Veftré Print page English

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands


Merki Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ)Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) var stofnað 28. janúar 1912 undir heiti Íþróttasambands Íslands. Við sameiningu Íþróttasambands Íslands og Ólympíunefndar Íslands árið 1997 breyttist nafnið í Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. ÍSÍ er stærsta fjöldahreyfing á Íslandi.

 

Samkvæmt lögum frá Alþingi er ÍSÍ æðsti aðili um frjálsa íþróttastarfsemi í landinu. Sambandið er byggt upp af 25 sérsamböndum, 27 héraðssamböndum/íþróttabandalögum og um 450 íþrótta- og ungmennafélögum og 400 deildum þeirra, eða samtals um 1000 sambandsaðilum. Öll íþrótta- og ungmennafélög á Íslandi eru aðilar að ÍSÍ.

 

Starfsemi ÍSÍ er afar fjölbreytt á landsvísu. Sambandið heldur m.a. úti öflugu fræðslu- og gæðastarfi í hreyfingunni ásamt því að hafa umsjón með afreksstefnu og afreksstarfi innan íþróttanna og sinna framkvæmd og umsýslu lyfjaeftirlits. Starfsemi ÍSÍ skiptist í þrjú svið: afreksíþróttasvið, fræðslusvið og almenningsíþróttasvið.

 

Höfuðstöðvar íþróttahreyfingarinnar eru í Laugardal í Reykjavík. Forseti ÍSÍ er Ellert B. Schram og framkvæmdastjóri er Stefán Konráðsson.

 

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands er verndari ÍSÍ.

 

Vefsvæði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands