Veftré Print page English

Ýmsir atburðir úr dagskrá forseta

Hér birtist skrá yfir ýmsa atburði í dagskrá forseta en auk þeirra sem hér eru nefndir er fjöldi annarra þátta sem ekki eru tilgreindir,  t.d. fundir með ráðherrum og embættismönnum, fulltrúum fyrirtækja og samtaka og fjölmörgum einstaklingum með margvísleg erindi og erlendum gestum sem til Íslands koma. Þá sækir forsetinn jafnframt fjölda menningarviðburða sem ekki eru raktir hér, s.s. leiksýningar, myndlistasýningar, tónleika og aðra mannfagnaði.

Árið 2010


11.03.2010 Forseti afhendir Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins en þau eru veitt í fjórum flokkum auk heiðursverðlauna. Flokkarnir eru: Hvunndagshetjan, Frá kynslóð til kynslóðar, Til atlögu gegn fordómum og Samfélagsverðlaunin. Athöfnin fer fram í Þjóðmenningarhúsinu.
10.03.2010
Forseti afhendir heiðursverðlaun Menningarverðlauna DV fyrir árið 2009 við hátíðlega athöfn í Iðnó. Verðlaunin hlaut Jórunn Viðar tónskáld og flutti forseti stutt ávarp um störf hennar og tónsmíðar, framlag til íslenskrar tónlistar í meira en hálfa öld.
08.03.2010
Forseti ræðir við fréttamann japanska stórblaðsins Nikkei um þjóðaratkvæðagreiðsluna, lærdómana sem draga má af henni og stöðu Icesave málsins, bæði frá sjónarhóli viðsemjenda og í alþjóðlegu samhengi
07.03.2010
Forseti ræðir við BBC World Service í umræðuþætti um heimsmálin, er í viðtali við BBC TV News og ræðir síðdegis við fréttamann BBC World Service News and Current Affairs. Þá ræðir forseti einnig við blaðamann Financial Times, þýsku sjónvarpsstöðvarinnar ARD og fréttamann frá alþjóðlegu fréttastofunni Ritzau sem og við Ríkissjónvarpið.
06.03.2010
Forseti ræðir við Joseph Melillio leikhúsfrömuð frá New York og fulltrúa Vesturports um íslenskt leikhús í alþjóðlegu ljósi, framlag þess til nýsköpunar í leikhúsi og einstakar sýningar eins og Rómeó og Júlíu, Hamskiptin og Fást.
06.03.2010
Forseti ræðir í beinni útsendingu við þrjár útvarpsstöðvar BBC, BBC5, Today's Program á BBC4 og BBC World Service. Þá ræddi forseti við norska og hollenska blaðamenn, Al Jazeera sjónvarpsstöðina, AFP fréttastofuna og öðru sinni við Bloomberg sjónvarpsstöðina. Loks ræddi forseti við Ríkisútvarpið og Stöð 2/Bylgjuna. Hlusta á viðtal við Ríkisútvarpið á vef RÚV.
05.03.2010
 Forseti tekur á móti hópi stúdenta í verkefninu IceMUN þar sem þeir kynna sér starfsemi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna með því að gegna hlutverkum ýmissa ríkja sem sitja í ráðinu. Rætt var um þróun Öryggisráðsins og ýmis vandamál sem það tekur til meðferðar sem og lærdómana af baráttu Íslands fyrir sæti í ráðinu.
05.03.2010
Forseti ræðir við erlenda fjölmiðla um þjóðaratkvæðagreiðsluna og stöðuna í viðræðum Íslendinga við Breta og Hollendinga: Hollenska fréttaþáttinn Nova og hollenska ríkissjónvarpið, Bloomberg sjónvarpsstöðina, BBC sjónvarp og Richard Quest á alþjóðarás CNN.
04.03.2010
Forseti afhendir Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi við hátíðlega athöfn en um fimmtíu stjórnendur hafa verið tilnefndir til verðlaunanna. Nánar, sjá stjornvisi.is.
04.03.2010
Forseti á fund með prófessor Kevin L. Keller, sérfræðingi í markaðsmálum, og forystumönnum ÍMARKS, félags markaðsfólks á Íslandi, um áherslur í landkynningu og sérstöðu Íslands, bæði í nútíð og framtíð.
02.03.2010 Forseti afhendir Nýsköpunarverðlaun á Bessastöðum.
Markmið verðlaunanna er að heiðra námsmenn sem unnið hafa framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt eru af Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Fimm verkefni eru tilnefnd til verðlaunanna í ár. Verðlaunin hlýtur Ásgeir Bjarnason fyrir verkefnið Súrefnismettunar- og hjartsláttarnemi.  Fréttatilkynning 
02.03.2010
Forseti á fund með nýjum sendiherra Alsírs hr. Fatah Mahraz sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um nýtingu jarðhita í Alsír og nauðsyn þess að gera áætlun um slíka þróun, hvernig íslenskir sérfræðingar og verkfræðifyrirtæki geti tekið þátt í þróun byggðar sem tekur mið af vörnum gegn jarðskjálftum. Einnig var fjallað um deildir Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi á sviði jarðhita, fiskveiða og landgræðslu. Mynd
01.03.2010
Forseti sendir forseta Chile, Michelle Bachelet, samúðarkveðjur sínar og íslensku þjóðinnar vegna jarðskjálftanna í landinu. Fréttatilkynning.
28.02.2010
Forseti er viðstaddur setningu Búnaðarþings. Þar fluttu ræður Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtaka Íslands og Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Einnig voru veitt Landbúnaðarverðlaun. Kjörorð Búnaðarþings er "Aftur kemur vor í dal".
27.02.2010
Forseti er viðstaddur þegar Edduverðlaunin eru afhent en þau eru heiðursverðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Sjónvarpað er frá athöfninni.
27.02.2010
Forseti er viðstaddur brautskráningu stúdenta við Háskóla Íslands. Um 480 stúdentar voru brautskráðir frá öllum deildum háskólans.
25.02.2010 Forseti er viðstaddur minningarathöfn um Neil Bardal, fyrrum aðalræðismann Íslands í Winnipeg. Minningarathöfnin er í Þjóðmenningarhúsinu.
25.02.2010 Forseti sækir frumsýningu á frumsömdum rokksöngleik sem leikfélag Fjölbrautaskóla Garðabæjar setur upp. Rokksöngleikurinn ber heitið Déjà Vu og sömdu nemendur verkið en sýningin er á vegum leikfélags skólans Verðandi.
24.02.2010

Forseti og forsetafrú heimsækja Norðlingaskóla í Reykjavík. Norðlingaskóli hlaut Íslensku menntaverðlaunin árið 2009 í flokki skóla sem sinnt hafa vel nýsköpun í fræðslustarfi.

Fulltrúar nemenda, skólastjórnendur og kennarar Norðlingaskóla taka á móti forsetahjónunum í Björnslundi, útiskólastofu skólans þar sem boðið er upp á skógarkakó og flatkökur. Í kjölfarið heimsækja forsetahjón kennslustofur, kynna sér kennsluhætti og aðbúnað, viðhorf nemenda og starfsfólks. Farið er m.a. í leikhússmiðju, ritunarsmiðju og rúmfræðismiðju. Myndir
Umsögn dómnefndar. Fréttatilkynning

23.02.2010 Forseti á fund með nýjum sendiherra Afganistans frú Manizha Bakhtari sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um stöðuna í Afganistan, baráttuna við Talibana, þróunina frá síðustu kosningum og þátttöku alþjóðasamfélagsins í endurreisn og uppbyggingu. Mynd
23.02.2010 Forseti á fund með nýjum sendiherra Króatíu hr. Ladislav Pivcevic sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um þróun mála í Króatíu, glímuna við margvíslega erfiðleika og samskipti við Evrópusambandið, svo og möguleika á aukinni samvinnu Íslands og Króatíu á sviði menningarmála. Mynd
22.02.2010 Forseti situr kvöldverð í boði sendiherra Indlands á Íslandi, Sivaraman Swaminathan, þar sem rætt var um árangur af ferð forseta til Indlands  í janúarmánuði og hvernig ýmis samstarfsverkefni verði þróuð á næstunni.
22.02.2010
Forseti sendir samúðarkveðjur til forseta Portúgals vegna hinna hörmulegu náttúruhamfara á Madeira þar sem tugir manna hafa látið lífið. Fréttatilkynning.
19.02.2010
Forseti var heiðursgestur á árshátíð Politica, félags stúdenta í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands en í ár eru 40 ár liðin síðan kennsla hófst í stjórnmálafræði við skólann og forseti tók doktorspróf í greininnni. Forseti flutti ávarp og tók við viðurkenningu félagsins.
19.02.2010
Forseti afhendir Steinsteypuverðlaunin á málþingi sem helgað er steinsteypudeginum. Verðlaunin eru veitt til að vekja athygli á frumlegri hönnun og til að efla samvinnu arkitekta og verkfræðinga á sviði steinsteyptra mannvirkja svo og að stuðla að framsæknu viðhorfi í íslenskum byggingariðnaði. Í dómnefnd verðlaunanna eru fulltrúar frá Steinsteypufélagi Íslands, Verkfræðingafélagi Íslands, Listaháskóla Íslands, Arkitektafélagi íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
18.02.2010
Forseti ræðir við hóp norrænna laganema sem eru á Íslandi á vegum Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, um stjórnskipun landsins og forsetaembættið.
18.02.2010
Forseti á viðræður við Skúla Barker sem færði forseta að gjöf bókina Tragedy and Hope eftir bandaríska sagnfræðinginn Carroll Quigley.
18.02.2010
Forseti tekur á móti hópi nemenda í sögu frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og ræðir við þá um sögu Bessastaða og forsetaembættið.
17.02.2010
Forseti sækir frumsýningu Menntaskólans við Sund á leikritinu Aladdin sem fram fór í Norðurpólnum, nýrri listamiðstöð í gamalli verksmiðju á Seltjarnarnesi.
16.02.2010 Forseti á fund með nýjum sendiherra Makedóníu frú Marija Efremova sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um áhuga Makedóníumanna á aðild að Atlantshafsbandalaginu og Evrópusambandinu, þörfina á lausn deilumála við Grikkland sem og ýmsa möguleika í aukinni samvinnu Íslands og Makedóníu. Mynd 
16.02.2010
Forseti á fund með nýjum sendiherra Venesúela hr. Jose de Jesus Sojo Reyes sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um þróun orkumála í veröldinni, hvernig olíuríki eins og Venesúela leggja aukna áherslu á verkefni á sviði endurnýjanlegrar orku en vatnsorka er nýtt á öflugan hátt í Venesúela. Rætt var um möguleika á samvinnu við íslenska verkfræðinga og orkufyrirtæki, einnig á sviði jarðhita. Þá var og rætt um tækifæri til aukinnar samvinnu á sviði menningar og lista, m.a. með þátttöku í listahátíðum, bókmenntahátíðum og kvikmyndahátíðum. Mynd
16.02.2010
Forseti á fund með nýjum sendiherra Bangladess á Íslandi hr. Imtiaz Ahmed sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um þróun stjórnarfars í Bangladess, verkefni nýrrar lýðræðislega kjörinnar stjórnar, áherslur á fæðuöryggi og hvernig hækkun sjávarborðs vegna loftslagsbreytinga ógnar öryggi og lífsháttum í Bangladess. Mynd
15.02.2010

Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, var afhent á Bessastöðum. Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff forsetafrú og var það hún sem afhenti viðurkenninguna og verðlaunagripinn. Að þessu sinni var það tónlistarhátíðin Bræðslan sem hlaut Eyrarrósina. Myndir.

15.02.2010
Forseti ýtir úr vör söfnun ABC-barnahjálpar með því að taka á móti fjörutíu grunnskólabörnum úr Álftanesskóla sem eru fulltrúar þeirra barna sem munu á næstu dögum og vikum safna fé til hjálpar börnum á Indlandi og Burkina Faso. Söfnunin ber heitið Börn hjálpa börnum og verður söfnunarfénu varið til að byggja skóla á Indlandi sem þjóna mun 250 börnum í Tamil Nadu og til að safna fyrir 150 sólarofnum fyrir fátækar fjölskyldur í Burkina Faso en þeir ofnar munu bæði spara tíma og peninga, draga úr óæskilegu skógarhöggi og jarðvegseyðingu og gera íbúunum kleift að nýta sólarorku á nýjan hátt.
11.02.2010
Forseti sækir afmælishátíð Félags heyrnarlausra í tilefni af fimmtíu ára afmæli félagsins. Forseti tekur við fyrsta eintakinu af bókinni Saga heyrnarlausra á Íslandi og flytur ávarp. Ávarp forseta.
10.02.2010
Forseti afhendir Íslensku bókmenntaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Í flokki fagurbókmennta hlaut þau Guðmundur Óskarsson fyrir skáldsöguna Bankster. Í flokki fræðirita og rita almenns efnis hlaut verðlaunin Helgi Björnsson fyrir ritið Jöklar á íslandi.
09.02.2010 Forseti tekur á móti hópi einhverfra barna á Bessastöðum og fylgdarfólki þeirra og sýnir þeim staðinn og margvíslega gripi sem þar er að finna.
09.02.2010 Forseti á fund með nýjum sendiherra Möltu hr. Paul Bonello sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um stöðu eyríkja í Evrópu, sjávarútveg og reynslu Möltu af aðild sinni að Evrópusambandinu. Mynd.
09.02.2010 Forseti á fund með nýjum sendiherra Kólumbíu á Íslandi hr. Rafael Nieto Navia sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um samvinnu á sviði menningar og lista, hugsanlega þátttöku í lista- og bókmenntahátíðum á Íslandi, sem og nýtingu hreinnar orku í Kólumbíu í samstarfi við nágrannalönd í Mið- og Suður-Ameríku. Mynd.
09.02.2010
Forseti á fund með nýjum sendiherra Austurríkis dr. Daniel Krumholz sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um Evrópumótið í handbolta sem haldið var í Austurríki, möguleika á samvinnu á sviði hreinnar orku í Mið- og Austur-Evrópu, samstarf Íslands og Austurríkis á alþjóðavettvangi sem og viðhorf Austurríkis til umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Mynd.
08.02.2010
Forseti tekur á móti eintaki af nýrri sögu Kaupfélags Skagfirðinga en stjórnarformaður Kaupfélagsins og kaupfélagsstjóri færðu forseta hana á Bessastöðum
08.02.2010
Forseti á fund með forráðamönnum ráðstefnunnar Driving Sustainability sem haldin hefur verið á Íslandi á undanförum árum en hún er helguð alþjóðlegri umfjöllun um umhverfisvænar samgöngur. Rætt var um þróun ráðstefnunnar, möguleika Íslendinga til að gera bílaflota sinn vistvænni og uppbyggingu umfjöllunar um þessi efni í öðrum löndum.
06.02.2010
Forseti sækir Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélags í Reykjavík þar sem fjölmargir iðnsveinar voru heiðraðir fyrir góðan námsárangur og meisturum þeirra afhentar viðurkenningar. Einnig var tilkynnt um val á iðnaðarmanni ársins og var það Björgvin Tómasson orgelsmiður. Forseti flutti ávarp við atöfnina en einnig fluttu ræður Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson forseti borgarstjórnar.
05.02.2010 Forseti sækir frumsýningu Halaleikhópsins á verkinu Sjöundá - Svartfugl en það er byggt á verki Gunnars Gunnarssonar í nýrri leikgerð Ágústu Skúladóttur og Þorgeirs Tryggvasonar. Leikhópurinn samanstendur af ólíkum einstaklingum, fötluðum sem ófötluðum, og var hann stofnaður árið 1992 og hefur haft að markmiði að iðka leiklist fyrir alla. Meðal styrktaraðila leikhópsins eru Sjálfsbjörg og Öryrkjabandalag Íslands.
01.02.2010
Forseti birtir kveðju vegna andláts Steingríms Hermannssonar fyrrverandi forsætisráðherra. Kveðja.
31.01.2010
Forseti er viðstaddur leik Íslands og Póllands á Evrópumótinu í handbolta sem haldið er í Vín, heilsar upp á leikmenn að loknum sigri þeirra, er viðstaddur verðlaunaathöfn mótsins og ræðir við forystumenn handknattleikssambandsins og ÍSÍ sem einnig voru á þessum lokadegi mótsins. Þá var forseti viðstaddur úrslitaleik mótsins þar sem Frakkar og Króatar áttust við
29.01.2010
Forseti sækir fundi og ræðir við fjölmiðla í Davos. Fréttatilkynning.
27.01.2010
Forseti sækir Alþjóða efnahagsþingið í Davos. Fréttatilkynning.
19.01.2010
Forseti á fund með forseta Maldíveyja, Mohamed Nasheed, í Abu Dhabi þar sem báðir sóttu Heimsþing hreinnar orku. Fréttatilkynning. Mynd.
16.01.2010

Á síðasta degi opinberrar heimsóknar á Indlandi heimsækir forseti samstarfsaðila ýmissa íslenskra fyrirtækja í Bangalore. 

Dagurinn hófst með heimsókn til InfoSys, eins stærsta upplýsingatæknifyrirtækis í veröldinni, með um 100.000 starfsmenn. Þar var rætt um stofnun gagnavera á Íslandi og þróun og prófun hugbúnaðar á Íslandi sem nýta má á alþjóðlegum markaði í samstarfi við öfluga aðila. Forseti skoðaði einnig hið nýja og glæsilega svæði InfoSys í Bangalore þar sem er fjöldi nýrra bygginga en fyrirtækið rekur átta slík svæði á Indlandi. Meðalaldur starfsmanna fyrirtækisins er 26 ár.

Þá heimsótti forseti Hindustan Turbomachinery þar sem er verið að smíða jarðhitaver sem kemst fyrir í einum gámi og er nokkur megavött. Jarðhitaverið er þróað af íslenska tæknifyrirtækinu Kaldara sem falið hefur Indverjum smíði þess. Það fyrsta verður sett upp í Kenía í apríl og það næsta prófað við Hellisheiðarvirkjun á Íslandi. Gerð slíkra smárra jarðhitavera getur valdið byltingu í nýtingu jarðhita víða um heim. Íslenska fyrirtækið Alvar er einnig að ræða við Hindustan Turbomachinery um smíði bora sem auðveldað geta fyrstu stig við könnun á jarðhita.

Að því loknu heimsótti forseti Lotus rannsóknafyrirtækið sem prófar og þróar ný lyf á vegum Actavis en fyrirtækið hefur þrefaldað stærð sína frá því forseti var viðstaddur undirritun samnings Lotus og Actavis fyrir fimm árum. Fyrirtækið gegnir lykilhlutverki í framtíðarþróun Actavis.

Einnig tók forseti þátt í málþingi á vegum stofnunarinnar Mobility India sem hjálpar fötluðu fólki í þorpum og í fátækari hverfum Bangalore að lifa eðlilegu lífi. Íslenska fyrirtækið Össur hefur gerst samstarfsaðili Mobility India og var því samstarfi fagnað sérstaklega á málþinginu. Forseti skoðaði einnig verkstæði og starfsemi stofnunarinnar og hélt ræðu á málþinginu um mikilvægi þess að slíkt samstarf gæti orðið til að auðvelda fólki að njóta lífsins á nýjan leik.

Um kvöldið sat forseti hátíðarkvöldverð í boði ríkisstjóra Karnatakafylkis Hans R. Bhardwaj þar sem viðstaddir voru fulltrúar margra íslenskra aðila sem eiga í samstarfi í Bangalore.
15.01.2010 Opinber heimsókn til Indlands: Forseti átti fund með Ratan Tata, forstjóra Tata samsteypunnar sem er eitt öflugasta fyrirtæki Indlands á heimsvísu, umsvifamikið í margvíslegum iðnaði, upplýsingatækni, bílaframleiðslu og fleiri greinum , bæði í Asíu, Evrópu og Ameríku. Ratan Tata þáði boð forseta um að heimsækja Ísland til að kynna sér nánar árangur landsins á ýmsum sviðum. Sjá nánar í fréttatilkynningu. Myndir
14.01.2010 Forsetahjónin og aðrir íslenskir gestir sitja hátíðarkvöldverð sem forseti Indlands Pratibha Patil býður til í hinni sögufrægu forsetahöll Rashtrapati Bhavan. Ræða forseta.
14.01.2010 Opinber heimsókn tilIndlands: Forseti Indlands frú Pratibha Patil afhenti fyrr í dag forseta Nehruverðlaunin við hátíðlega athöfn í Delí að viðstöddum forsætisráðherra Indlands Manmohan Singh, varaforsetanum Mohammad Hamid Ansari, ráðherrum og fjölda indverskra áhrifamanna ásamt Soniu Gandhi leiðtoga Kongressflokksins. Ræða forsetaFréttatilkynning. Myndir 
14.10.2010 Forseti sendi samúðarkveðjur til forseta Haítí. Fréttatilkynning
14.01.2010 Opinber heimsókn til Indlands: Indland: samvinna og stuðningur, sjá nánar í fréttatilkynningu. Myndir
12.01.2010
Opinber heimsókn forseta til Indlands hefst; sjá nánar í fréttatilkynningu.
09.01.2010
Forseti sækir árlegan hátíðarkvöldverð klúbbs matreiðslumeistara þar sem úrvalssveit íslenskra matreiðslumanna bar á borð nýja rétti byggða á íslensku hráefni, fiski, kjöti, gróðri og grösum. Í lok hátíðarkvöldverðarins flutti forseti ávarp, þakkaði fyrir hönd gesta frábæra frammistöðu íslenskra matreiðslumanna á undanförnu ári og árum en íslensk matargerð væri orðin öflugur þáttur í vaxandi ferðaþjónustu sem skapaði Íslandi mikilvægan gjaldeyri á erfiðum tímum.
09.01.2010
Forseti tekur þátt í hátíð vegna sextíu ára afmælis skátafélagsins Landnema, heimsækir skátaheimilið og er viðstaddur skemmtun í kvöldvökustíl. Forseti var á sínum yngri árum félagi í Landnemum og er nú verndari Skátahreyfingarinnar.
08.01.2010
Forseti ræðir við fréttamann Bloomberg, í beinni útsendingu í morgunþætti þessarar alþjóðlegu viðskiptasjónvarpsstöðvar. Þá ræddi forseti einnig við blaðamann frá Aftenposten í Noregi.
07.01.2010
Forseti á samræður við fulltrúa íslenskra fjölmiðla, sjónvarpsstöðva, útvarpsstöðva og blaða á Bessastöðum þar sem ítarlega var rætt um ákvörðun forseta, atburði síðustu daga og viðbrögð hérlendis og erlendis.Hljóðupptaka frá fundinum á vef RÚV.
07.01.2010
Forseti ræðir við morgunþætti á tveimur rásum BBC, bæði BBC 4 Today og BBC 5 Live þar sem forseti svaraði meðal annars spurningum frá hlustendum. Þá ræddi forseti einnig við fréttamenn norska sjónvarpsins og danska sjónvarpsins. Fjallað var um ákvörðun forseta, stöðu Icesave málsins, viðbrögð á alþjóðavettvangi og á Íslandi, stuðning við málstað Íslendinga og framtíðarhorfur í íslensku efnahagslífi. Þá ræðir forseti við fulltrúa Sunday Times blaðsins í Bretlandi en það kemur út um helgina.
06.01.2010 Forseti ræðir við Jeremy Paxman aðalstjórnanda breska fréttaþáttarins Newsnight á BBC um ákvörðun forseta, stöðu Icesave málsins, afstöðu Íslendinga og farsæla sambúð við aðrar þjóðir. Viðtalið á YouTube.
06.01.2010 Forseti ræðir við fjölmarga fjölmiðla í Bretlandi, Hollandi og öðrum Evrópulöndum, m.a. BBC, CNN, Financial Times og hollenska útvarpið.
06.01.2010 Forseti á fund með nýjum sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi Timo Summa en Evrópusambandið hefur nú opnað sendiráð á Íslandi. Rætt var um samstarf Íslands við Evrópusambandið á undanförnum árum, bæði innan EES samningsins og Schengen, þróun mála á Norðurslóðum,  umræður á Íslandi um aðildina að Evrópusambandinu og stöðu efnahagsmála. Mynd
05.01.2010 Forseti er viðstaddur val á íþróttamanni ársins við hátíðlega athöfn þar sem einnig voru heiðraðir þeir sem voru valdir íþróttamenn ársins í einstökum keppnisgreinum. Á hátíðinni voru fjölmargir sem áður höfðu verið valdir íþróttamenn ársins, afreksfólk í íþróttum og forystufólk íþróttahreyfingarinnar auk íþróttafréttamanna. Ólafur Stefánsson var valinn íþróttamaður ársins. Athöfninni var sjónvarpað og í upphafi hennar flutti forseti ávarp. Vefur RÚV.
05.01.2010 Forseti afhendir Íslensku bjartsýnisverðlaunin við hátíðlega athöfn í Iðnó en þau hlaut að þessu sinni Vikingur Heiðar Ólafsson píanóleikari.
05.01.2010 Forseti flutti yfirlýsingu um niðurstöðu sína varðandi hin svonefndu Icesave lög á blaðamannafundi á Bessastöðum. Yfirlýsing forseta. English translation.
02.01.2010 Forseti á fund með fulltrúum InDefence hópsins eftir að þeir afhentu forseta undirskriftir rúmlega 58.000 Íslendinga þess efnis að forseti synji nýjum IceSave lögum staðfestingar. Á fundinum fjölluðu fulltrúar hópsins um þau sjónarmið og rök sem áskorunin styðst við.
01.01.2010

Nýársmóttaka forseta á Bessastöðum fyrir ráðherra, hæstaréttardómara, alþingismenn, sendiherra, ræðismenn, forystumenn ríkisstofnana og embættismenn, forystumenn félagasamtaka, stéttarsamtaka og atvinnulífs og aðra gesti.

01.01.2010 Forseti sæmir tíu Íslendinga riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Fréttatilkynning
01.01.2010 Forseti flytur nýársávarp sem sjónvarpað er frá Bessastöðum. Ensk þýðingFlutningur