Forseti á fund með Timo Soini, utanríkisráðherra Finnlands, ásamt embættismönnum. Á fundinum var m.a. rætt um góð samskipti landanna, aukinn ferðamannastraum og viðburði sem fyrirhugaðir eru á næsta ári í tengslum við aldarafmæli sjálfstæðis Finnlands. Þá var einnig rætt um sambúð Finna og Rússa og málefni Evrópusambandsins í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Bretlandi. Fundinn sat einnig Kristín A. Árnadóttir, sendiherra Íslands í Finnlandi. Myndir.
Fréttir
|
07. okt. 2016
Utanríkisráðherra Finnlands
Aðrar fréttir
Fréttir
|
16. apr. 2024
Forsætisráðherra Skotlands
Forsetahjón eiga fund með Humza Yousaf.
Lesa frétt