja hana sérfræðingar og vísindamenn og
forystumenn í atvinnulífi og þjóðmálum. Vegna setningar Alþingis gat forseti
ekki sótt ráðstefnuna og var ræðan því lesin á ráðstefnunni. Ræða forseta.
|
| 16.05.2009 |
Forseti
sendir Jóhönnu Guðrúnu, höfundum og flytjendum íslenska lagsins hamingjuóskir
frá sér og Dorrit. Í kveðjunni sagði forseti einnig að íslenska þjóðin
samfagnaði þeim innilega og væri afar stolt af árangri þeirra.
|
| 17.05.2009 |
Forseti sækir
hátíðarmessu í tilefni af 50 ára vígsluafmæli Borgarneskirkju. Biskup Íslands
predikaði og séra Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur þjónaði ásamt prestum úr
Borgarfirði.
|
| 17.05.2009 |
Forseti tekur
á móti fulltrúum úr stjórnum íþróttafélaga fatlaðra á Norðurlöndum sem þingað
hafa á Íslandi. Starfsemi þeirra hefur vaxið mjög á undanförnum áratugum og
önnur norræn sambönd íhuga nú að fylgja fordæmi Íþróttasambands fatlaðra á
Íslandi og verða beinir aðilar að Special Olympics, alþjóðahreyfingu um
íþróttir seinfærra og þroskaheftra.
|
| 17.05.2009 |
Forseti á
fund með saksóknara Alþjóðaglæpadómstólsins Luis Moreno-Ocampo um verkefni
dómstólsins og þörf á nýju alþjóðlegu regluverki um fjármálastarfsemi og
efnahagslíf, hvernig hin alþjóðlega fjármálakreppa hefði varpað nýju ljósi á
slíka þörf og hvernig reynsla Íslands gæti nýst í umræðum um slíkar
breytingar.
|
| 18.05.2009 |
Forseti á
viðræður við utanríkisráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna og sendimenn
hans frá Abu Dhabi um samstarf landanna, nýtingu hreinnar orku, framlag
íslenskra vísindamanna til þróunar Masdarverkefnisins og tillögur Sameinuðu
furstadæmanna um að höfuðstöðvar nýrrar alþjóðlegrar stofnunar í orkumálum
verði í Abu Dhabi.
|
| 18.05.2009 |
Forseti á
fund með dr. Sultan Al-Jaber og sendimönnum frá Abu Dhabi um byggingu
Masdarborgar en henni er ætlað að vera fyrsta borg veraldar sem grundvölluð
er á lögmálum um hreina orku og umhverfisvæna lífshætti. Íslenskir
sérfræðingar í nýtingu jarðhita hafa tekið þátt í þróun borgarinnar. Forseti
hefur átt samstarf við forystumenn Masdarborgar, tekið þátt í heimsráðstefnu
um hreina orku sem skipulögð var í tengslum við Masdar og á einnig sæti í
dómnefnd um alþjóðleg orkuverðlaun sem ætlað er líkt og Masdarborg að stuðla
að auknu hlutfalli hreinnar orku í veröldinni.
|
| 19.05.2009 |
Forseti tekur
þátt í símafundi stjórnar Special Olympics þar sem rætt var um árangurinn af
heimsleikunum í vetraríþróttum í Idaho í febrúar og starfsemi samstakanna
víða um heim á komandi mánuðum og misserum er Special Olympics mun halda
fjölda svæðismóta og landsmóta. Einnig var rætt um rekstur samtakanna og það
að tekist hefur að tryggja tekjur þeirra þrátt fyrir efnahagslega erfiðleika
víða í veröldinni. Vefur Special
Olympics.
|
| 19.05.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi nemenda og kennara frá Grunnskóla Hofsóss og ræðir við þá um sögu
Bessastaða og forsetaembættið.
|
| 20.05.2009 |
Forseti tekur
á móti starfsmönnum félagsmálaráðuneytisins og samgönguráðuneytisins og ræðir
við þá um sögu Bessastaða.
|
| 21.05.2009 |
Forseti sækir vorsýningu fimleikadeildar Ármanns þar sem iðkendur úr
yngri aldursflokkum sýndu árangur vetrarstarfsins ásamt Jóhönnu Rakel
Jónasdóttur sem varð Norðurlandameistari í fimleikum og blönduðum
fimleikahópi sem varð í öðru sæti á Norðurlandamóti.
|
| 22.05.2009 |
Forseti sækir
sýningu á færeysku óperunni Í Óðamansgarði sem sýnd er í tengslum við
Listahátíð en óperan er samvinnuverkefni þjóðleikhúsanna á Íslandi og í
Færeyjum.
|
| 23.05.2009 |
Forseti sækir
sýningu á nýrri íslenskri óperu sem gerð er eftir sögunni Hel sem Sigurðar
Nordal samdi á yngri árum. Óperan er á vegum leikhópsins hr. Níels og samdi
Sigurður Sævarsson tónlistina. Flutingur óperunnar er liður í Listahátíð í
Reykjavík.
|
| 23.05.2009 |
Forseti sækir
þrenna tónleika í röðinni Stofutónleikar Listahátíðar sem haldnir eru á
heimilum tónlistarmanna vítt og breitt um borgina.
|
| 23.05.2009 |
Forseti ræðir
við bandaríska fræðimanninn og kvikmyndagerðarmanninn Charles H. Ferguson sem
vinnur að gerð hemildamyndar um hina alþjóðlegu fjármálakreppu. Ferguson
hlaut sérstök verðlaun á Sundance kvikmyndahátíðinni árið 2007 fyrir
heimildamynd sína um Íraksstríðið en sú mynd var líka tilnefnd til Óskarsverðlauna.
Ferguson hefur einnig gefið út bækur um viðskiptalíf og efnahagsmál.
Heimildamyndin sem hann vinnur nú að er gerð á vegum Sony Pictures Classics.
|
| 24.05.2009 |
Forseti tekur
á móti þátttakendum í alþjóðlegum sumarbúðum barna, en hópar frá Íslandi fara
til nokkurra landa í Evrópu, Suður-Ameríku og Asíu.
|
| 24.05.2009 |
Forseti sækir
Íslandsmót Special Olympics í knattspyrnu sem fram fór á KR svæðinu. Sex lið
tóku þátt í mótinu og afhenti forseti verðlaun í lok þess. Mótið er liður í
samvinnu Special Olympics á Íslandi og eldri knattspyrnufélaga í landinu, þar
á meðal KR, en Special Olympics starfa innan Íþróttasambands fatlaðra. Myndir
|
| 25.05.2009 |
Forseti tekur
við hljóðbókinni Björt framtíð sem gefin er út á vegum og til
styrktar MND félaginu. Í bókinni eru
hugleiðingar fjölda Íslendinga um framtíð þjóðarinnar og ávarp forseta. Í
útgáfuathöfninni fluttu Guðjón Sigurðsson formaður MND félagsins og forseti
ávörp.
|
| 26.05.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Frakklands á Íslandi frú Caroline Dumas sem afhenti
trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um traust samband þjóðanna, víðtæk
tengsl í menningu og vísindum, vaxandi áhuga á norðurslóðum og hvernig
fylgjast má með loftslagsbreytingum. Þá var einnig rætt um þróun Evrópumála.
|
| 26.05.2009 |
Forseti tekur
á móti kennurum frá Bretlandi og Spáni ásamt íslenskum samstarfsmönnum þeirra
en hópurinn vinnur að verkefni í umhverfisfræðslu.
|
| 27.05.2009 |
Forseti tekur
á móti fjölda listamanna sem fram koma á Listahátíð í Reykjavík sem og
stjórnendum hátíðarinnar, starfsfólki og stuðningsaðilum. Forseti er verndari
hátíðarinnar.
|
| 27.05.2009 |
Forseti sækir
samkomu MS félagsins sem haldin er í tilefni af alþjóðlega MS deginum.
Forseti flutti ávarp í upphafi dagskrárinnar og fjallaði um framlag MS
félagsins til að auka skilning þjóðarinnar á þessum erfiða sjúkdómi og efla
stuðning við sjúklinga og fjölskyldur þeirra. Alþjóðlega MS deginum er ætlað
að styrkja baráttu hliðstæðra félaga og stuðla að aukinni alþjóðlegri
samvinnu í rannsóknum til að stöðva framgang MS sjúkdómsins og áhrif hans.
|
| 28.05.2009 |
Forseti
afhenti Íslensku
menntaverðlaunin við hátíðlega athöfn í Hofsstaðaskóla í Garðabæ.
Verðlaunin hlutu: Í flokki skóla, Norðlingaskóli í
Reykjavík. Mynd.
Í flokki kennara, Þorvaldur Jónasson myndmennta-
og skriftakennari. Mynd.
Í flokki ungra kennara, Sylvía
Pétursdóttir. Mynd.
Í flokki námsefnishöfunda, Helgi Grímsson skólastjóri.
Mynd.
Ítarlegar greinargerðir um framlag verðlaunahafa fylgdu verðlaununum og er
þær að finna við nöfn hvers verðlaunahafa. Myndir frá
athöfninni. Fréttatilkynning.
|
| 28.05.2009 |
Forseti tekur
þátt í útskrift fyrstu nemendanna úr flutningaskóla Samskipa sem fyrirtækið
stofnaði í fyrra til að efla starfsmenntun og auka þjálfun starfsmanna sinna.
Athöfnin fór fram í glæsilegum höfuðstöðvum Samskipa og flutti forseti ávarp
þar sem hann lagði áherslu á mikilvægi samfelldrar menntunar og hvatti
fyrirtæki til að fylgja í þessum efnum fordæmi Samskipa. Myndir
|
| 28.05.2009 |
Forseti
heimsækir Múlalund og tekur þátt í hátíðahöldum í tilefni af 50 ára afmæli
Múlalundar sem stofnaður var af SÍBS til að auðvelda fötluðu fólki að hasla
sér völl á vinnumarkaði. Forseti fluti ávarp þar sem hann rifjaði upp
viðhorfið til berklaveikinnar fyrir háflri öld og ræddi hinn mikla árangur
sem Múlalundur hefði náð, ekki aðeins sem fyrirtæki heldur líka í að breyta
viðhorfi samfélagsins til þess hvað einstaklingar geta gert og hverju
samtakamáttur getur áorkað. Myndir
|
| 29.05.2009 |
Forseti afhenti tilnefningar til leikhúsverðlauna Grímunnar. Athöfnin fór fram í
Borgarleikhúsinu. Forseti flutti stutt ávarp. Verðlaunin verða afhent á
hátíðarsamkomu í Borgarleikhúsinu 16. júní. Forseti er verndari
Grímunnar.
|
| 29.05.2009 |
Forseti er
viðstaddur setningu norrænar frímerkjasýningar NORDIU2009 en það er í fimmta sinn sem
hún er haldin á Íslandi. Á sýningunni eru fjölmörg afar merk söfn íslenskra
frímerkja allt frá fyrstu útgáfum þeirra. Forseti skrifar ávarp í
sýningarskrá. Ávarpið á
íslensku. Ávarpið
á ensku.
|
| 30.05.2009 |
Forseti á
fund með Wang Ronghua, fyrrum sendiherra Kína á Íslandi, um margvísleg
tækifæri til að auka samvinnu Íslands og Kína á sviðum menningar, vísinda og
viðskipta.
|
| 30.05.2009 |
Forseti sækir
húslestra á heimilum rithöfundanna Lindu Vilhjálmsdóttur og Þórarins Eldjárn.
Röð húslestra á heimilum skálda og rithöfunda er liður í Listahátið í
Reykjavík.
|
Júní
|
| 01.06.2009 |
Forsetahjónin
sækja Smáþjóðaleikana á Kýpur. Sjá fréttatilkynningu.
|
| 03.06.2009 |
Forseti
heimsækir íslenskt íþróttafólk á Smáþjóðaleikunum sem haldnir eru á Kýpur og
fylgist með keppni þeirra m.a. í sundi, fimleikum, siglingum, blaki, júdó og
tennis. Rúmlega 170 íslenskir þátttakendur eru á Smáþjóðaleikunum sem fram
fara í þessari viku.
|
| 04.06.2009 |
Forseti á
fund með Dimitris Christofias forseta Kýpur. Á fundinum var rætt um samvinnu
smárra þjóða í Evrópu, árangur Kýpur og Íslands við nýtingu hreinnar orku og
hugsanlega lausn á langvarandi deilum um skiptingu eyjarinnar en forseti
Kýpur lýsti ítarlega tilraunum sínum til að ná samkomulagi við forystusveit tyrkneska
minnihlutans sem skapað gæti grundvöll að nýju stjórnskipulagi á Kýpur og
tryggt friðsamlega sambúð allra eyjarbúa. Þá fjallaði forsetinn einnig um
reynslu Kýpur og annarra smárra þjóða af aðild að Evrópusambandinu. Fréttatilkynning.
Myndir.
|
| 11.06.2009 |
Forseti tekur
á móti starfsmönnum Stofnunar Árna Magnússonar sem kynna sér sögu Álftaness
og Bessastaða.
|
| 12.06.2009 |
Forseti sækir
hátíðarsýningu Freyvangsleikhússins í Þjóðleikhúsinu á rokksöngleiknum
Vínlandi eftir Helga Þórsson. Sýningin var valin athyglisverðasta
áhugamannaleiksýning ársins en venja er að slíkri sýningu sé boðið í
Þjóðleikhúsið á sérstaka hátíðarsýningu.
|
| 12.06.2009 |
Forseti á
fund með Wallace lávarði, fyrrum prófessor í alþjóðamálum og núverandi
talsmanni Frjálslynda flokksins í lávarðadeild breska þingsins. Fundinn sat
einnig Alyson Bailes kennari við Háskóla Íslands. Wallace lávarður hélt
fyrirlestur um Evrópusambandið á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
|
| 12.06.2009 |
Forseti á
fund með framkvæmdastjóra Íslensku menntaverðlaunanna Guðbrandi Stíg
Ágústssyni þar sem rætt var um skipun nýrra manna í dómnefndir verðlaunanna
en tveir nefndarmenn ganga nú úr hvorri dómnefnd samkvæmt reglugerð
verðlaunanna.
|
| 12.06.2009 |
Forseti tekur
á mót hópi nemenda RES Orkuskólans. Þeir eru
frá fjórtán þjóðlöndum og hafa stundað nám í RES skólanum á Akureyri. Skólinn
sem er alþjóðlegur orkuskóli var stofnaður til að fjalla um nýtingu ýmissa
tegunda af hreinum orkugjöfum. Nemendur lýstu almennri ánægju með námið í
skólanum og hvernig það getur nýst í heimalöndum þeirra.
|
| 12.06.2009 |
Forseti flytur ávarp um skipalestir, Arctic Convoys, í síðari
heimsstyrjöldinni . Ávarpið verður í upphafi mynddisks, DVD, um ráðstefnu sem
haldin var á Íslandi 2008 þar sem fjallað var um hina merku sögu þessara
skipalesta.
|
| 13.06.2009 |
Forseti
afhenti styrki sem veittir voru úr háskólasjóði KEA til ýmissa
rannsóknarverkefna og fræðistarfa. Athöfnin fór fram í húsakynnum Háskólans á
Akureyri að lokinni háskólahátíð. Í upphafi flutti forseti ávarp þar sem hann
m.a. þakkaði Þorsteini Gunnarssyni rektor fyrir farsælt samstarf og forystu
hans í málefnum háskólans, en Þorsteinn hefur verið helsti hvatamaður að
þátttöku skólans í alþjóðlegu samstarfi í rannsóknum á norðurslóðum. Myndir
|
| 13.06.2009 |
Forseti er
viðstaddur útskriftarhátíð Háskólans á Akureyri en það var síðasta
háskólahátíð Þorsteins Gunnarssonar sem rektors því hann lætur senn af
störfum eftir fimmtán ára rektorsferil. Mynd
|
| 15.06.2009 |
Forseti á
fund með sendiherra Kanada á Íslandi Anna Blauveldt sem senn lætur af
störfum. Rætt var um aukin samskipti landanna á undanförum árum, vaxandi
mikilvægi norðurslóða og styrk samfélags fólks af íslenskum ættum í Kanada.
|
| 15.06.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Kýpur á Íslandi hr. George C. Kasoulides sem
afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um samvinnu smárra ríkja í
Evrópu og nýlega heimsókn forseta Íslands til Kýpur þar sem hann var
viðstaddur Smáþjóðaleikana og átti fundi með forseta Kýpur og öðrum
ráðamönnum. Áhugi er á að auka samvinnu landanna á sviði hreinnar orku en
ýmsum athyglisverðum aðferðum hefur verið beitt á Kýpur til að auka hlutdeild
hreinnar orku í orkubúskap landsins.
|
| 15.06.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Spánar á Íslandi hr. Santiago Salas Collantes sem
afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um samvinnu landanna, mikilvægi
sjávarútvegs, aukinn áhuga á spænsku og spænskri menningu sem og viðhorf
Spánverja til þróunar Evrópusambandsins.
|
| 16.06.2009 |
Forseti afhendir Helga Tómassyni heiðursverðlaun Grímunnar fyrir afrek
hans á sviði danslistar. Afhendingin fór fram á hátíðarkvöldi Grímunnar í
Borgarleikhúsinu.
|
| 16.06.2009 |
Forseti á
fund með Andrési Arnalds fagmálastjóra Landgræðslu ríkisins og Luca
Montanarella yfirmanni Joint Research Center hjá Evrópuráðinu um reynslu
Íslendinga í landgræðslu, hvernig samvinna við bændur hefur skilað miklum
árangri og hvernig hin ýmsu lönd í Evrópu geta nýtt sér reynslu Íslendinga
til að auka árangur landgræðslu. Einnig var fjallað um mikilvægi þess að
aðgerðir í landgræðslumálum og endurheimt landgæða yrðu liður í alþjóðlegu
samkomulagi um aðgerðir í loftlagsmálum sem rædd verða á fundinum í
Kaupmannahöfn í desember.
|
| 16.06.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Hondúras á Íslandi frú Iliana Waleska Pastor
Melghem sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um möguleika á
nýtingu jarðhita í Miðameríku, þjálfun sem veitt er í Jarðhitaháskóla
Sameinuðu þjóðanna og Sjávarútvegsháskóla Sameinuðu þjóðanna sem fram fer á
Íslandi sem og hvernig reynslan af samvinnu Norðurlanda getur nýst ríkjum í
Miðameríku til að auka og styrkja samvinnu sín á milli. Mynd
|
| 16.06.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Kasakstans á Íslandi hr. Kairat Abusseitov sem
afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um áhuga Kasakstans á að þróa
aukin tengsl við Ísland, sækja í reynslusjóð á sviði nýtingar á hreinni orku
og kanna möguleika á flugsamgöngum og viðskiptum með sjávarafurðir. Mynd
|
| 16.06.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Eistlands á Íslandi hr. Arti Hilpus sem afhenti
trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um samvinnu Norðurlanda og
Eystrasaltsríkjanna, samskipti Íslands og Eistlands á undanförnum árum og
nauðsyn þess að styrkja þau í framtíðinni. Einnig var fjallað um reynslu
Eistlands af aðildinni að Evrópusambandinu og sambúð Eista við Rússland. Mynd
|
| 16.06.2009 |
Forseti á
fund með sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi Percy Westerlund sem senn
lætur af störfum. Rætt var um þróun Evrópusambandsins á undanförnum árum,
viðhorf til aðildar nýrra ríkja, reynslu sendiherrans innan Evrópusambandsins
og ýmis vandamál sem kunna að koma upp í hugsanlegum samningaviðræðum Íslands
og Evrópusambandsins.
|
| 16.06.2009 |
Forseti á
fund með fráfarandi sendiherra Síles á Íslandi hr. Roberto Alonso-Budge sem
senn lætur af störfum. Rætt var um möguleika á sviði orkumála og þróun í
sjávarútvegi sem og áhrif hinnar alþjóðlegu fjármálakreppu á ýmis ríki og
reynslu Síles á fyrri tímum af bankakreppum.
|
| 17.06.2009 |
Forseti tekur
á móti sveit erlendra sendiherra sem taka þátt í hátíðarhöldum
þjóðhátíðardagsins og hafa komið til landsins sérstaklega af því tilefni.
|
| 17.06.2009 |
Forseti sæmir
tíu Íslendinga fálkaorðunni við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Fréttatilkynning.
Mynd
|
| 17.06.2009 |
Forseti tekur
þátt í hátíðarhöldum á Austurvelli, leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að
styttu Jóns Sigurðssonar og sækir guðþjónustu í Dómkirkjunni.
|
| 18.06.2009 |
Forseti ræðir
við unga menn sem stjórna þætti á nýrri útvarpssöð Garðabæjar.
|
| 18.06.2009 |
Forseti
kveður sendiherra Austurríkis á Íslandi sem senn lætur af störfum. Rætt var
um góð samskipti landanna, reynslu ýmissa ríkja af aðild að Evrópusambandinu
og nýjar höfuðstöðvar fyrir alþjóðlega orkustofnun.
|
| 18.06.2009 |
Forseti á
fund með Hauki Arnþórssyni og fleiri sérfræðingum í upplýsingatækni um
hugmyndir þeirra varðandi nýja áfanga í þróun upplýsingasamfélagsins þar sem
möguleikar nýrrar nettækni væru nýttir á ábyrgan og heildstæðan hátt.
|
| 18.06.2009 |
Forseti á
fund með Eben Moglen sérfræðingi í frjálsum og opnum hugbúnaði og fulltrúum
áhugamanna um aukna notkun hans á Íslandi. Moglen sem verið hefur ráðgjafi
fjölmargra fyrirtækja og stofnana víða um heim telur að Ísland sé kjörinn
vettvangur til að þróa frjálsan aðgang að hugbúnaði en slíkar breytingar
myndu einnig spara þjóðarbúinu gríðarlega fjármuni.
|
| 18.06.2009 |
Forseti sækir
ráðstefnu sem haldin er í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur um nýtingu jarðhita á
heimsvísu og alþjóðlega samvinnu á sviði rannsókna, m.a. hlutverk
jarðhitaráðs Evrópu í þessu sambandi.
|
| 18.06.2009 |
Forseti á fund með indverska jöklafaranum Satyabrata Dam, Þorsteini
Þorsteinssyni jöklafræðingi og Dagfinni Sveinbjörnssyni þar sem rætt var um
samvinnu íslenskra og indverskra jöklafræðinga, meðal annars á Kolahoi í
Kasmír, Chota Shigri í Himachal Pradesh og East Rathong í Sikkim. Forseti
hafði frumkvæði um þetta rannsóknarsamstarf.
|
| 19.06.2009 |
Forseti
kynnir sér starfsemi Asiaq
stofnunarinnar í Nuuk sem stundar skipulegar mælingar á veðurfari
og vatnsbúskap á Grænlandi. Slíkar upplýsingar eru lagðar til grundvallar við
skipulagningu byggða og framvkvæmda og veita yfirsýn yfir veðurfar og
vatnsbúskap hins víðáttumikla lands. Myndir.
|
| 19.06.2009 |
Forseti
heimsækir Náttúrufræðistofnun
Grænlands í Nuuk og kynnir sér víðtækar rannsóknir sem fram fara á
hafinu, sjávarís, jöklum og dýralífi. Grænlenskir vísindamenn hafa á
undanförnum árum þróað ýmis rannsóknarverkefni sem sýna áhrif og hraða
loftslagsbreytinga og hvaða breytingar þær hafa í för með sér. Slíkar
rannsóknir eru mikilvægar fyrir alþjóðlega þekkingu og geta orðið grundvöllur
að nauðsynlegum ákvörðunum í loftslagsmálum. Jafnframt var rætt um mikilvægi
samstarfs þjóða á norðurslóðum á sviði rannsókna og vísinda. Myndir.
|
| 20.06.2009 |
Forseti er
viðstaddur opnun sýningarinnar Greeland Expo - Business and Investment
Potential sem haldin er til að kynna möguleika Grænlendinga til að styrkja
efnahagslíf sitt og útflutning á komandi árum, víðtækar auðlindir landsins og
þau tækifæri sem felast í nýrri tækni. Að lokinni setningarathöfn skoðaði
forseti sýninguna í fylgd borgarstjóra Nuuk. Myndir.
|
| 20.06.2009 |
Forseti horfir á landsleik Íslands og Grænlands í handbolta sem fram fór
í Nuuk. Leiknum lauk með jafntefli en hann fór fram daginn áður en
hátíðarhöld vegna hins nýja sjálfstæðisáfanga hefjast í Grænlandi. Myndir.
|
| 21.06.2009 |
Forseti tekur
þátt í fjölsóttum hátíðarhöldum í höfuðborg Grænlands Nuuk í tilefni af
gildistöku nýrra sjálfstjórnarlaga sem færa Grænlendingum aukið vald í eigin
málum. Hátíðarhöldin hófust á gamla hafnarsvæðinu þar sem elstu byggingar
bæjarins mynduðu fagra umgjörð um hina virðulegu athöfn. Borgarstjórinn í
Nuuk og forsætisráðherra Grænlandsstjórnar fluttu ræður. Athöfnina sóttu
þúsundir Grænlendinga og auk þess fjölmargir erlendir gestir auk dönsku
konungsfjölskyldunnar. Síðan var gengið til guðþjónustu og að henni lokinni
var athöfn í þinghúsinu þar sem forseti grænlenska þingsins og
forsætisráðherra Dana fluttu ræður og Margrét Danadrottning afhenti
sjálfstjórnarlögin. Að loknum hádegisverði átti forseti ásamt öðrum fulltrúum
Íslands stuttan fund með forsætisráðherra Grænlands. Í gær sátu forsetahjónin
ásamt öðrum erlendum gestum kvöldverð í boði grænlenska þingsins en viðburðum
dagsins lýkur með hátíðarkvöldverði í tilefni af þessum sögulegu tímamótum. Myndir.
|
| 22.06.2009 |
Forseti á
fund með forystumönnum alþjóðlegrar vatnsaflsráðstefnu sem haldin er á
Íslandi næstu daga. Alþjóðasamtökin International
Hydropower Association efna til ráðstefnunnar en hana sækja forystumenn
og sérfræðingar víða að úr veröldinni. Ráðstefnan hefst miðvikudaginn 24.
júní en daginn áður verður fundur í ráðgjafaráði samtakanna og mun forseti
ávarpa þann fund.
|
| 23.06.2009 |
Forseti á
fund með prófessor Kuang Shangfu forseta rannsóknarstofnunar í Kína sem
fjallar um vatnsbúskap og orkumál landsins. Rætt var um reynslu Íslendinga af
virkjun vatnsafls og breytingar á orkukerfi landsins á síðustu öld frá olíu
og kolum til hreinna orkugjafa. Kuang Shangfu sækir alþjóðaráðstefnu um
vatnsorku sem haldin er í Reykjavík.
|
| 23.06.2009 |
Forseti tekur
á móti fulltrúum á alþjóðlegri ráðstefnu um þróun stærðfræðikennslu sem
haldin var á Íslandi með þátttöku stærðfræðinga, kennara og sérfræðinga víða
að úr veröldinni.
|
| 23.06.2009 |
Forseti
flytur ávarp á fundi alþjóðlegs ráðgjafaráðs um nýtingu vatnsafls sem kemur
saman í aðdraganda alþjóðlegrar vatnsaflsráðstefnu sem samtökin International
Hydropower Association efna til í Reykjavík. Í ráðgjafaráðinu sitja fulltrúar
stofnana og fyrirtækja víða að úr veröldinni ásamt sérfræðingum og
vísindamönnum. Að loknu ávarpi tekur forseti þátt í fundi ráðsins. Ávarp forseta.
|
| 24.06.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi ungra athafnamanna frá Bandaríkjunum sem starfa innan samtakanna
Young Presidents Organization. Í lok fundarhalda sinna á Íslandi færa þeir
Íþróttasambandi fatlaðra sérstakan styrk í móttöku á Bessastöðum.
|
| 24.06.2009 |
Forseti á
fund með sendiherra Kína Zhang Keyuan sem senn lætur af störfum. Rætt var um
vaxandi samstarf Kína og Íslands á undanförnum árum, áform Kína um að nýta í
vaxandi mæli hreina orku, og mikilvægi jarðhitaþekkingar sem Ísland hefur
þróað. Einnig var rætt um framlag Íslands á sviði upplýsingatækni og starfsþjálfunar,
meðal ananrs flugþjálfun. Loks var rætt var um árangur af heimsóknum forseta
til Kína á undanförnum árum og viðræðum hans við forseta Kína Kína Hu Jintao.
|
| 24.06.2009 |
Forseti sækir
opnunarfund alþjóðlegrar ráðstefnu um vatnsorku sem haldin er í Reykjavík á
vegum International Hydropower Association. Ráðstefnuna sækja forystumenn
orkufyrirtækja, sérfræðingar, vísindamenn, fulltrúar almannasamtaka og ýmsir
aðrir, víða að úr veröldinni.
|
| 25.06.2009 |
Forseti á
fund með forystumönnum kínverskra orkufyrirtækja og orkustofnana en þeir taka
þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um nýtingu vatnsafls sem haldin er á Íslandi.
Rætt var um reynslu Íslendinga og Kínverja af nýtingu vatnsafls, hugsanlega
tæknilega samvinnu og framtíðarhlutverk vatnsafls í breytingum á orkubúskap
Kínverja og veraldarinnar.
|
| 25.06.2009 |
Forseti sæmir
Hr. Kanji Ohashi aðalræðismann Íslands í Kyoto riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu fyrir störf hans í þágu Íslands og íslenskra hagsmuna.
|
| 25.06.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi ungmenna frá samfélögum fólks af íslenskum ættum í Kanada og
Bandaríkjunum sem dvelja á Íslandi á vegum Snorraverkefnisins en það er
samstarf sem stuðlar að auknum tengslum við yngri kynslóðir Vesturíslendinga.
Verkefnið hefur skilað miklum árangri á undanförnum árum.
|
| 25.06.2009 |
Forseti á
fund með sendiherra Hollands hr. Ronald van Roeden sem senn lætur af störfum.
Rætt var um farsælt samstarf landanna á undanförnum áratugum. Erfiðleika við
að leysa vandamál sem upp komu í kjölfar bankahrunsins sem og þróun
Evrópusambandsins á komandi árum en sendiherrann verður á næstunni sérlegur
ráðgjafi forsætisráðherra Hollands í Evrópumálum.
|
| 25.06.2009 |
Forseti á
fund með bandaríska prófessornum Michael Porter sem er meðal fremstu
sérfræðinga heims í samkeppnishæfni þjóða og hefur í áratugi verið meðal
virtustu kennara Harvard Business School. Rætt var um þróun Íslands á
undanförnum árum og áratugum, afleiðingar bankahrunsins og hinnar alþjóðlegu
fjármálakreppu, tækifæri Íslands á fjölmörgum sviðum á komandi árum, bæði
vegna fjölmargra auðlinda og hæfileika og þekkingar, ríkulegs mannauðs.
|
| 26.06.2009 |
Forseti
flytur ávarp við setningu landsþings Kvenfélagasambands Íslands sem haldið er
í Stykkishólmi. Setningin fór fram í Vatnasafninu. Ræða forseta.
|
| 26.06.2009 |
Forseti
heimsækir nýstofnað Eldfjallasafn í Stykkishólmi sem myndað er á grundvelli
safns dr. Haraldar Sigurðssonar jarðfræðings. Áformað er að safnið verði
grundvöllur fræðslu um náttúru Snæfellsness og eldfjöll á Íslandi og víðar í
veröldinni. Vefur safnsins.
|
| 26.06.2009 |
Forseti sækir
lokaathöfn alþjóðlegrar ráðstefnu um nýtingu vatnsafls sem haldin er á vegum
International Hydropower Association og flytur ávarp í hátíðarkvöldverði.
|
| 27.06.2009 |
Forseti sækir
hátíð sem haldin er á Borg í Grímsnesi og flytur ávarp á málþingi um
borgarskáldið Tómas Guðmundsson sem ættaður var frá Efri-Brú í Grímsnesi.
Einnig skoðar forseti handverkssýningu með verkum karla og kvenna úr
héraðinu, skoðar myndasýningu sem helguð er skáldinu og sveitinni hans.
Hollvinir Grímsness skipuleggja hátíðina. Ávarp forseta.
|
Júlí
|
| 01.07.2009 |
Forseti á
fund með prófessor Balbir B. Bhasin sem kennt hefur Asíufræði við Háskólann í Reykjavík. Rætt var um þróun
einstakra landa í Asíu, vaxandi áhuga íslenskra stúdenta á að fræðast um
þessa heimsálfu og þá lærdóma sem hann dregur af dvöl sinni á Íslandi.
Fundinn sátu einnig nokkrir nemendur Háskólans í Reykjavík.
|
| 01.07.2009 |
Forseti tekur
á móti fyrstu eintökum af nýrri myndabók um Ísland. Kristján Ingi Einarsson
hefur tekið myndirnar og textinn er eftir Ara Trausta Guðmundsson rithöfund
og jarðfræðing. Bókin ber heitið Kjarni Íslands - The Essence of Iceland og
kemur út á nokkrum tungumálum. Forseti skrifar formála að bókinni. Formáli
forseta.
|
| 03.07.2009 |
Forseti tekur
á móti sendiherra Kína á Íslandi Zhang Keyuan ásamt starfsfólki sendiráðsins
en sendiherrann lætur nú formlega af störfum á Íslandi þar eð hann mun taka
við annarri ábyrgðarstöðu innan kínversku utanríkisþjónustunnar.
|
| 03.07.2009 |
Forseti ræðir
við fulltrúa japanska fisksölufyrirtækisins Daito Gyorui og íslenska
samstarfsaðila þess um aukin samskipti á sviði viðskipta með sjávarafurðir.
Einnig var rætt um þróun markaðar bæði í Japan og annars staðar í veröldinni
fyrir sjávarafurðir á komandi árum.
|
| 06.07.2009 |
Forseti og
forsetafrú taka þátt í hátíðarhöldum í Litháen í tilefni þess að 1000 ár eru
frá upphafi þjóðarinnar. Forseti Litháens bauð forseta Íslands að taka þátt í
hátíðarhöldunum en einnig eru viðstaddir aðrir þjóðhöfðingjar Norðurlanda,
þjóðhöfðingjar Eystrasaltslanda, Póllands og Úkraínu auk ýmissa annarra
forystumanna. Fréttatilkynning.
Ávarp forseta.
Myndir.
|
| 07.07.2009 |
Forseti ræðir við þáttagerðarmenn frá lettneska sjónvarpinu (rás 1) um
náttúru Íslands, aðdráttarafl ýmissa staða fyrir ferðamenn, samspil jökla og
eldfjalla og annað sem vekur athygli erlendra gesta á íslenskri náttúru og
íslensku þjóðlífi. Viðtalið verður sýnt í þættinum Nordic Style hjá
sjónvarpsstöðinni.
|
| 07.07.2009 |
Forseti á
fundi með Valdas Adamkus forseta Litháens og nýkjörnum forseta landsins frú
Dalia Grybauskaitë sem tekur við embætti næstkomandi sunnudag. Fréttatilkynning.
Myndir.
|
| 08.07.2009 |
Forseti á
fund með Bjarna Bjarnasyni stjórnarmanni í International
Hydropower Association en samtökin héldu nýlega alþjóðlega ráðstefnu
um nýtingu vatnsorku á Íslandi. Ráðstefnan þótti mjög árangursrík og ýmsar
tillögur hafa komið fram um hvernig hún getur nýst sem grundvöllur að
stefnumótun og framkvæmdum á þessu sviði. Forseti var verndari ráðstefnunnar
og rætt var um frekara framlag hans á þessum vettvangi.
|
| 09.07.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi einstæðra mæðra sem tekið hafa þátt í námskeiðum og fræðslu á
vegum Námsflokkanna og Reykjavíkurborgar. Námskeiðunum er ætlað að auðvelda
mæðrunum aðgang að öðru námi og styrkja stöðu þeirra í samfélaginu.
|
| 10.07.2009 |
Forseti er
viðstaddur setningu landsmóts UMFÍ á Akureyri en hundrað ár eru liðin frá því
fyrsta landsmótið var haldið. Landsmótið nú er það fjölmennasta frá upphafi
og fer að hluta til fram á nýjum íþróttaleikvangi á Akureyri sem vígður er af
þessu tilefni. Ávarp forseta.
|
| 11.07.2009 |
Forseti
fylgist með ýmsum keppnisgreinum á landsmóti UMFÍ á Akureyri: frjálsum
íþróttum, siglingum, dansi, dráttarvélaakstri, bocciakeppni fatlaðra og
fleiru. Þá sótti forseti ráðstefnu ungs forystufólks í æskulýðs- og
íþróttasamtökum í Evrópu þar sem fjallað var um skipulag landsmóta og
héraðsmóta; forseti ávarpaði ráðstefnuna og svaraði fyrirspurnum. Einnig sat
forseti hádegisverð með forystu UMFÍ og landsmótsnefndum þar sem rætt var um
skipulag og undirbúning landsmóta bæði þessa móts á Akureyri og næsta
landsmóts sem verður á Selfossi 2013.
|
| 11.07.2009 |
Forseti sækir
opnun sýningar í Listasafninu á Akureyri. Sýningin ber heitið
Kreppumálararnir og er helguð verkum eftir Gunnlaug Scheving, Jón Engilberts,
Snorra Arinbjarnar og Þorvald Skúlason.
|
| 14.07.2009 |
Forseti ræðir
við tvo hópa nemenda í RES Orkuskólanum sem sækja námskeið í nýtingu hreinnar
orku. Annar hópurinn kemur víða að úr Bandaríkjunum og hinn frá fjölmörgum
öðrum löndum. Á námskeiðunum er fjallað um reynslu Íslendingu af nýtingu
jarðhita og vatnsorku sem og reynslu annarra þjóða af öðrum tegundum hreinnar
orku. RES Orkuskólinn á Akureyri var stofnaður fyrir fáeinum árum og nýtur nú
þegar víðtækrar alþjóðlegrar viðurkenningar. Heimasíða
skólans.
|
| 16.07.2009 |
Forseti sótti
lokahátíð Skapandi sumarhópa Hins hússins þar sem flutt var úrval af
verkefnum sumarsins, tónlist, gjörningar og leikin atriði. Verkefnin
bera samheitið Vængjasláttur.
|
| 16.07.2009 |
Forseti
heimsækir Klúbbinn
Geysi sem sinnir atvinnumálum, námskeiðum og starfsþjálfun
einstaklinga sem þurfa sérstaka þjónustu. Klúbburinn hefur náð miklum árangri
á undanförnum árum og aðstoðað fjölda fólks við að finna fótfestu í lífinu.
Innan hans er lögð sérstök áhersla á að efla hæfileika og styrk einstaklinga.
|
| 20.07.2009 |
Forseti tekur
við boði um að vera viðstaddur opinbera vígslu á Garðarshólma á Húsavík 25.
júlí 2011. Sendiherra Svíþjóðar, Madelene Ströje-Wilkens tók við sams konar
boði til Karls Gústavs Svíakonungs en hann og forseti Íslands eru verndarar
verkefnisins. Garðarshólma er ætlað að vera sögu- og fræðslumiðstöð þar sem
m.a. verður lögð áhersla á sameiginlegan menningararf Íslendinga og Svía og
fjallað verður um samspil gróðureyðingar, loftslagsbreytinga og annarra
umhverfisþátta. Garðarshólmi er kenndur við sænska víkinginn Garðar
Svavarsson sem kom til Húsavíkur í kringum 870 og nefndi landið Garðarshólma.
Forseti átti einnig viðræður við forsvarsmenn Garðarshólma verkefnisins.
|
| 20.07.2009 |
Forseti er
viðstaddur setningu Sænskra daga á Húsavík sem tengjast Mærudögum, hátíð
byggðarlagsins. Fjölbreytt dagskrá setur svip á þessa daga. Forseti flutti
ávarp við setninguna þar sem hann fagnaði hinum fjölmörgu byggðahátíðum sem
haldnar eru í öllum landshlutum og sýna mikinn þrótt og samstöðu íbúanna.
|
| 23.07.2009 |
Forseti ræðir
við bandaríska vísindamanninn dr. Scott Tinker sem vinnur að gerð
heimildarmyndar um orkuauðlindir varaldarinnar. Í viðtalinu við forseta var
einkum rætt um árangur Íslands í nýtingu jarðhita og hvernig sú kunnátta,
tækni og reynsla sem Íslendingar hafa aflað sér getur nýst öðrum þjóðum og
stuðlað að breytingum í orkubúskap veraldarinnar. Heimildarmyndin er styrkt
af bandarískum stjórnvöldum og verður sýnd víða um heim síðar á þessu ári.
|
| 25.07.2009 |
Forseti átti
fund með Vygaudas Ušackas utanríkisráðherra Litháen þar sem rætt var um
samvinnu landanna, þróun mála á norðurslóðum, samskiptin við Rússland sem og
reynslu Litháen af samningum við Evrópusambandið og aðildarumsókn Íslands.
Utanríkisráðherrann hafði fyrr um daginn afhent Alþingi samþykkt litháenska þingsins
þar sem lýst er yfir stuðningi við aðildarumsókn Íslands og þakkaður
stuðningur Íslendinga við sjálfstæðisbaráttu Litháen á sínum tíma. Mynd
|
| 26.07.2009 |
Forseti
heimsækir alþjóðlegt skátamót RoverWay sem haldið er á Úlfljótsvatni. Mótið
sækja um 3000 skátar aðallega frá Evrópulöndum. Forseti skoðaði kynningarbása
skáta frá ýmsum löndum, ræddi við hópa sem ferðuðust um Ísland áður en komið
var að Úlfljótsvatni. Þá ræddi forseti einnig við erlenda og íslenska forystumenn
skátahreyfingarinnar. Mótið þykir í alla staði sérlega vel heppnað. Myndir
|
| 28.07.2009 |
Forseti á
fund með fulltrúum Orkuveitu Reykjavíkur um rannsóknir á jarðhita í Djíbútí
en unnið hefur verið að könnun á nýtingu hans í kjölfar heimsóknar
forseta Djíbútís, Ismail Omar Guelleh, til Íslands í febrúar 2007.
|
| 29.07.2009 |
Forseti á
fund með borgarstjóra Los Angeles, Antonio Villaraigosa, þar sem rætt var um
áhrif fjármálakreppunnar á Íslandi og í Kaliforníu, mikilvægi þess að þróa ný
orkukerfi sem byggjast á sjálfbærum orkulindum og hvað Kalifornía geti lært
af nýtingu jarðhita á Íslandi, bæði hvað snertir tækni og samtengingu ólíkra
orkugjafa.
|
| 31.07.2009 |
Forseti tekur
þátt í setningarathöfn unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið er á Sauðárkróki.
Áætlað er að milli 10 og 20.000 manns muni heimsækja landsmótið og þegar hafa
hátt á annað þúsund ungmenni skráð sig í keppni.
|
| 31.07.2009 |
Forseti á
fund með Stephan Benediktson, dóttursyni skáldsins Stephans G. Stephanssonar
ásamt fjölskyldu hans sem heimsækir slóðir og átthaga skáldsins á Íslandi.
Rætt var um hvernig best væri að efla bókmenntaarfleifð Stephans G.
Stephanssonar og einnig sérstaka styrki fyrir íslenska listamenn, The
Benediktson Fellowship for Icelandic Artists sem Stephan Benediktson og
kona hans hafa stofnað til og felur í sér að íslenskum listamönnum er boðið
að dvelja á Banff listamiðstöðinni í Kanada. Ragnar Kjartansson
myndlistarmaður var sá fyrsti sem hlaut slíkan styrk.
|
Ágúst
|
| 01.08.2009 |
Forseti
kynnir sér ýmsa viðburði og fylgist með keppnisgreinum á unglingalandsmóti
UMFÍ sem haldið er á Sauðárkróki, svo sem keppni í glímu, frjálsum
íþróttum, knattspyrnu, körfubollta, sundi og fleiri greinum svo og söngkeppni
og listasmiðju sem fram fara á mótinu.
|
| 05.08.2009 |
Forseti er
viðstaddur opnun menningarhússins Bergs á Dalvík og flytur ávarp. Menningarhúsið er gjöf Sparisjóðs
Svardæla til íbúa héraðsins. Þar verður bókasafn byggðarlagsins sem og
salarkynni fyrir tónleika, myndlistarsýningar og aðra menningarviðburði.
|
| 07.08.2009 |
Forseti sendi
forseta Filippseyja Gloria Macapagal-Arroyo
samúðarkveðju vegna andláts fyrrum forseta Filippseyja, Corazon Aquino. Í
samúðarkveðjunni vék forseti að baráttu hennar fyrir lýðræði og framförum og
nefndi þá virðingu sem hún hefði jafnan hlotið í filippínska samfélaginu á
Íslandi.
|
| 08.08.2009 |
Forseti tekur
þátt í Fiskideginum
mikla á Dalvík þar sem fram fer fjölþætt dagskrá og fyrirtæki í
sjávarútvegi bjóða gestum og gangandi að neyta afurða sinna.
|
| 09.08.2009 |
Forseti ræðir
við hóp stjórnenda og eigenda japanskra og alþjóðlegra skipafélaga sem
sérhæfa sig í rekstri skemmtiferðaskipa og alþjóðlegum vöruflutningum en þeir
hafa dvalið a Íslandi að undanförnu til að kynna sér landið og náttúru þess.
|
| 11.08.2009 |
Forseti
sendir Shriver fjölskyldunni samúðarkveðjur vegna andláts Eunice Kennedy
Shriver en hún var stofnandi og helsti leiðtogi Special
Olympics, heimshreyfingar í þágu þorskaheftra. Hreyfingin starfar
nú í um 150 löndum. Íþróttaiðkan og þjálfun þroskaheftra hefur skilað
gríðarlegum árangri fyrir miljónir einstaklinga í öllum heimsálfum. Forseti
starfaði ásamt Eunice í alþjóðastjórn Special Olympics.
|
| 11.08.2009 |
Forseti ræðir
við Guðrúnu Ögðu Hallgrímsdóttur um þróun stjórnmálafræðinnar á Íslandi,
stöðu stjórnmálafræðinga og framlag þeirra til þjóðfélagsins. Viðtalinu
verður útvarpað á Rás 1.
|
| 12.08.2009 |
Forseti tekur
á móti fulltrúum á norrænu bændaþingi sem haldið er á Íslandi þar sem einkum
er rætt um áhrif loftslagsbreytinga á fæðuframleiðslu, mikilvægi fæðuöryggis
þjóða og aðra þætti landbúnaðar á komandi árum.
|
| 12.08.2009 |
Forseti ræðir
við Þorstein Gunnarsson arkitekt, Guðlaugu Elísabetu Ólafsdóttur
verkefnisstjóra í Viðey og Önnu Þorbjörgu Þorgrímsdóttur safnstjóra
læknaminjasafnsins í Nesstofu um varðveislu og nýtingu þessara sögufrægu húsa
– Bessastaðastofu, Viðeyjarstofu og Nesstofu.
|
| 12.08.2009 |
Forseti ræðir
við fréttamann ástralska ríkissjónvarpsins ABC um áhrif fjármálakreppunnar á
íslenskt efnahagslíf, þá lærdóma sem draga má af hruni bankanna, viðbrögð
Íslendinga og tækifæri þjóðarinnar á komandi árum í ljósi þeirra auðlinda sem
landið býr yfir.
|
| 15.08.2009 |
Forseti
sendir kveðju sem flutt er á sérstakri hátíðarsamkomu til heilla Walter J.
Hickel níræðum, en hann hefur í áratugi verið einn fremsti forystumaður íbúa
norðurslóða, var ríkisstjóri í Alaska, stofnandi Northern Forum sem eru samtök borga
og héraða í fjölmörgum löndum norðurslóða og einnig um langt árabil einn
helsti stjórnandi Norðurstofnunarinnar
(Institute of the North) en höfuðstöðvar hennar eru í Alaska.
|
| 15.08.2009 |
Forseti á fund með Magnúsi Bjarnasyni stjórnanda Glacier Partners og
Ross Beaty forstjóra Magma orkufyrirtækisins um möguleikana á nýtingu
jarðhita víða um heim. Rætt var um hvernig jarðhiti gæti orðið einn af helstu
orkugjöfum veraldar á komandi áratugum og hvernig tækniþekking Íslendinga
getur nýst á þessum vettvangi. Slíkar breytingar á orkukerfum heimsins séu
nauðsynlegar til að koma í veg fyrir ógnvænlegar breytingar á loftslaginu.
|
| 15.08.2009 |
Forseti ræðir við Sir Martin Sorell, forstjóra og aðaleiganda WPP, eins stærsta almannatengsla-, kynningar-
og auglýsingafyrirtækis í veröldinni en starfsemi þess fer fram í rúmlega 100
löndum. Rætt var um hina alþjóðlegu fjármálakreppu, stöðu Íslands og tækifæri
til endurreisnar og sóknar á komandi árum, sem og þá lærdóma sem draga má af
hliðstæðum atburðum í öðrum löndum.
|
| 17.08.2009 |
Forseti setur
þing fornleifafræðinga, sagnfræðinga, bókmenntafræðinga, náttúruvísindamanna
og annarra fræðimanna þar sem fjallað er um margvísleg rannsóknarefni sem
tengjast tímum víkinga einkum frá 8. öld til 11. aldar. Þingið sem ber heitið
The Viking Congress er hið
sextánda í röðinni en slík þing hafa verið haldin á Norðurlöndum og Bretlandseyjum
í rúmlega hálfa öld. Síðdegis tekur forseti á móti þingfulltrúum á
Bessastöðum. Ávarp forseta.
|
| 19.08.2009 |
Forseti á
samræðufund með hópi erlendra forystumanna, sérfræðinga og stjórnenda,
aðallega frá Banadríkjunum og Bretlandi, um hina alþjóðlegu fjármálakreppu. Á
fundinum var rætt um stöðu Íslands i kjölfar bankahrunsins, áhrif hinnar
alþjóðlegu fjármálakreppu og þau tækifæri og auðlindir sem endurreisn
íslensks efnahagslífs getur byggst á. Hópurinn er hér í boði William McDonaugh, en hann er meðal
helstu áhrifamanna í umhverfismálum í veröldinni. Auk hans tóku þátt í
samræðunum m.a. stjórnendur umhverfismála í ríkisstjórn Kaliforníu og hjá
WalMart verslunarsamsteypunni sem og Martin Sorell forstjóri hins alþjóðlega
kynningar- og auglýsingafyrirtækis WPP.
|
| 28.08.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Kanada á Íslandi hr. Alan Bones sem afhenti
trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um aukna samvinnu Íslands og Kanada
á undanförnum árum og vaxandi viðurkenningu á því að norðurslóðir verði æ
mikilvægari, einkum í ljósi orkuauðlinda sem þar er að finna og nýrra
siglingaleiða sem kunna að opnast vegna loftslagsbreytinga. Einnig var fjallað
um samfélag Vesturíslendinga í Kanada, hve vel hefur tekist að varðveita
arfleifð landnemanna og rækta áhuga nýrra kynslóða á henni. Þátttakan í Snorraverkefninu á undanförnum árum sé til
marks um það sem og listahátíðir ungs fólks sem efnt hefur verið til í
Winnipeg. Að loknum fundinum var móttaka á Bessastöðum þar sem boðið var
áhrifafólki úr atvinnulífi, menningu, þjóðmálum og öðrum sviðum sem sérstök
tengsl hefur við Kanada. Mynd
|
| 28.08.2009 |
Forseti ræðir
við sendiherra Danmerkur Leif Reimann sem senn lætur af störfum. Rætt var um
aukin samskipti Íslands og Danmerkur á undanförnum árum, mikilvægi
norðurslóða og nauðsyn þess að gera hinni merku sameiginlegu sögu landanna
ítarlegri skil. Þá sæmdi forseti sendiherrann stórriddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu með stjörnu vegna framlags hans til að styrkja tengsl
þessara gömlu frændþjóða.
|
| 28.08.2009 |
Forseti ræðir
við sendiherra Svíþjóðar Madeleine Ströje Wilkens sem senn lætur af störfum.
Rætt var um árangursríka og vinsamlega samvinnu Svíþjóðar og Íslands, áformin
um Garðarshólm á Húsavík þar sem sameiginleg saga og menning þjóðanna mun fá
sérstakan sess. Þá sæmdi forseti sendiherrann stórriddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu með stjörnu vegna framlags hennar til aukinna tengsla
þessara gömlu frændþjóða.
|
| 29.08.2009 |
Forseti og
forsetafrú leggja steina frá Bessastöðum í Vörðu til framtíðar sem fjórir
ættliðir reistu á Hólmavík í tengslum við sýninguna Stefnumót á
Ströndum. Myndir.
|
| 29.08.2009 |
Forseti
flytur ávarp við upphaf atvinnu- og menningarsýningar á Hólmavík sem ber
nafnið Stefnumót á Ströndum. Þar kynna fyrirtæki, félagasamtök, skólar,
aðilar í ferðaþjónustu og margvísleg samtök heimamanna starfsemi sína og sýn
á framtíðina. Í ávarpinu áréttaði forseti að samtakamáttur og bjartsýni
Strandamanna gæti vísað þjóðinni veginn á tímum mikilla erfiðleika því löngum
hefði Strandasýsla verið sá landshluti sem mest hefði átt á brattann að
sækja. Ávarp
forseta. Myndir.
|
| 29.08.2009 |
Forseti
skoðar Þróunarsetrið á Hólmavík þar sem ýmis samtök, sérfræðingar og
stofnanir hafa aðsetur en starfsemi þeirra allra miðar að því að skapa ný
tækifæri á grundvelli náttúru, sögu og menningar Strandasýslu. Mynd.
|
| 29.08.2009 |
Forseti
heimsækir Galdrasafnið á Hólmavík,
skoðar sýninguna og ræðir við forystumenn þess um þróun setursins og
rannsóknir á íslenskri þjóðtrú. Forsetafrú afhenti Galdrasafninu
Menningarverðlaun landsbyggðarinnar Eyrarrósina á Bessastöðum fyrir nokkrum
árum. Myndir.
|
| 31.08.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi þátttakenda í Snorri plús verkefninu en það er ætlað fólki af
íslenskum ættum í Kanada og Bandaríkjunum sem heimsækja Ísland til að kynna
sér slóðir forfeðra sinna, menningu og sögu. Verkefnið er bundið við
fullorðið fólk og er framhald af Snorraverkefninu
sem ætlað er ungmennum.
|
| 31.08.2009 |
Forseti tekur
á móti fulltrúum söfnunarinnar www.kjosa.is. Um tíu þúsund Íslendingar hafa
skrifað undir áskorun til forseta Íslands vegna Icesave-samninganna og ber
söfnunin heitið "Í okkar hendur". Skorað er á forseta að synja
lagafrumvarpinu staðfestingar svo fram geti farið þjóðaratkvæðagreiðsla um
málið.
|
September
|
| 02.09.2009 |
Forseti
ákveður að staðfesta lög um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd
ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta
frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda
hjá Landsbanka Íslands hf. með sérstakri áritaðri tilvísun til fyrirvara
Alþingis. Fréttatilkynning.
Yfirlýsing
forseta.
|
| 03.09.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi norrænna sveitarstjórnarmanna og sérfræðinga sem eru þátttakendur
í samvinnu norrænna sveitarstjórna um ýmis verkefni á sviði líffræðilegs
fjölbreytileika, einkum varðandi endurheimt náttúrugæða og varðveislu
dýraríkis. Sveitarstjórnir á öllum Norðurlöndum taka þátt í þessum verkefnum
og þau verða kynnt á heimsþingi um líffræðilegan fjölbreytileika sem haldið
verður á næsta ári.
|
| 04.09.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Danmerkur á Íslandi, Søren Haslund, sem afhenti
trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um vaxandi samvinnu Íslands og
Danmerkur, mikilvægi norðurslóða og árangur lananna á sviði hreinnar orku,
jarðhita og vatnsorku á Íslandi og vindorku í Danmörku. Einnig var rætt um
þróun Evrópumála, og sögu og menningu sem tengir þjóðirnar saman. Að lokinni
afhendingu trúnaðarbréfs var móttaka fyrir áhrifafólk á ýmsum sviðum íslensks
þjóðlífs sem sérstök tengsl hefur við Danmörku. Mynd.
|
| 04.09.2009 |
Forseti á
fund með Roger Dawson, sérfræðingi í samningatækni, sem samið hefur fjölmörg
rit og stjórnar The
Power Negotiating Institute í Kaliforníu. Hann hefur sérhæft sig í
samningum fulltrúa frá ólíkum menningarheimum og haldið fyrirlestra og
námskeið víða um veröld.
|
| 06.09.2009 |
Forseti tekur
á móti fjölmennri sveit vísindamanna, sérfræðinga og tæknifólks fra ýmsum
þjóðlöndum sem taka þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um kolefnisbindingu, Carbon
Storage and Sequestration, sem haldin verður í Hellisheiðarvirkjun næstu
daga. Grundvöllur ráðstefnunnar er samstarf Háskóla Íslands, Columbia
háskóla, háskólans í Toulouse og Orkuveitu Reykjavíkur sem stofnað var
til fyrir nokkrum árum, meðal annars að frumkvæði forseta. Vefsíða
samstarfsverkefnisins.
|
| 07.09.2009 |
Forseti á
fund með Joseph Stiglitz, prófessor í hagfræði sem hlaut Nóbelsverðlaun fyrir
rannsóknir sínar og framlag til þróunar greinarinnar. Rætt var um
fjármálakreppur víða um heim og viðbrögð við þeim, aðgerðir Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins á Íslandi sem frábrugðnar eru í ýmsu fyrri stefnu
sjóðsins, tækifæri Íslendinga til að nýta margvíslegar auðlindir landsins,
hæfni þjóðarinnar til að styrkja efnahagslífið á nýjan leik, eignarhald á
þjóðarauðlindum og hvaða breytingar þurfi að gera á hinu alþjóðlega
fjármálakerfi í ljósi þróunarinnar undanfarin misseri. Einnig var rætt um
orðspor Íslands á alþjóðavettvangi og taldi prófessor Stiglitz að í ljósi
þeirra aðgerða sem Íslendingar hefðu gripið til væri það mun betra en margir
landsmenn héldu.
|
| 07.09.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Svíþjóðar á Íslandi, Anders Ljunggren, sem afhendir
trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um trausta samvinnu landanna,
forsæti Svíþjóðar í Evrópusambandinu um þessar mundir, aðildarumsókn Íslands
að sambandinu, þróun mála á norðurslóðum og sífellt mikilvægari samvinnu
Norðurlanda. Einnig var rætt um áhrif fjármálakreppunnar á Íslandi og hvernig
auðlindir landsins geti orðið grundvöllur uppbyggingar. Að lokinni afhendingu
trúnaðarbréfs var móttaka fyrir áhrifafólk á ýmsum sviðum íslensks þjóðlífs
sem sérstök tengsl hafa við Svíþjóð. Mynd
|
| 07.09.2009 |
Forseti
flytur ræðu við opnun alþjóðlegrar ráðstefnu um kolefnisbindingu sem haldin
er í Hellisheiðarvirkjun. Ráðstefnuna sækja vísindamenn og sérfræðingar frá
mörgum löndum og er viðfangsefni hennar að ræða hvernig hægt er að binda
kolefni og geyma það í jörðu eða neðansjávar og þar með draga verulega úr
hættunni á loftslagsbreytingum á komandi áratugum. Mikilvægur þáttur í ráðstefnunni
er kynning á CarbFix verkefninu sem
unnið hefur verið að á Íslandi í samvinnu Háskóla Íslands, Columbia
University, háskólans í Toulouse og Orkuveitu Reykjavíkur. Það verkefni
spratt upp úr Global
Roundtable of Climate Change sem forseti átti þátt í að koma á fyrir
nokkrum árum og leiddi saman innan þeirra vébanda íslenska vísindamenn og
bandarísku vísindamennina Wally Brocker og Klaus Lachner sem eru meðal þeirra
fremstu í veröldinni á þessu sviði. Ræða
forseta
|
| 08.09.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, János Herman, sem
afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um þá ákvörðun Alþingis að
sækja um aðild að Evrópusambandinu og viðræðuferlið á næstu misserum. Þá var
fjallað um aukið mikilvægi norðurslóða, bæði gagnvart orkuauðlindum og nýjum
siglingaleiðum, mótun nýrrar sjávarútvegsstefnu innan Evrópusambandsins en
stefnt er að því að þeirri vinnu ljúki árið 2012. Þá var einnig fjallað um
árangur Íslands í nýtingu hreinnar orku og nauðsyn ríkja í Evrópu á að virkja
jarðhita og aðrar auðlindir til að geta náð markmiðum alþjóðlegra samninga um
minnkun útblásturs gróðurhúsalofttegunda. Mynd
|
| 08.09.2009 |
Forseti á
fund með Steve Munson og öðrum fulltrúum jarðhita- og orkufyrirtækja í Texas
sem sækja ráðstefnu á Íslandi um kolefnisbindingu. Rætt var um ný tækifæri í
nýtingu hreinnar orku í Bandaríkjunum, möguleika á samvinnu við Íslendinga,
kosti þess að reisa gagnaver á Íslandi og mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu til
að hraða breytingum á orkukerfum víða um heim til að koma í veg fyrir
loftslagsbreytingar.
|
| 09.09.2009 |
Forseti á
fund með Wally Broecker, prófessor við Columbia háskóla, þar sem rætt var um
rannsóknir á loftslagsbreytingum og alþjóðlega samvinnu um losun kolefnis úr
andrúmsloftinu og verulegan árangur ráðstefnunnar sem verið hefur á Íslandi
undanfarna daga.
|
| 10.09.2009 |
Forseti
flytur opnunarræðu
á ráðstefnu um heimskautarétt sem haldin er í Háskólanum á Akureyri en hana
sækja vísindamenn og sérfræðingar frá ýmsum löndum. Meginviðfangsefni
ráðstefnunnar er að ræða þörfina á alþjóðlegum samningum, lögum og
reglugerðum sem móta munu athafnir á norðurslóðum á komandi áratugum, einkum
í ljósi loftslagsbreytinga og bráðnunar íss.
|
| 10.09.2009 |
Forseti á
fund með stjórnarmönnum Rannsóknarþings norðursins um dagskrá fyrirhugaðs
þings í Noregi á næsta ári og helstu áherslur í samstarfi vísindamanna og
forystufólks í þjóðmálum og héraðsstjórnum innan vébanda Rannsónarþingsins.
|
| 10.09.2009 |
Forseti á
fund með Mead Treadwell, formanni norðurskautsrannóknanefndar Bandaríkjanna (US Arctic Research
Commission) en hann hefur um árabil verið einn helsti áhrifamaður
í Alaska varðandi samvinnu vísindamanna og forystumanna á norðurslóðum. Rætt
var um þær breytingar sem eru að verða á afstöðu stjórnvalda í Bandaríkjunum,
þróun Norðurheimskautsráðsins og þær áherslur sem Íslendingar hafa lagt á
þessu sviði. Treadwell tekur þátt í fræðaþingi um heimskautasvæðin sem haldið
verður á Akureyri næstu daga.
|
| 10.09.2009 |
Forseti á
fund með prófessor Klaus Lachner, einum fremsta vísindamanni heims á sviði
kolefnisbindingar, um árangur hinnar alþjóðlegu ráðstefnu sem staðið hefur á
Íslandi undanfarna daga, CarbFix verkefnið sem unnið er að í
Hellisheiðarvirkjun með samvinnu íslenskra, bandarískra og franskra
vísindamanna og hvernig hægt væri á næstu árum að ná verulegum árangri við að
binda kolefni úr andrúmsloftinu. Prófessor Lachner telur að rannsóknir sem
verið hafa á Íslandi á undanförnum árum gætu verið verulegt frmalag í þessu
skyni.
|
| 11.09.2009 |
Forseti tekur
á móti rithöfundum sem sækja Bókmenntahátíð í Reykjavík og aðstandendum
hátíðarinnar.
|
| 11.09.2009 |
Forseti tekur
á móti Kostas Mallios, sem færir forseta að gjöf safn ljósmynda sem teknar
voru í heimsókn þekktra erlendra ljósmyndara til Íslands 2008 en sú ferð var
skipulögð af og í boði Microsoft fyrirtækisins. Markmið hennar var að sýna
Ísland í nýju ljósi og beina sjónum ólíkra ljósmyndara að landinu.
|
| 12.09.2009 |
Forseti tekur á móti kór frá grænlenska bænum Qaqortoq en kórinn
heimsækir Ísland um þessar mundir. Hann syngur á Bessastöðum og trommudansari
leikur listir sínar. Einnig er boðið ýmsum Grænlendingum á Íslandi og öðrum
sem taka þátt í samvinnu landanna.
|
| 14.09.2009 |
Forseti tekur
á móti fulltrúum í Alþjóðaráði hjúkrunarfræðinga sem halda samráðsfund á
Íslandi og ræðir um þróun heilbrigðisþjónustu á Íslandi.
|
| 14.09.2009 |
Forseti
flytur setningarræðu
á þriðju alþjóðlegu ráðstefnunni um nýjar orkulausnir í samgöngum, Driving Sustainability.
Þingið sækja fulltrúar frá ýmsum löndum, sérfræðingar og vísindamenn,
forystumenn borgarmála og borgarskipulags, fulltrúar orkufyrirtækja og
bílaframleiðenda. Ráðstefnan er í ár studd af ráðherraráði Norðurlandaráðs og
tengist meðal annars formennsku Íslands í ráðinu.
|
| 15.09.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi spænskra og íslenskra menntaskólanema úr Menntaskólanum í
Kópavogi og menntaskóla í Bilbao á Spáni en nemendurnir hafa tekið þátt í
sameiginlegum námskeiðum og gagnkvæmum heimsóknum á undanförnum tveimur árum.
Hafa þeir meðal annars heimsótt Galdrasafnið á Ströndum þar sem Baskar komu
mjög við sögu og kynnt sér íslensk-baskneska orðabók sem samin var fyrir
nokkrum öldum.
|
| 15.09.2009 |
Forseti á
fund með indverska hönnuðinum Sulbha Khanna, kennurum úr Garðabæ og
Hafnarfirði og fulltrúum Hönnunarsafns Íslands en Khanna er staddur á Íslandi
til að halda námskeið um aðferðir til að þroska hönnunarhæfileika barna,
meðal annars með því að nýta hversdagsleg hráefni og hvetja til einfaldra
lausna.
|
| 15.09.2009 |
Forseti á
fund með forystumönnum japanska fyrirtækisins Mitsubishi sem sækja alþjóðlega
ráðstefnu um umhverfisvænar samgöngur sem haldin er í Reykjavík. Rætt var um
fjölþætt samstarf Mitsubishi við Ísland sem byggt yrði á aðkomu þeirra í áratugi
að jarðvarmavirkjunum á Íslandi og næði til notkunar rafmagnsbíla og annarra
verkefna sem tengjast sjálfbærri orkunýtingu. Lýstu þeir mikilli ánægju með
hvernig samstarfið við Ísland væri sífellt að verða víðtækara og mörg
áhugaverð tækifæri yrðu á komandi árum.
|
| 15.09.2009 |
Forseti ræðir
við bandaríska blaðamanninn Jim Motavalli um möguleika Íslands til að vera
þróunarstöð fyrir græna umferð, hvernig hægt er að nýta hreina orku sem
framleidd er á Íslandi til að auðvelda breytingar á notkun bensínbíla til
umhverfisvænna bifreiða, svo sem rafmagnsbifreiða. Einnig var rætt um
samstarfið við Mitsubishi og aukið framboð á rafmagnsbílum í Indlandi og Kína
og hvernig breyta mætti lögum og reglum til að auðvelda slíka
grundvallarbreytingu í orkunotkun þjóðarinnar. Um leið gæti Ísland sýnt öðrum
hvernig hægt er að þróa umhverfisvæna umferð á komandi árum.
|
| 15.09.2009 |
Forseti ræðir
við pólskan sjónvarpsmann um áhrif hljómsveitarstjórans Bohdan Wodiczko á
íslenskt tónlistarlíf, einkum Sinfóníuhljómsveit Íslands, en Wodiczko var
stjórnandi hennar fyrir um 40 árum og hafði mikil áhrif á mótun
hljómsveitarinnar og þroska íslenskra tónskálda. Verið er að gera
heimildarmynd um líf og störf Bohdan Wodiczko, bæði í Póllandi og á Íslandi.
|
| 16.09.2009 |
Forseti
flytur ávarp í upphafi stofnfundar hagsmunasamtaka í þágu barna og unglinga
með tal- og málþroskafrávik. Í ávarpi sínu fjallaði forseti um
mikilvægt framlag fjölmargra stuðningssamtaka sem orðið hafa til á
undanförnum árum og nauðsyn þess að efla skilning samfélagsins á því hvernig hægt
er með þjálfun og auknum rannsóknum að aðstoða þá sem glíma við fötlun eða
sértæk vandamál.
|
| 16.09.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi grænlenskra skólabarna frá fimm byggðarlögum á Grænlandi sem eru
í heimsókn á Íslandi, meðal annars til að læra sund.
|
| 16.09.2009 |
Forseti á
fund með forystumönnum Rauða krossins um hjálparstarf samtakanna á Íslandi,
aðstoð við atvinnulausa og aðra þjóðfélagshópa sem og sérstakt átak til að
afla sjálfboðaliða sem fram fer um miðjan október.
|
| 17.09.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Kína á Íslandi, Su Ge, sem afhenti trúnaðarbréf
sitt á Bessastöðum. Rætt var um hvernig samvinna Íslands og Kína hefur
stóraukist á undanförnum árum í kjölfar opinberrar heimsóknar þáverandi
forseta Kína Jiang Zemin til Íslands og heimsókna forseta Íslands til Kína á
undanförnum árum þar sem hann hefur átt árangursríkar viðræður við forseta
Kína Hu Jintao. Þá var lögð áhersla á að þróa áfram nýtingu jarðhita í Kína
til að byggja hitaveitur í ýmsum borgum. Einnig var rætt um aðra þætti
samvinnu í orkumálum sem og umsvif fjölmargra íslenskra fyrirtækja í Kína;
samvinnu á ýmsum sviðum vísinda og tækni svo sem varðandi viðvaranir vegna
jarðskjálfta og möguleika á að mennta kínverska flugmenn og
flugumferðarstjóra á Íslandi. Mynd
|
| 17.09.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Hollands á Íslandi, Richard van Rijssen, sem
afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um langa sögu samskipta
Íslands og Hollands, sem verið hefðu mikil og náin í gegnum aldirnar, sem og
þann vanda sem Icesave málið hefur skapað í samskiptum þjóðanna að
undanförnu. Fram kom eindreginn vilji til að leysa málið á farsælan hátt og
leggja þannig grundvöll að því að löndin geti heils hugar unnið að því að
efla samvinnu sína varðandi þróun Evrópu og málefni norðurslóða. Mynd
|
| 17.09.2009 |
Forseti á
fund með nýjum sendiherra Rúmeníu á Íslandi, hr. Alexandru Victor Micula, sem
afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um árangurinn af opinberri
heimsókn forseta til Rúmeníu haustið 2007 og hve árangursrík starfsemi
íslenskra fyrirtækja sem starfað hafa í Rúmeníu hefur verið en þau hafa
haldið áfram að eflast þrátt fyrir hina alþjóðlegu fjármálakreppu. Þessi
fyrirtæki starfa á ýmsum sviðum og meðal þeirra er ein stærsta prentsmiðja í
Evrópu. Einnig var rætt um samvinnu Íslands og Rúmeníu á vettvangi Evrópumála
og innan Atlantshafsbandalagsins. Mynd
|
| 17.09.2009 |
Forseti
flytur ræðu í upphafi stjórnarþings Alþjóða orkuráðsins, World Energy Council. Ráðið er
heildarsamtök orkufyrirtækja og orkustofnana á öllum sviðum orkuframleiðslu
og er einn mikilvægasti samstarfsvettvangur heims á þessu sviði. Fyrsti dagur
stjórnarþingsins er helgaður kynningu á Íslandi, nýtingu orkulinda og
framtíðarsýn. Ræða
forseta.
|
| 18.09.2009 |
Forseti
afhendir viðurkenningar Lagnafélags Íslands í hátíðlegri athöfn í húsakynnum
Grunnskólans á Ísafirði. Viðurkenningar hlutu ýmis fyrirtæki og
framkvæmdaaðilar sem unnið hafa að lagnaverki í nýju skólahúsi Grunnskólans
þar. Þá veitti forseti einnig Kristjáni Gunnarssyni vélvirkjameistara og
Sveini Torfa Sveinssyni verkfræðingi sérstaka viðurkenningu Lagnafélags
Íslands fyrir merkt ævistarf á þessu sviði.
|
| 18.09.2009 |
Forseti á
fund ásamt bæjarstjóra Ísafjarðar með fulltrúum ýmissa
atvinnugreina, svo sem ferðaþjónustu, iðnaðar og sjávarútvegs um stöðu
atvinnulífs á Vestfjörðum og framtíðarhorfur, m.a. um hina miklu aukningu í
ferðaþjónustu á Vestfjörðum og mikinn árangur í þorskeldi.
|
| 18.09.2009 |
Forseti
stýrir ríkisráðsfundi þar sem staðfest eru ýmis lög og aðrar
stjórnvaldsákvarðanir.
|
| 19.09.2009 |
Forseti sækir
hátíðarkvöldverð sem haldinn er í lok stjórnarþings Alþjóða orkuráðsins og
flytur stutt ávarp. Stjórnarþingið hafa setið áhrifamenn í orkumálum víða að
í veröldinni, meðal annars stjórnendur og fulltrúar ýmissa stærstu fyrirtækja
á þessum vettvangi.
|
| 19.09.2009 |
Forseti
flytur ávarp og afhendir verðlaun á lokahátíð Nýsköpunarkeppni
grunnskólanemenda en nokkur þúsund nemendur í meira en 60 grunnskólum
tóku þátt í keppninni. Verðlaunin voru veitt í fimm flokkum:
landbúnaður, orka og umhverfi, sjávarútvegur, hugbúnaður, slysavarnir og í
almennum flokki.
|
| 19.09.2009 |
Forseti á fund með dr. Rajendra K. Pachauri, formann loftslagsnefndar
Sameinuðu þjóðanna, IPCC, þar sem rætt var um nauðsyn aðgerða í
loftslagsmálum, framlag íslenskra vísindamanna og tæknigreina til rannsókna
og aðgerða víða um heim og hvernig hægt er að efla samstarf Íslands og
annarra landa á þessum vettvangi. Í kjölfarið ræddu forseti og dr. Pachauri
við íslenska vísindamenn sem unnið hafa að kolefnisbindingu og rannsóknum á
jöklum. Að því loknu flutti dr. Pachauri fyrirlestur í Hátíðasal Háskóla
Íslands í boði skólans og svaraði fyrirspurnum. Þá sat dr. Pachauri
hádegisverð á Bessastöðum með nokkrum fulltrúum þingflokka og íslenskum
vísindamönnum og ræddi þvínæst við fjölmiðla. Fréttatilkynning.
|
| 20.09.2009 |
Forseti
afhendir verðlaun Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar sem haldin er í Reykjavík.
Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn á Bessastöðum að
viðstöddu forystufólki úr íslenskri kvikmyndagerð sem og erlendum
þátttakendum í kvikmyndahátíðinni. Verðlaunin hlaut leikstjórinn Milos
Forman sem hlotið hefur Óskarsverðlaun fyrir myndir sínar.
|
| 21.09.2009 |
Forseti
sendir samúðarkveðjur til forseta Póllands, Lech Kaczyn'ski, vegna hins
hræðilega námuslyss sem varð í Slésíu. Samhugur Íslendinga, einkum þúsundanna
af pólskum ættum sem búa á Íslandi, er með pólsku þjóðinni á þessum
sorgartímum.
|
| 21.09.2009 |
Forseti
heldur til Bandaríkjanna; sjá nánar í fréttatilkynningu.
|
| 22.09.2009 |
Forseti situr
kvöldverð til heiðurs Steven Chu, nýjum orkumálaráðherra Bandaríkjanna og
Nóbelsverðlaunahafa í eðlisfræði. Kvöldverðurinn var haldinn á vegum
Stofnunar Sameinuðu þjóðanna, United Nations Foundation, og sátu hann ýmsir
forystumenn í umhverfis- og orkumálum og áhrifafólk í umræðum um
loftslagsbreytingar, svo sem dr. Pachauri sem nýlega flutti fyrirlestur á
Íslandi, og Gro Hartlem Brundtland fyrrum forsætisráðherra Noregs sem nú er
sérlegur sendimaður framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í loftslagsmálum.
Einnig voru viðstaddir ýmsir aðrir forystumenn Sameinuðu þjóðanna, m.a. Helen
Clark fyrrum forsætisráðherra Nýja Sjálands sem nýlega var skipuð
framkvæmdastjóri Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP). Auk þess sóttu
kvöldverðinn forystumenn ýmissa almannasamtaka og stjórnendur fyrirtækja.
|
| 22.09.2009 |
Forseti er
viðstaddur setningarathöfn Heimsþings Clintons, fyrrum Bandaríkjaforseta, þar
sem Barack Obama flutti setningarræðu. Í aðdraganda athafnarinnar átti
forseti Íslands samræður við fjölda þjóðarleiðtoga og annarra áhrifamanna og
komu fram hjá þeim mjög vinsamleg viðhorf í garð Íslendinga og bjartsýni á að
þjóðin næði sér fljótt á strik á ný.
|
| 22.09.2009 |
Forseti á
fund í New York með hópi bandarískra hagfræðinga og sérfræðinga í alþjóðlegum
fjármálamörkuðum þar sem rætt var um þróun mála á Íslandi, stöðu landsins og
framtíðarhorfur, um samskiptin við AGS og þá lærdóma sem draga megi af
reynslu Íslendinga við endurskoðun laga og regluverks sem gildir um hina
alþjóðlegu fjármálamarkaði. Einnig var rætt um þá hugmynd að Ísland gæti á
næstu misserum orðið vettvangur fyrir samræður hagfræðinga, sérfræðinga,
ýmissa fræðimanna og áhrifafólks í alþjóðlegum fjármálum um þær breytingar
sem þarf að hrinda í framkvæmd til að draga úr líkum á að slíkar kreppur
endurtaki sig. Fundurinn var boðaður að frumkvæði Joseph Stiglitz,
Nóbelsverðlaunahafa í hagrfæði sem nýlega kom til Íslands. Myndir.
|
| 23.09.2009 |
Forseti
flytur ávarp ásamt Joseph Biden varaforseta Bandaríkjanna í fjölmennum
kvöldverði sem haldinn var í hátíðarsal bandaríska utanríkisráðuneytisins í
Washington. Þar var árangri Íslands á vettvangi hreinnar orku fagnað
sérstaklega og forseti ræddi hvernig tæknikunnátta Íslendinga gæti nýst öðrum
þjóðum. Í samtali við forseta sagði Biden varaforseti Bandaríkjanna að hann
og Obama forseti hefðu nýlega rætt árangur Íslendinga á þessu sviði og þá
lærdóma sem af honum mætti draga. Kvöldverðinn sóttu um 300 leiðtogar í
bandarísku atvinnulífi og orkumálum, forystumenn verkalýðssamtaka og
stjórnendur háskóla og sérfræðistofnana.
|
| 23.09.2009 |
Forseti á
fund í New York með forseta Póllands Lech Kaczyn'ski þar sem forseti þakkaði
Pólverjum fyrir einstaka vinsemd og stuðning við Ísland á tímum efnahagslegra
erfiðleika. Ákvörðun Pólverja um lán til Íslendinga án nokkurra skilyrða
hefði verið einstakur vinargreiði. Þá var rætt um áhuga forseta Póllands á að
koma í opinbera heimsókn til Íslands. Forseti Póllands lýsti áhrifum
efnahagskreppunnar á Pólverja og hvernig þeim hefði tekist að verjast henni
enda bankakerfið ekki mjög alþjóðavætt þegar hún skall á. Þá var einnig
fjallað um viðhorf Pólverja til stækkunar Evrópusambandsins. Fundinn
sátu einnig Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og embættismenn landanna.
|
| 23.09.2009 |
Forseti á
fund í New York með Václav Klaus forseta Tékklands sem lengi hefur verið
áhugamaður um íslensk málefni enda kom hann fyrst til landsins sem
fjármálaráðherra fyrir um tuttugu árum. Rætt var um erfiðleika Íslands á
undanförnum misserum, horfur á að hagkerfið næði sér á strik á nýjaleik,
samskiptin við AGS sem og endurskoðun á ýmsum þeim alþjóðastofnunum sem
settar voru á laggirnar á grundvelli valdahlutfalla í veröldinni eftir síðari
heimsstyrjöldina. Einnig var vikið að málefnum Evrópusambandsins en Václav
Klaus hefur lengi gagnrýnt ýmsa þætti í störfum þess og stefnu. Fundinn
sátu einnig Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og embættismenn
landanna. Mynd.
|
| 23.09.2009 |
Forseti á í
New York fund með Tarja Halonen forseta Finnlands þar sem rætt var um stöðu
mála á Íslandi og þann styrk sem landið sækir í auðlindir sínar og mannafla.
Einnig var rætt um samskipti við AGS, samvinnu Norðurlanda og þróun mála á
Evrópuvettvangi. Fundinn sátu einnig Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra og embættismenn landanna. Mynd.
|
| 23.09.2009 |
Forseti ræðir
við útvarpsstöðina Bloomberg News í morgunþætti stöðvarinnar og var einnig í
beinni útsendingu sjónvarpsstöðvarinnar Bloomberg Television. Í báðum
þáttunum var fjallað ítarlega um stöðu Íslands og líkur á endurreisn
hagkerfisins, tækifæri til nýrrar sókar á grundvelli ríkra auðlinda landsins,
samskiptin við AGS og lærdóma sem Ísland, Bandaríkin og önnur lönd geta
dregið af hinni alþjóðlegu fjármálakreppu. Þá var forseti í gær í ítarlegu
viðtali við sjónvarp- og netmiðilinn Forbes þar sem fjallað var um sama efni
en auk þess rætt um nýtingu endurnýjanlegrar orku, hættur á
loftslagsbreytingum og hvernig fordæmi Íslands, tæknikunnátta og önnur
þekking á vettvangi jarðhitanýtingar getur nýst Bandaríkjunum við breytingar
á orkubúskap landsins.
|
| 24.09.2009 |
Forseti er viðstaddur opnun á nýju skrifstofuhúsnæði sendiráðs Íslands í
Washington, klippir ásamt sendiherranum Hjálmari W. Hannessyni á borða í
tilefni opnunarinnar og flytur ávarp. Í ávarpi sínu áréttaði forseti
mikilvægi samvinnu við Bandaríkin á komandi árum og áratugum. Nýir þættir
væru óðum að verða grunnstoðir í slíkri samvinnu, einkum nýting hreinnar
orku, vísindi, tækni og rannsóknir og málefni norðurslóða sem og baráttan
gegn loftslagsbreytingum. Viðstaddir opnunina voru háttsettir embættismenn frá
bandaríska utanríkisráðuneytinu, margir erlendir sendiherrar í borginni,
Íslendingar sem búsettir eru í Bandaríkjunum og aðrir sem tengsl hafa við
landið.
|
| 24.09.2009 |
Forseti tekur
þátt í umræðum á leiðtogafundi um orkumál sem haldinn er í Washington en hann
sækja leiðtogar í atvinnulífi og orkumálum, forystumenn verkalýðsfélaga,
háskóla og rannsóknarstofnana. Með forseta í umræðum voru Ted Turner
stofnandi CNN, Tim Wirth stjórnandi Stofnunar Sameinuðu þjóðanna (United
Nations Foundation) og Dan E. Arvizu hjá Rannsóknarstofu um græna orku
(Renewable Energy Laboratory) í Bandaríkjunum. Forseti lýsti hvernig
breytingar hefðu orðið á orkukerfi Íslendinga, þann fjárhagslega ávinning sem
þjóðin öll hefði notið af þeim breytingum, meðal ananrs í krafti sparnaðar af
innflutningi á olíu sem og hvernig framleiðsla á hreinni orku hefði skapað
samvinnu við fjölmörg erlend fyrirtæki, háskóla og rannsóknarstofnanir. Rætt
var um hvernig Bandaríkin gætu lært af reynslu Íslendinga og annarra þjóða og
hvernig hægt væri að hrinda í framkvæmd grundvallarbreytingum á orkukerfi
Bandaríkjanna en þær væru nauðsynlegar ef Bandaríkin ætluðu að halda sessi
sínum í efnahagslífi veraldarinnar. Vakið hefur athygli hve miklar breytingar
í átt að hreinni orku eru að verða í Kína og skapar þð nýjan grundvöll í
hinni alþjóðlegu umræðu. Upptaka
frá pallborðsumræðum á fundinum.
|
| 24.09.2009 |
Forseti á
fund með Tom Harkin öldungadeildarþingmanni í Washington þar sem rætt var um
aukið samstarf Bandaríkjanna og Íslands á sviði hreinnar orku og tækni sem
getur nýst í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Harkin hefur lengi verið
baráttumaður fyrir nýrri sýn á loftslagsbreytingar og orkumál og sér fjölmörg
tækifæri í auknu samstarfi Bandaríkjanna við Ísland. Hann hefur nýlega tekið
við formennsku í heilbrigðisnefnd öldungadeildarinnar sem Edward Kennedy
gegndi um árabil. Harkin telur einnig mikilvægt að Bandaríkjamenn nýti sér
reynslu Íslendinga og Norðurlandaþjóða í uppbyggingu heilbrigðiskerfis þar
sem tryggð sé heilbrigðisþjónusta fyrir alla án tillits til tekna og
þjóðfélagsstéttar.
Þá átti forseti einnig fund með Lisa Murkowski öldungadeildarþingmanni um
aukið samstarf á norðurslóðum, þau tengsl sem myndast hafa milli Alaska og
Íslands á undanförnum árum og nauðsyn þess að vísindamenn, sérfræðingar og
forystufólk í löndunum sem liggja að norðurskautinu efli samstarf sitt.
|
| 25.09.2009 |
Forseti
flytur lokaræðuna á málþingi Louise Blouin stofnunarinnar um þörfina á nýrri
forystu á alþjóðavettvangi. Forseti fjallaði um þá lærdóma sem draga má af
reynslu Íslendinga og samspil alþjóðlegrar fjármálakreppu, þarfarinnar á
grænni orkubyltingu og baráttunnar gegn loftslagsbreytingum. Að lokinni
ræðunni sat forseti fyrir svörum hjá Michael Oreskes, ritstjóra Associated
Press, þar sem forseti svaraði fjölmörgum spurningum um Ísland og þróunina á alþjóðavettvangi.
Vefur
stofnunarinnar.
|
| 25.09.2009 |
Forseti tekur
þátt í umræðum á Heimsþingi Clintons, Clinton Global Inititative, um þá
lærdóma sem draga má af fjármálakreppunni, ábyrgð markaðsafla gagnvart
samfélagi og umhverfi, nýjar reglur sem þurfa að gilda bæði í einstökum
löndum og á alþjóðavettvangi og stöðu hins fátækari hluta heims sem að mestu
hefur verið utan við það fjármálakerfi sem hefur verið ráðandi á undanförnum
árum. Upptökur
frá þinginu, þar á meðal af ræðu forseta Íslands.
|
| 26.09.2009 |
Forseti afhendir Forsetamerki
skátahreyfingarinnar við hátíðlega athöfn í Bessastaðakirkju. Merkið er veitt
fyrir sérstakan árangur í skátastarfi og hlutu það að þessu sinni tuttugu og
tveir skátar frá Akranesi, Akureyri, Grundarfirði, Kópavogi og Reykjavík. Að
lokinni athöfn var merkishöfum og fjölskyldum þeirra
ásamt forystumönnum skátahreyfingarinnar boðið að þiggja kaffi í
Bessastaðastofu.
|
| 28.09.2009 |
Forseti sækir
kynningu á Forvarnardeginum sem fram fór í Háteigsskóla. Auk forseta fluttu
ávörp borgarstjórinn í Reykjavík Hanna Bima Kristjánsdóttir, forseti ÍSÍ
Ólafur Rafnsson, formaður UMFÍ Helga Guðjónsdóttir, Margrét Tómasdóttir
skátahöfðingi, Gunnar Einarsson bæjarstjóri, fulltrúi Sambands íslenskra
sveitarfélaga, og Guðbjörg Edda Eggertsdóttir aðstoðarforstjóri Actavis. Auk
þess voru nemendur og starfsmenn úr Háteigsskóla viðstaddir fundinn og tók
skólastjórinn Ásgeir Beinteinsson fyrstur til máls. Forvarnardagurinn fer
fram í grunnskólum landsins næstkomandi miðvikudag 30. september. Þar verður
sýnt myndband sem flutt var á kynningunni og tillögum og hugmyndum nemenda
sem fram koma á deginum verður safnað í heilsteypta greinargerð. Vefsíða Forvarnardagsins.
|
| 29.09.2009 |
Forseti á
fund með Birni Halldórssyni framkvæmdastjóra Sorpu og Einari Vilhjálmssyni
markaðsstjóra Metans um framleiðslu á metaneldsneyti á Íslandi og möguleika á
að nýta það á þúsundir bifreiða á næstu árum. Slík breyting væri mjög í þágu
umhverfisverndar, gjaldeyrissparnaðar og bætts fjárhags heimilanna.
|
| 30.09.2009 |
Forseti
heimsækir á Forvarnardaginn þrjá skóla á Suðurlandi, Sunnulækjarskóla og
Vallaskóla á Selfossi og Grunnskóla Stokkseyrar og Eyrarbakka. Forseti ræddi
við nemendur um megináherslur Forvarnardagsins en rannsóknir á undanförnum
árum hafa sýnt hvað skilar mestum árangri. Í öllum skólunum tóku nemendur og
kennarar á móti forseta fyrir utan skólann og auk þess að ræða um
Forvarnardaginn kynnti hann sér kennsluhætti og nýjungar með heimsóknum í
kennslustofur. Vefsíða
Forvarnardagsins.
|
Október
|
| 01.10.2009 |
Forseti ræðir
við írska sjónvarpsmanninn Max Doyle um hrun bankanna og efnahagskreppuna á
Íslandi, viðbrögð þjóðarinnar og grundvöll að endurreisn efnahagslífsins
meðal annars í krafti auðlinda, tækni og þekkingar. Þá var rætt um hvaða
lærdóma Írland og önnur lönd geta dregið af atburðunum á Íslandi og
viðbrögðum við þeim og nauðsyn þess að endurgera á traustan hátt það
fjármálakerfi sem þjóðir heims starfa innan.
|
| 01.10.2009 |
Forseti setur
Alþingi. Ræða
forseta.
|
| 01.10.2009 |
Forseti
stýrir ríkisráðsfundi á Bessastöðum.
|
| 01.10.2009 |
Forseti
flytur opnunarræðu á norrænni ráðstefnu um sættir og samninga, Nordisk Forum
for Megling og Konflikthåntering. Ráðstefnuna sækja fulltrúar frá ýmsum
löndum auk Norðurlanda, dómarar, lögfræðingar, félagsráðgjafar, prestar og
ýmsir aðrir. Samtökin Sátt skipuleggja
ráðstefnuna í samvinnu við stjórn NFM. Ræða
forseta
|
| 02.10.2009 |
Forseti
flytur ávarp við opnun írskrar menningarhátíðar í Kópavogi og opnar um leið
þrjár sýningar í Gerðarsafni. Tvær þeirra eru frá Þjóðminjasafni Írlands og
eru á annari þeirra skinnbátar frá vesturströnd Írlands sem notaðir voru til
forna og á hinni veggspjöld frá þriðja fjórðungi síðustu aldar sem ætlað var
að laða gesti til þekktra írskra ferðamannastaða. Þriðja sýningin er frá
Listasafni Írlands og sýnir grafísk verk listamanna frá ýmsum löndum sem
sækja innblástur í nokkur öndvegisverk myndlistar á Írlandi. Ávarp forseta.
|
| 03.10.2009 |
Forseti sækir
fund Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla sem haldinn var í
Bessastaðakirkju. Þar voru flutt erindi um stjarnmælingar í Lambhúsum við
Bessastaði og veðurathuganir Rasmus Lievog fyrir rúmum 200 árum. Í upphafi
flutti forseti stutt ávarp. Þessar stjörnuathuganir og veðurathuganir á fyrri
öldum voru liður í alþjóðlegri starfsemi undir forystu Dana og hafa vakið
mikla athygli fræðimanna bæði þá og síðar og meðal annars verið notaðar af
Geimferðastofnun Bandaríkjanna.
|
| 05.10.2009 |
Forseti
sendir samúðarkveðjur sínar og íslensku þjóðarinnar til Susilo Bambang
Yudhoyono forseta Indónesíu vegna hamfaranna og hörmunganna sem
jarðskjálftarnir í Padang hafa haft í för með sér. Hundruð manna hafa látið
lífið og gríðarlegur fjöldi fjölskyldna glímir við afleiðingar jarðskjálftanna.
Fréttatilkynning.
|
| 07.10.2009 |
Forseti á
fund með rektor Háskólans í Bergen, Sigmund Grønmo og prófessor Stein Kuhnle
um rannsóknir háskólans á vettvangi norðurslóða, bæði varðandi
loftslagsbreytingar, stjórnkerfi, mannréttindi og alþjóðlega samvinnu. Rætt
var um samstarf Háskólans í Bergen við Rannsóknarþing norðursins en halda á
þing þess í Noregi á næsta ári.
|
| 07.10.2009 |
Forseti
flytur opnunarræðu á alþjóðlegu fræðaþingi sem haldið er af Háskólanum í
Bergen í Noregi. Fræðaþingið fjallar um framtíð norðurslóða, aukið mikilvægi
þeirra á komandi árum og nauðsyn víðtækra rannsókna og stefnumótunar með
sérstakri áherslu á tækifæri og hlutverk Norðurlanda. Fréttatilkynning.
Ræða
forseta.
|
| 09.10.2009 |
Forseti tekur á móti hópi fólks sem sinnir forvarnarstarfi í nokkrum
löndum Evrópu, Rúmeníu, Litháen, Lettlandi og Noregi, ásamt fulltrúum
Rannsókna og greiningar við Háskólann í Reykjavík. Rætt var um rannsóknir í
þágu forvarnarstarfs sem fram hafa farið á Íslandi og víða í Evrópu innan
ramma Youth in Europe verkefnisins. Þá var fjallað um reynsluna af
Forvarnardeginum sem haldinn hefur verið fjórum sinnum hér á landi og hvernig
borgir og héruð í öðrum löndum gætu hagnýtt sér þá reynslu.
|
| 10.10.2009 |
Forseti er viðstaddur setningu þings UMFÍ sem fram fer í Reykjanesbæ og
flytur ávarp. Í upphafi þingsins var sérstaklega fagnað glæsilegum mótum sem
haldin voru á liðnu sumri, bæði landsmótinu á Akureyri og unglingalandsmótinu
á Sauðárkróki sem og öðrum mikilvægum þáttum í starfsemi UMFÍ. Ávarp forseta.
|
| 14.10.2009 |
Forseti tekur
á móti og ræðir við fulltrúa á alþjóðlegu þingi um geðheilsu, interRAI Mental
Health Conference. Þingið sækja læknar, sérfræðingar og rannsakendur víða að
úr veröldinni, auk íslenskra sérfræðinga og annarra starfsmanna í
geðheilsumálum.
|
| 14.10.2009 |
Forseti á
fund með sendinefnd sænska þingsins, Riksdagen, sem heimsækir Ísland til að
kynna sér stöðu efnahagsmála, lærdómana sem draga má af bankahruninu og
framtíðarhorfur í efnahagslífi landsins. Á fundinum röktu sænsku
þingmennirnir reynslu Svía af bankakreppunni fyrir tæpum tuttugu árum og hvaða
lærdóma þeir hefðu dregið af henni sem og breytingar sem gerðar hefðu verið í
kjölfarið. Sendinefndin er undir forystu Per Westerberg forseta sænska
þingsins og mun hún auk funda með alþingismönnum hitta ráðherra að máli.
|
| 14.10.2009 |
Forseti
birtir hvatningu í blaði Rauða krossins í tilefni af kynningardögum Rauða
krossins þar sem meðal annars er leitað eftir aukinni þátttöku sjálfboðaliða
í mikilvægu starfi Rauða krossins á Íslandi. Hvatning
forseta.
|
| 14.10.2009 |
Forseti á fund með lögmanni Færeyja Kaj Leo Johannesen sem
heimsækir Ísland. Forseti þakkaði Færeyingum fyrir stuðning í kjölfar
bankahrunsins og síðan var rætt um nauðsyn á aukinni samvinnu þjóðanna á
komandi árum og áratugum, með hliðsjón af vaxandi vægi norðurslóða, stjórn
fiskveiða, nýjum siglingaleiðum og nýtingu orkulinda. Einnig var rætt um
samstarf á sviði menntunar og rannsókna og hina sameiginlegu sögu og vináttu
Færeyinga og Íslendinga.
|
| 15.10.2009 |
Forseti tekur
þátt í kynningarviku Rauða krossins sem einkum miðar að ölflun sjálfboðaliða.
Forseti heimsækir samhæfingar- og stjórnstöð Almannavarna og kynnir sér
einnig starfsemi neyðarnefndar Suðurnesjadeildar Rauða krossins og aðstöðu
hennar á Keflavíkurflugvelli en Suðurnesjadeildin er meðal þeirra deilda á
landinu sem oftast eru kallaðar út og neyðarvarnaskipulag hennar er fyrirmynd
að skipulagi Rauðakrossdeilda á öllu landinu.
|
| 16.10.2009 |
Forseti
heimsækir Rauðakrosshúsið í Reykjavík þar sem fram fer margvísleg starfsemi í
þágu þeirra sem glíma við erfiðleika og ýmis vandamál. Mikill fjöldi
námskeiða er haldinn í húsinu og þar fer fram víðtæk kynningarstarfsemi og
fræðsla. Þá heimsótti forseti höfuðstöðvar Reykjavíkurdeildar Rauða krossins
og kynntist starfi neyðarnefndar og viðbragðshóps Rauða krossins á
höfuðborgarsvæðinu. Heimsóknirnar voru liður í sérstakri kynningarviku Rauða
krossins.
|
| 16.10.2009 |
Forseti
heimsækir Rauðakrossdeildina í Hveragerði og er heimsóknin liður í
kynningardögum Rauða krossins sem einkum miða að öflun nýrra sjálfboðaliða. Í
heimsókninni fór fram kynning á fjölþættri starfsemi Rauðakrossdeildarinnar
auk þess sem farið var yfir þá lærdóma sem dregnir hafa verið af
hjálparstarfinu þegar jarðskjálftar urðu við Hveragerði árið 2008. Þá var
rætt um sjálfboðaliðaverkefni sem beinast að því að rjúfa félagslega
einangrun fólks, aðstoða þá sem eru í atvinnuleit og fangaverkefni
Rauðakrossdeildarinnar á Litla-Hrauni. Auk forseta heimsóttu Anna
Stefánsdóttir formaður Rauða krossins og Kristján Sturluson framkvæmdastjóri
deildina í Hveragerði. Þau snæddu ásamt forseta hádegisverð með
sjálfboðaliðum Hveragerðisdeildarinnar og forystufólki þar sem meðal annars
var rætt um reynsluna af sjálfboðaliðastarfi.
|
| 17.10.2009 |
Forseti setur Evrópumeistaramót fatlaðra í sundi sem er eitt viðamesta
alþjóðlega sundmót sem haldið hefur verið á Íslandi og er liður í starfi
heimshreyfingar íþróttasambanda fatlaðra. Auk forseta Íslands var
alþjóðaforseti IPC viðstaddur setningarathöfnina en mikill fjöldi fatlaðra
íþróttamanna víða að úr Evrópu tekur þátt í mótinu.
|
| 17.10.2009 |
Forseti
flytur ávarp á sérstakri hátíðarathöfn í Svartsengi í tilefni þess að hafin
er bygging verksmiðju sem nýtir koltvísýring til að framleiða metanól.
Fyrirtækið Carbon Recycling International,
sem er samstarfsverkefni íslenskra og erlendra aðila, mun byggja verksmiðjuna
sem mun marka þáttaskil í endurnýtingu kolefnis og baráttu þjóða heims
við loftslagsbreytingar. Í ávarpi sínu gat forseti þess að forystuöfl í
fjölmörgum löndum, svo sem Bandaríkjunum, Kína, Indlandi og Miðausturlöndum,
fylgdust náið með þessu verkefni. Það væri líka dæmi um hvað íslenskir
vísinda- og tæknimenn gætu áorkað í samstarfi við erlenda kunnáttumenn. Verksmiðjan
við Svartsengi gæti ásamt kolefnisbindingunni við Hellisheiðarvirkjun orðið
mikilvægt framlag Íslendinga til breytingar á orkukerfum heimsins.
|
| 19.10.2009 |
Forseti á
fund með Bernharði Pálssyni prófessor í Bandaríkjuum og stjórnanda stofnunar
um kerfislíffræði, Center for
Systems Biology, við Háskóla Íslands um þróun líftækni í tengslum við
orkunýtingu og orkuframleiðslu meðal annars á grundvelli tenginga við íslensk
jarðvarmaver. Bernharð Pálsson hefur um áratugi unnið að rannsóknum í
líftækni í Bandaríkjunum og viða um heim.
|
| 20.10.2009 |
Forseti ræðir
við Þórarin Einarsson, áhugamann um þróun hins alþjóðlega fjármálakerfis, um
greiningu á orsökum þess vanda sem Ísland og önnur lönd hafa glímt við og um
hvort fjármálakreppur kunni að endurtaka sig í framtíðinni.
|
| 20.10.2009 |
Forseti ræðir
við Árna Matthíasson blaðamann um áhrif netvæðingar á fjölmiðla, einkum
prentmiðla, bæði hér heima og erlendis. Einnig var rætt um reynsluna af
heimasíðu forsetaembættisins.
|
| 20.10.2009 |
Forseti á
fund með Birni Zoëga, forstjóra Landspítala-Háskólasjúkrahúss, um
heilbrigðismál.
|
| 20.10.2009 |
Forseti á fund með Hákoni Gunnarssyni og Davíð Stefánssyni um
kortlagningu svonefnds orkugeira á Íslandi í samræmi við alþjóðlega
aðferðafræði sem kennd er við Michael Porter, prófessor við Harvardháskóla.
Þar verða dregnar saman upplýsingar um alla þá aðila sem vinna að orkumálum á
Íslandi, bæði vinnslu, sölu sem og nýsköpun og tækniþróun.
|
| 21.10.2009 |
Forseti ræðir
við Guðmund Björnsson verkfræðing um nauðsyn ítarlegra gagnasafna um
norðurslóðir. Slík þekking er grundvöllur umræðna um loftslagsbreytingar,
orkunýtingu og siglingar, sem og lífskjör og hag íbúa norðurslóða.
|
| 21.10.2009 |
Forseti sækir
hátíðardagskrá BSRB sem haldin er til heiðurs Ögmundi Jónassyni sem nú lætur
af störfum sem formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja eftir um 20 ára
feril.
|
| 21.10.2009 |
Forseti situr
fyrir svörum í viðtalsþættinum Spjallið með Sölva sem sjónvarpað er kl. 20:00
í kvöld á Skjá einum.
|
| 22.10.2009 |
Forseti tekur
á móti þátttakendum í MenntoMUN en það er ráðstefna menntaskólanema þar sem
þátttakendur gegna hlutverki aðildarríkja í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og
taka til meðferðar ýmis af þeim erfiðu úrlausnarefnum sem Öryggisráðið
fjallar um. Staðan í Afganistan er verkefnið í ár. Forseti ræddi um þróun
Sameinuðu þjóðanna og mikilvægi þeirra á komandi tímum.
|
| 22.10.2009 |
Forseti á
fund með fulltrúum Marimo Software og Aska Energy um þróun gagnagrunna um
hinar ólíku tegundir endurnýjanlegrar orku víða um heim en slíkir
gagnagrunnar gætu orðið gott tæki til að efla slíka orkunýtingu víða um
veröld.
|
| 22.10.2009 |
Forseti ræðir
við Halldór Jörgensson framkvæmdastjóra Microsoft á Íslandi um þróun íslensks
hugbúnaðariðnaðar og möguleika hans á alþjóðavísu, hvernig auka megi samstarf
og efla kynningu á þeim lausnum sem þróaðar hafa verið á Íslandi.
|
| 23.10.2009 |
Forseti á
fund með sveitarstjórn Dalabyggðar í Búðardal þar sem rætt var um atvinnumál
í byggðarlaginu, þörf fyrir meira húsnæði og nýtingu náttúru og söguslóða til
að efla ferðaþjónustu í framtíðinni.
|
| 23.10.2009 |
Forseti
heimsækir kúabúið á Erpsstöðum
en þar er nýbyggt og vélvætt fjós, skoðar ísgerð búsins sem vakið
hefur athygli á undanförnum mánuðum. Forseti ræðir við heimamenn og kynnir
sér áform bændanna um frekari framleiðslu ýmissa mjólkurafurða á bænum. Myndir.
|
| 23.10.2009 |
Forseti er
viðstaddur vígslu Guðrúnarlaugar sem er gerð í stíl við fornar laugar og
hlaðin af Guðjóni Kristinssyni hleðslumeistara frá Dröngum. Að loknu ávarpi
Gríms Atlasonar sveitarstjóra varpaði forseti steini í laugina og var það til
staðfestingar á að hún væri þar með tekin í notkun. Myndir.
|
| 23.10.2009 |
Forseti
heimsækir dvalarheimilið Silfurtún í Búðardal, ræðir við heimilisfólk og
drekkur síðdegiskaffi með því og starfsfólki. Myndir.
|
| 23.10.2009 |
Forseti
flytur setningarræðu á málþingi ungra bænda þar sem rætt var um framtíð
íslensks landbúnaðar, tækifæri á fjölmörgum sviðum og hvaða áhrif breytingar
í fæðubúskap heimsbyggðarinnar, baráttan gegn loftslagsbreytingum og vaxandi
áhersla á fæðuöryggi munu hafa á íslenskan landbúnað á komandi árum. Ræðumenn
á málþinginu voru: Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtaka Íslands,
Kristín Vala Ragnarsdóttir forstöðumaður umhverfis- og verkfræðisviðs HÍ,
Ingibjörg Sigurðardóttir lektor við ferðamálabraut Háskólans á Hólum og
Baldvin Jónsson verkefnisstjóri. Fundarstjóri var Ásmundur Einar Daðason
alþingismaður. Að málþinginu loknu var haldinn stofnfundur samtaka ungra bænda. Ræða forseta.
|
| 23.10.2009 |
Forseti ræðir
við sýslumanninn í Dalasýslu Áslaugu Þórarinsdóttur um störf
sýsluskrifstofunnar, málefni íbúanna sem þar koma til meðferðar og hlutverk
sýsluskrifstofunnar í ættleiðingarmálum en hún fer með þau, bæði á Íslandi og
gagnvart umheiminum.
|
| 23.10.2009 |
Forseti
heimsækir MS í Búðardal sem framleiðir hina landskunnu
Dalaosta, ræðir við starfsfólk og borðar með því hádegisverð og skoðar síðan
framleiðsludeildir m.a. nýjan vélakost og geymslu vegna ostagerðar.
|
| 23.10.2009 |
Forseti
heimsækir Auðarskóla í Búðardal, ræðir við nemendur og
kennara, skoðar kennslustofur og fylgist með kennslu sem og rokktónleikum sem
haldnir voru í skólanum þar sem FM Belfast lék. Myndir.
|
| 24.10.2009 |
Forseti ræðir
við sendinefnd bandarísks jarðhitafyrirtækis sem áhuga hefur á samvinnu við
Íslendinga og rekstri gagnavera.
|
| 24.10.2009 |
Forseti hefur
ákveðið að birta hér á heimasíðu forsetaembættisins átta af þeim sautján
bréfum sem Rannsóknarnefnd Alþingis fékk send og koma þannig til móts við
óskir og umræður í samfélaginu. Þessi bréf eru til manna sem látið hafa af
embætti auk tveggja annarra einstaklinga. Hin bréfin níu eru öll til
þjóðhöfðingja eða æðstu forsvarsmanna ríkja sem enn eru í embætti. Birting
slíkra bréfa fáeinum misserum eða árum eftir að þau voru send væri algjör
stefnubreyting í samskiptum Íslands við önnur ríki og ekki í samræmi við þær
siðareglur sem gilda í samskiptum ríkja. Forseti telur að hann geti ekki einn
og sér tekið ákvörðun um slíka stefnubreytingu. Hún yrði að vera niðurstaða
af breiðu samkomulagi íslenskra stjórnvalda. Greinargerð og bréf.
|
| 28.10.2009 |
Forseti ræðir
við bandaríska tónskáldið Gerald Shapiro og Guðmund Emilsson tónlistarmann um
þróun íslenskrar tónlistar, flutning á verkum íslenskra tónskálda og samstarf
á því sviði.
|
| 29.10.2009 |
Forseti ræðir
við Gunnar Smára Egilsson og Helga Hermannsson um skipulag á þjóðfélagslegri
samræðu og aðferðir sem hægt er að beita til að virkja sem flesta til
þátttöku.
|
| 29.10.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi þátttakenda í Hringsjá sem skipuleggur náms- og
starfsendurhæfingu fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir
hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla. Vefur Hringsjár.
|
| 30.10.2009 |
Forseti á
fund með Halldóri B. Runólfssyni safnstjóra Listasafns Íslands um hvernig
hægt sé að tryggja að sérsöfn einstaklinga og annarra séu varðveitt á Íslandi
og samstarf opinberra aðila um það verkefni. Þá var rætt um hið merka
safn Péturs Arasonar sem er stærsta safn um nútímalist á Íslandi og með
merkari slíkum einkasöfnum í Evrópu.
|
| 31.10.2009 |
Forseti opnar
sýningu á verkum Svavars Guðnasonar sem haldin er í Listasafni Íslands í
tilefni af því að á þessu ári eru hundrað ár liðin frá fæðingu listamannsins.
Ávarp forseta.
|
Nóvember
|
| 03.11.2009 |
Forseti á
fund með Kristínu Völu Ragnarsdóttur sviðsstjóra náttúruvísinda- og
verkfræðisviðs Háskóla Íslands um nýjar áherslur í jarðvegsrannsóknum, einkum
í tengslum við baráttuna gegn loftslagsbreytingum, sem og vísindasamvinnu
Íslands og annarra landa.
|
| 03.11.2009 |
Forseti á
fund með Árna Gunnarssyni um heilsuþorp á Flúðum, möguleika á að tengja saman
heitar lindir og heilbrigðisþjónustu.
|
| 03.11.2009 |
Forseti
birtir hugleiðingu í þemaheftinu Árið 1918 sem Námsgagnastofnun gefur út.
Hugleiðingin ber heitið Reynslusjóður og veganesti. Þemaheftið er ætlað
unglingastigi í skólum landsins og fylgja því kennsluleiðbeiningar frá
Námsgagnastofnun. Hugleiðing.
|
| 04.11.2009 |
Forseti
afhendir verðlaun á hátíð Íslensku markaðsverðlaunanna 2009. Markaðsmaður
ársins var valinn Hermann Guðmundsson forstjóri N1. Markaðsfyrirtæki ársins
var valið Nova, en auk þess voru tilnefnd CCP, N1 og Vodafone. Forseti flutti
ávarp við athöfnina þar sem hann áréttaði nauðsyn þess að haldið væri til
haga þeim fjölþætta árangri sem einkenndi nú fyrirtæki í fjölmörgum greinum
og í öllum landshlutum. Mikilvægt væri að missa ekki sjónar á hinu jákvæða og
árangursríka um leið og menn gerðu sér grein fyrir erfiðleikum og vanda bæði
þjóðarbús og heimila.
|
| 05.11.2009 |
Forseti
flytur opnunarræðu á alþjóðlegri ráðstefnu læknanema þar sem fjallað er um
mikilvægi vatns og áhrif vatnsskorts á útbreiðslu ýmissa sjúkdóma. Á
ráðstefnunni er einnig fjallað um jafningjafræðslu læknanema sem og
skipulagningu og framkvæmd sjálfboðastarfs.
|
| 05.11.2009 |
Forseti
afhendir verðlaun JC hreyfingarinnar sem bera heitið Framúrskarandi ungir
Íslendingar. Verðlaunin eru veitt þeim sem skarað hafa fram úr á ýmsum sviðum
og hlutu þau í ár Guðjón Már Guðjónsson fyrir frumkvöðlastarf á sviði
viðskipta og tækni og Páll Óskar Hjálmtýsson fyrir störf á sviði tónlistar og
menningar og Völundur Snær Völundarson fyrir kynningu á íslenskum matarhefðum
og frumkvæði í matargerð þar sem íslensk náttúra og hráefni eru fléttuð
saman.
|
| 05.11.2009 |
Forseti ræðir
við sendinefnd frá International Finance Corporation, alþjóðlegum
fjárfestingasjóði sem er hluti af Alþjóðabankanum (World Bank Group), og
fulltrúa Orkuveitu Reykjavíkur um nýtingu jarðhita í Djíbútí en alþjóðlegur
áhugi er á því verkefni enda gæti það orðið til þess að Djíbútí verði fyrsta
land Afríku sem fyrst og fremst byggir efnahagslíf sitt á hreinni orku.
|
| 06.11.2009 |
Forseti tekur þátt í söfnun Landsbjargar en hún fer fram til styrktar
slysavörnum og björgunarstarfi í landinu.
|
| 07.11.2009 |
Forseti á
fund með sendiherra Indlands Sivaraman Swaminathan og sendinefnd frá
Thermax tækni- og orkufyrirtækinu á Indlandi ásamt fulltrúum Reykjavik
Geothermal um jarðhitaverkefni á Indlandi og möguleika landsins til að nýta
sér þá tækni og reynslu sem þróuð hefur verið á Íslandi.
|
| 07.11.2009 |
Forseti
afhendir verðlaun þeim grunnskólanemendum sem sigruðu í ratleik
Forvarnardagsins en hann fór fram í grunnskólum landsins í lok september.
Sigurvegararnir koma frá Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík, Grunnskóla
Bolungarvíkur og Nesskóla í Neskaupstað. Myndir
|
| 10.11.2009 |
Forseti á
fund með fulltrúum Alþjóða vatnsorkusambandsins (International
Hydropower Association) og Alþjóða jarðhitasambandsins (International
Geothermal Association) um samstarf alþjóðlegra samtaka á sviði hreinnar orku
en þau hafa verið að efla tengsl sín innan vébanda International
Renewable Energy Alliance, REN. Rætt var um hvernig slíkt samtarf
getur stuðlað að aukinni hlutdeild hreinnar orku í orkubúskap einstakra landa
og heimshluta, og orðið öflugt framlag í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.
Alþjóða vatnsorkusambandið hélt þing sitt á Íslandi síðastliðið sumar.
|
| 11.11.2009 |
Forseti á
fund með Guðna A. Jóhannessyni orkumálastjóra og samstarfsmönnum hans um
verkefni á sviði orkumála, nýtingu jarðhita, Drekasvæðið og ráðstefnu um
orkumál sem haldin verður í Bandaríkjunum á næstunni.
|
| 11.11.2009 |
Forseti ræðir
við séra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprest sem færði forseta að gjöf nýja
minningabók sína, sem ber heitið Hjartsláttur.
|
| 11.11.2009 |
Forseti tekur
á móti hópi nemenda í stjórnmálafræði við Menntaskóla Borgarfjarðar og ræðir
við þá um stjórnskipun Íslands, verkefni forsetaembættisins og þróun
lýðræðis.
|
| 12.11.2009 |
Forseti sækir
styrktartónleika BUGL, Barna- og unglingageðdeildar LHS, sem fram fóru í
Grafarvogskirkju. Tónleikarnir voru skipulagðir af Lionsklúbbunum Fjörgyn og
Fold. Fjölmargir tónlistarmenn komu fram til styrktar BUGL. Lionshreyfingin
hefur á undanförnum árum styrkt starf Barna- og unglingageðdeildarinnar með
slíkum tónleikum.
|
| 12.11.2009 |
Forseti á
fund með Guðmundi Björnssyni verkfræðingi um þróun gagnabanka um
norðurslóðir. Slíkir gagnabankar hafa verið settir saman um einstök lönd og
héruð og eru mikilvæg tæki við ákvarðanatöku og skipulega nýtingu landkosta
og auðlinda. Verkefnið gæti orðið samvinnuverkefni sérfræðistofnana á
norðurslóðum.
|
| 12.11.2009 |
Forseti á
fund með Halldóri Þórarinssyni um opnun sérstaks síldarminjasafns í Finnlandi
sem helgað yrði mikilvægi síldarinnar í lífsháttum og matargerð Finna, einkum
með tilliti til þess hve íslensk síld hefur skipað ríkulegan sess í
Finnlandi.
|
| 12.11.2009 |
Forseti ræðir við áhugamenn um upplýsta umræðu um tækifæri Íslendinga á
komandi árum og þátttöku innlendra og erlendra sérfræðinga í slíkri samræðu.
|
| 12.11.2009 |
Forseti ræðir
við fulltrúa indverska fyrirtækisins Reva og íslenska fyrirtækisins Northern
Light sem gert hafa samning um innflutning á 100 rafmagnsbílum til Íslands. Á
fundinum var einnig sendiherra Indlands á Íslandi Sivaraman Swaminathan.
Rætt var um samvinnu landanna á þessu sviði en hún gæti auðveldað Íslandi að
verða meðal fyrstu landa í veröldinni með bílaumferð knúna á vistvænan hátt.
|
| 13.11.2009 |
Forseti á
fund með bandaríska Nóbelsverðlaunahafanum dr. Louis Ignarro og Jóni Óttari
Ragnarssyni um þróun heilbrigðismála, mikilvægi breyttra neysluvenja og
hreyfingar fyrir bætta lýðheilsu þjóða, árangur sem samtök almennings hafa
náð á Íslandi í baráttunni við fjölmarga sjúkdóma, meðal annars berkla,
hjartasjúkdóma og krabbamein. Þá var og rætt um breytingar á heilbrigðiskerfi
Bandaríkjanna og kosti hins norræna módels í heilbrigðismálum.
|
| 14.11.2009 |
Forseti sækir afmælishátíð Indlandsvinafélagsins. Í ávarpi sínu ræddi
forseti um þá þróun sem orðið hefur í samskiptum Íslands og Indlands frá
upphafsárum félagsins til okkar daga, kynni sín af Indlandi og þau áhrif sem
návígi við indverska menningu og þjóðlíf getur skapað. Í lokin vék forseti að
vaxandi áhrifum Indlands á heimsvísu.
|
| 15.11.2009 |
Forseti sækir
tískusýningu fataiðnaðardeildar Tækniskólans sem fram fór í Skautahöllinni í
Laugardal. Sýningin er liður í Unglist, listahátíð ungs fólks, sem staðið
hefur yfir undanfarna daga. Fjöldi ungra hönnuða sýndi verk sín.
|
| 16.11.2009 |
Forseti á
fund með Gissuri Guðmundssyni, forseta Heimssamtaka matreiðslumeistara, World Association of Chefs Societies og
stjórnarmanninum Helga Einarssyni. Íslendingar voru kosnir til forystu í
þessum heimssamtökum á liðnu ári og kynntu þeir forseta árangurinn af störfum
þeirra, sem meðal annars felur í sér víðtæka kynningu á íslenskri
matargerðarlist, hráefni og kunnáttu íslenskra matreiðslumanna. Gissur
Guðmundsson verður forseti samtakanna næstu árin og skipar ásamt öðrum
Íslendingum stjórn þeirra.
|
| 21.11.2009 |
Forseti á
fund í Abu Dhabi með Helene Pelosse, framkvæmdastjóra IRENA, Alþjóðastofnunar um endurnýjanlega
orku. Fjallað var um reynslu og þekkingu á nýtingu hreinnar orku sem
Íslendingar geta látið öðrum þjóðum í té. Þá var einnig rætt um þróun hinnar
nýju stofnunar og samstarf hennar við alþjóðleg samtök hinna ýmsu greina
hreinnar orku sem eru vatnsorka, jarðhitaorka, vindorka, sólarorka og lífræn
orka.
|
| 21.11.2009 |
Forseti
hittir tvo íslenska nema sem stunda framhaldsnám við hinn nýstofnaða Masdar
háskóla en hann var settur var á fót í samvinnu við bandaríska háskólann MIT.
Allur náms- og dvalarkostnaður íslensku stúdentanna er greiddur af Masdar sem
bauð forseta Íslands á liðnu ári að hlutast til um að íslenskir námsmenn kæmu
til háskólanáms í Abu Dhabi. Nú hefur verið ákveðið að bjóði fleiri
Íslendingum að stunda nám við Masdar háskólann.
|
| 22.11.2009 |
Forseti á
fund með sveit íslenskra sérfræðinga sem starfa að jarðhitaverkefni í Abu
Dhabi á vegum ráðgjafafyrirtækisins Reykjavik Geothermal.
