Forseti Íslands afhendir stjórnunarverðlaun stjórnunarfélagsins Stjórnvísi á hátíð félagsins í Reykjavík. Frumkvöðlaverðlaunin hlaut Eyrún Eggertsdóttir, stofnandi Róró. Hafsteinn Bragason, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Íslandsbanka, fékk verðlaun í flokki millistjórnenda og hjá yfirstjórnendum varð Þóra Björk Þórisdóttir, forstjóri Nordic Visitor, fyrir valinu. Heiðursverðlaun Stjórnvísi voru veitt í fyrsta sinn. Þau féllu í hlut Margrétar Guðmundsdóttur, stjórnarformanns N1 og fyrrverandi forstjóra Icepharma hf.
Fréttir
|
08. mars 2017
Stjórnvísi
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt