Veftré Print page English

Íslensku menntaverðlaunin


Forseti Íslands afhendir ár hvert Íslensku menntaverðlaunin en til þeirra var stofnað af forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni á grundvelli hugmynda sem hann kynnti í nýársávarpi 1. janúar 2005.

Íslensku menntaverðlaunin eru einkum bundin við grunnskólastarfið. Verðlaun eru veitt í fjórum flokkum:
1. Skólum sem sinnt hafa vel nýsköpun eða farsælu samhengi í fræðslustarfi
2. Kennurum sem skilað hafa merku ævistarfi eða á annan hátt hafa skarað fram úr.
3. Ungu fólki sem í upphafi kennsluferils hefur sýnt hæfileika og lagt alúð við starf sitt.
4. Höfundum námsefnis sem stuðlað hafa að nýjungum í skólastarfi.

Tvær dómnefndir eru skipaðar til þess að velja úr tilnefningum og ábendingum.

Í dómnefnd um skóla og námsefni:
Ellert Borgar Þorvaldsson, skólastjóri Ártúnsskóla
Svafa Grönfeldt, fv. rektor Háskólans í Reykjavík
Börkur Hansen, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Finnur Friðriksson, lektor við Háskólann á Akureyri
Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri Dalvíkur


Í dómnefnd um kennara:
Hafrún Dóra Júlíusdóttir, fv. formaður skólanefndar Hafnarfjarðar
Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri
Ólafur H. Jóhannsson, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Valgeir Gestsson, fv. skólastjóri
Ragna Ólafsdóttir, fv. skólastjóri


Sparisjóðirnir í landinu eru styrktaraðilar Íslensku menntaverðlaunanna og vinna að framgangi þeirra í samvinnu við embætti forseta Íslands. Guðbrandur Stígur Ágústsson er verkefnisstjóri Íslensku menntaverðlaunanna.

Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna skulu berast fyrir 30. apríl 2010.