Fyrirtækið vinnur nú að undirbúningi borana eftir jarðhita á
borgarsvæðinu, en ætlunin er að nýta jarðhita til að knýja loftkælingu
borgarinnar.
|
| 22.11.2009 |
Forseti ræðir
við dr. Pachauri, formann Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna IPCC, í
tengslum við dómnefndarfund í Abu Dhabi. Rætt var um samstarfsverkefni
íslenska vísindasamfélagsins og TERI stofnunarinnar á Indlandi, m.a.
rannsóknir á jöklum í Himalajafjöllum og hugsanlega nýtingu jarðhita á
Indlandi. Áformað er að efna til sérstakra málþinga um þessi efni.
|
| 22.11.2009 |
Forseti situr
fund dómnefndar Zayed orkuverðlaunanna (Zayed
Future Energy Prize) en þau eru meðal veglegustu verðlauna veraldar,
veitt fyrir nýjungar og forystu á vettvangi hreinnar orku. Fundurinn er
haldinn í Abu Dhabi enda eru verðlaunin kennd við fyrrum leiðtoga landsins.
Þau verða afhent á Heimsþingi um orkumál framtíðar (World Future Energy
Summit) sem haldið verður í Abu Dhabi dagana 18.-21. janúar næstkomandi.
|
| 23.11.2009 |
Forseti á
fund með þjóðarleiðtoga Abu Dhabi sem lýsir sérstakri ánægju með störf
íslenskra sérfræðinga, verkfræðinga og vísindamanna þar í landi. Miklar vonir
séu bundnar við jarðhitaboranir í hinni nýju Masdarborg en árangur þeirra
skipti sköpum fyrir vistvænan grundvöll hennar. Í viðræðunum var áréttuð
nauðsyn þess að komið væri til móts við kröfur ungrar kynslóðar um sívaxandi
áherslu á vernd umhverfisins. Abu Dhabi hefði ríkan vilja til efla samstarf
sitt við Ísland á sviði umhverfismála, vistvænnar orku og vísinda- og
tækniþekkingar. Myndir
frá ferð forseta til Abu Dhabi.
|
| 23.11.2009 |
Forseti ræðir
við starfsmenn íslensku verkfræðistofunnar Eflu
en verkfræðingar og tæknifræðingar á hennar vegum vinna nú við byggingu nýs
álvers í Abu Dhabi, EMAL, sem verður meðal stærstu álvera heims. Eflumenn
nýta sér á þessum vettvangi reynslu og þekkingu sem þeir hafa aflað sér á
Íslandi á undanförnum árum.
|
| 23.11.2009 |
Forseti
heimsækir byggingarsvæði hinnar væntanlegu Masdarborgar
sem ætlað er að verða fyrsta mengunarlausa borg veraldar. Útblástur
koltvísýrings verður enginn og allur úrgangur endurunninn. Forseti
skoðaði fyrirhugað borsvæði þar sem búið er að reisa undirstöður borsins en
áformað er að hefja boranir í leit að jarðhita í næsta mánuði. Að sögn
fulltrúa Reykjavik Geothermal verða þetta fyrstu jarðhitaboranirnar í
þessum heimshluta. Einnig skoðaði forseti rannsóknar- og háskólabyggingar sem
eru að rísa á svæðinu en hinir íslensku námsmenn við Masdarháskólann munu
taka til starfa í þessum byggingum snemma á næsta ári
|
| 25.11.2009 |
Forseti á
fund með fulltrúum alþjóðasamtaka um endurnýjanlega orku, IREA, um aukið starf samtakanna á
alþjóðavettvangi en í heimsókn forseta til Abu Dhabi var meðal annars rætt um
samvinnu samtakanna við hina nýju IRENA
stofnun sem og við Masdar, bæði í
tengslum við heimsþingið World Future Energy Summit sem haldið er í Abu Dhabi
og háskólann og rannsóknarstofnanir sem settar verða á fót í hinni nýju
Masdarborg.
|
| 27.11.2009 |
Forseti
afhendir Starfsmenntaverðlaunin við hátíðlega athöfn í húsakynnum BSRB. Verðlaunin
eru á vegum Starfsmenntaráðs. Verðlaunin hlutu, í flokki fyrirtækja
Securitas, í flokki skóla og fræðsluaðila Iðan fræðslusetur og í flokki
félagssamtaka Stjórnvísi. Forseti flutti ávarp við athöfnina og lagði áherslu
á aukið mikilvægi starfsmenntunar, bæði nú þegar glímt er við vaxandi
atvinnuleysi og eins á komandi árum og áratugum þegar flestar starfsgreinar
munu taka miklum stakkaskiptum.
|
| 27.11.2009 |
Forseti á
fund með sendiherra Ástralíu á Íslandi, frú Sharyn Minahan, sem senn lætur af
störfum. Rætt var um aukna samvinnu Íslands og Ástralíu á sviði
jarðhitanýtingar en nýr samningur um það efni skapar grundvöll fyrir
margvísleg verkefni. Einnig var fjallað um reynslu Íslendinga af landgræðslu
og baráttu við auðnir landsins en Ástralir glíma við hliðstæð vandamál. Mikil
breyting hefur orðið á viðhorfi Ástrala til baráttunnar við
loftslagsbreytingar en sú ríkisstjórn sem komst til valda í kjölfar siðustu
þingkosninga í landinu hefur gert baráttuna gegn loftslagsbreytingum og
nýtingu hreinnar orku að forgangsverkefni.
|
| 28.11.2009 |
Forseti
flytur ávarp á
afmælisfundi Þjóðræknisfélags Íslendinga sem haldinn er í Þjóðmenningarhúsinu
í tilefni af 70 ára afmæli félagsins. Þjóðræknisfélagið hefur sinnt
samskiptum við fólk af íslenskum ættum í Bandaríkjunum og Kanada og fluttu
sendimenn þessara ríkja á Íslandi sérstakar kveðjur á samkomunni. Atli
Ásmundsson ræðismaður í Winnipeg lýsti fjölþættu starfi sem fram fer í Kanada
og flutt var dagskrá í minningu Stephans G. Stephanssonar auk þess sem Gísli
Pálsson prófessor flutti erindi um mannfræði Vesturíslendinga. Einnig gerði
Caleum Vatnsdal grein fyrir listahátíð ungs fólks Núna Now sem undanfarin ár
hefur leitt saman ungt listafólk af íslenskum ættum bæði frá Íslandi og
Vesturheimi.
|
| 30.11.2009 |
Forseti sækir
fyrirlestur Helga Björnssonar prófessors og tekur við eintaki af nýju og
veglegu riti hans um jökla á Íslandi. Í stuttum ávarpsorðum lét forseti í
ljósi þá ósk að ritið kæmi fljótlega út á ensku eða öðrum alþjóðlegum málum
svo heimurinn hefði greiðan aðgang að þessari merku samantekt á rannsóknum
íslenskra vísindamanna á undanförnum áratugum.
|
| 30.11.2009 |
Forseti á
fund með Sturlu Sigurjónssyni sem senn tekur við starfi sendiherra Íslands í
Danmörku. Rætt var um samvinnu landanna og ýmis verkefni sem tengjast
sameiginlegri menningu og sögu sem og samskipti Íslands við þau lönd önnur
sem tilheyra umdæmi sendiherrans.
|
| 30.11.2009 |
Forseti ræðir við Frey Eyjólfsson dagskrárgerðarmann á Morgunvakt
Ríkisútvarpsins. Viðtalið verður flutt 1. desember og fjallar um eðli
fullveldis, stöðu þjóðarinnar og framtíðarhorfur. Frétt um
viðtalið á vef RÚV. Hljóðupptaka á
vef RÚV.
|
Desember
|
| 01.12.2009 |
Forseti
heldur móttöku til heiðurs Alþingi í tilefni af fullveldisdeginum 1. desember.
|
| 01.12.2009 |
Forseti tekur
á móti forystusveit stúdenta og stjórnendum háskólanna í landinu í tilefni af
fullveldisdeginum 1. desember.
|
| 01.12.2009 |
Forseti
flytur ávarp á
hátíð stúdenta við Háskóla Íslands á fullveldisdaginn 1. desember.
|
| 03.12.2009 |
Forseti
afhendir Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalagsins
í Salnum í Kópavogi. Verðlaunin eru veitt einstaklingum, fyrirtækjum,
stofnunum og samtökum sem lagt hafa mikið af mörkum í þágu fatlaðra og
velferðarmála, þjálfunar og endurhæfingar öryrkja. Forseti flutti stutt ávarp
við athöfnina þar sem hann þakkaði Öryrkjabandalaginu fyrir ötula baráttu
þess á undanförnum árum og fagnaði víðtækri samstöðu meðal þjóðarinnar um að
varðveita velferðarþjónustuna þrátt fyrir erfiðleika í efnahagslífi.
|
| 06.12.2009 |
Forseti á fund í Vínarborg með Kandeh K. Yumkella, framkvæmdastjóra
UNIDO, Iðnþróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Á fundinum var rætt um árangur
og þekkingu Íslendinga á sviði hreinnar orkunýtingar, hvernig sú tækni og
reynsla getur nýst þróunarríkjunum í baráttu þeirra við fátækt og fyrir
efnahagslegum framförum. Yumkella bauð forseta að sækja þing UNIDO í
Vínarborg.
|
| 07.12.2009 |
Forseti
flytur ræðu við setningu þings Iðnþróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNIDO, sem
haldið er í Vínarborg. Kandeh K. Yumkella framkvæmdastjóri UNIDO bauð forseta
Íslands að sækja þingið og kynna árangur og þekkingu Íslendinga á sviði
hreinnar orkunýtingar, hvernig sú tækni og reynsla getur nýst þróunarríkjunum
í baráttu þeirra við fátækt og fyrir efnahagslegum framförum.
Þingið sækja fulltrúar um 170 ríkja, meðal annars forsætisráðherrar Keníu og
Tansaníu, en í þeim löndum eru verulegar jarðhitaauðlindir, sem og ráðherrar
margra annarra ríkja, stjórnendur ríkjabandalaga í Afríku og Asíu og
fulltrúar ýmissa alþjóðastofnana. Fréttatilkynning. Ræða forseta. Myndir
|
| 08.12.2009 |
Forseti sækir
jólatónleika Hvítasunnukirkjunar Fíladelfíu en á hverju ári eru tónleikarnir
liður í fjársöfnun í þágu samhjálpar.
|
| 09.12.2009 |
Kveikt er á
jólatrjám við Bessastaðastofu með þátttöku barna úr Krakkakoti, Holtakoti og
Álftanesskóla. Mynd
|
| 10.12.2009 |
Forseti
heimsækir Rannsóknarstofnun landbúnaðarins í Wooster Ohio (Ohio Agricultural
Research and Development Center). Stofnunin er hluti af Ohioháskóla,
fjölmennasta háskóla Bandaríkjanna. Forseti átti viðræður við prófessora og
vísindamenn stofnunarinnar og skoðaði hið víðfeðma athafnasvæði hennar þar
sem fram fara margvíslegar gróður- og búskaparrannsóknir. Forseti flutti
einnig fyrirlestur í boði rannsóknarstofnunarinnar og háskólans.
Fyrirlesturinn bar heitið Soil as the New Soldier in Fighting Climate Change:
Iceland’s Lessons for World Sustainability og sóttu hann um 500 vísindamenn,
rannsakendur og stúdentar. Í fyrirlestrinum fjallaði forseti um
loftslagsbreytingar, bráðnun jökla og árangur af landgræðslu og gróðurvernd á
Íslandi, svo og hvaða lærdóma hún felur í sér fyrir aðrar þjóðir. Fyrirlestur forseta.
|
| 10.12.2009 |
Forseti situr
samræðukvöldverð með ýmsum forystumönnum The Ohio State University í Columbus
þar sem rætt er um framtíð háskóla í alþjóðasamfélaginu og hlutverk þeirra í
glímu þjóða við aðkallandi vanda, loftslagsbreytingar, góðureyðingu og
fleira.
|
| 11.12.2009 |
Forseti
flytur fyrirlestur í boði Alþjóðaráðs Columbusborgar (Columbus Council of
World Affairs) og fjallaði hann um loftslagsbreytingar, nýtingu hreinnar
orku, reynslu Íslendinga og möguleika Bandaríkjanna til að virkja jarðhita.
Fyrirlesturinn bar heitið The Future of Climate Change: Economic Growth
through Energy Transformation og sótti hann mikill fjöldi áhrifamanna úr
fræðasamfélagi og viðskiptalífi Ohio. Fyrirlestur
forseta.
|
| 13.12.2009 |
Ríkisháskólinn
í Ohio, fjölmennasti háskóli Bandaríkjanna, gerir forseta að heiðursdoktor
við hátíðlega athöfn í Columbus. Honum er veittur þessi heiður fyrir framlag
hans til alþjóðasamfélagsins og baráttunnar gegn loftslagsbreytingum, fyrir
að efla samstarf vísindamanna og fræðastofnana á vettvangi umhverfismála og
nýtingar náttúruauðlinda og stuðla þannig að launsum á brýnum vandamálum
veraldar. Athöfnin fór fram á hátíðarsamkomu háskólans og sóttu hana um
fimmtán þúsund manns: prófessorar, kennarar og starfslið háskólans,
útskriftarnemendur og fjölskyldur þeirra. Myndir.
|
| 15.12.2009 |
Forseti tekur
við bókinni Ræktun fólks og foldar sem fjallar um ævisögu Runólfs Sveinssonar
sandgræðslustjóra og konu hans Valgerðar Halldórsdóttur en í bókinni er að
finna ítarlega lýsingu á baráttunni fyrir landgræðslu, fræðilegum rannsóknum
og breyttum búskaparháttum. Höfundur bókarinnar er Friðrik G. Olgeirsson sem
einnig skrifaði bókina Sáðmenn sandanna um sögu landgræðslu á Íslandi. Myndir
|
| 16.12.2009 |
Forseti á
fund með Kristjáni Jóhannssyni óperusöngvara um þróun tónlistarlífs, eflingu
söngmennta og framtíðarverkefni en Kristján hefur undanfarið kennt efnilegum
íslenskum söngvurum.
|
| 16.12.2009 |
Forseti á
fund með Kristínu Árnadóttur sem senn tekur við starfi sendiherra Íslands í
Kína um samvinnu landanna og margvísleg samstarfsverkefni.
|
| 17.12.2009 |
Forseti ræðir
við Jakob Möller, sérfræðing í mannréttindamálum, um afmælisrit til heiðurs
prófessor Guðmundi Alfreðssyni sem lengi hefur verið í forystu
mannréttindarannsókna á alþjóðavettvangi.
|
| 17.12.2009 |
Forseti ræðir
við fulltrúa Brahma Kumaris um starfsemi hreyfingarinnar á Íslandi og á
Indlandi en hún hefur um árabil rekið öfluga starfsemi á Íslandi.
|
| 18.12.2009 |
Forseti er
viðstaddur úthlutun úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins en verðlaunin hlaut í
ár Linda Vilhjálmsdóttir skáld.
|
| 19.12.2009 |
Forseti á
fund með Dagfinni Sveinbjörnssyni um rannsóknarverkefni á Indlandi, sem
einkum tengjast vatnabúskap, jöklum og jarðvegsþróun í Himalajafjöllum.
|
| 21.12.2009 |
Forseti á
fund með fulltrúum ýmissa íslenskra arkitektastofa um hvernig reynsla við
hönnun húsa, hverfa og bæja á Íslandi á undanförnum áratugum getur nýst í
öðrum löndum, einkum með tilliti til húsagerðar þar sem byggt er á nýtingu
hreinnar orku og þar sem taka þarf tillit til síbreytilegra veðurskilyrða.
|
| 21.12.2009 |
Forseti
á fund með Kristínu Árnadóttur sem senn tekur við embætti sendiherra Íslands
í ýmsum löndum í Asíu, svo sem Víetnam, Suður-Kóreu, Taílandi, svo og í
Ástralíu. Rætt var um samskpti Íslands við þessi ríki og margvísleg
samstarfsverkefni.
|
| 22.12.2009 |
Forseti á
fund með Guðmundi Björnssyni og Kristni Guðmundssyni, stjórnendum Samsýnar,
um kortlagningu norðurslóða, landkosta, auðlinda og náttúrueinkenna en Samsýn
hefur sérhæft sig í kortlagningu slíkra landkosta.
|
| 29.12.2009 |
Forseti er
viðstaddur afhendingu verðlauna úr sjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright en
athöfnin fór fram í Þjóðminjasafninu. Verðlaunin hlaut að þessu sinni
Höskuldur Þráinsson fyrir rannsóknir sínar í málvísindum og á íslenskri
tungu. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi framlag í vísindum.
|
| 31.12.2009 |
Forseti
staðfestir á ríkisráðsfundi ýmis lög og stjórnarathafnir sem afgreidd höfðu
verið utan ríkisráðs. Þá lýsti forseti yfir, þegar fjármálaráðherra gerði
tillögu um staðfestingu svonefndra Icesavelaga, að hann myndi ekki taka
afstöðu til tillögunnar á þessum fundi þar eð aðeins um hálfur sólarhringur
væri liðinn frá því Alþingi samþykkti málið og gefin hefðu verið fyrirheit um
að forseti tæki við undirskriftum sem safnað hefur verið að undanförnu. Þá
hefði forseti einnig hlýtt á ummæli alþingismanna við afgreiðslu málsins.
|