Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Noregs, Aud Lise Norheim, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um samskipti ríkjanna og þau sögulegu menningartengsl sem tengja þau nánum böndum. Þá var rætt um formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni og Norðurskautsráðinu, atbeina Íslands í mannréttindamálum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og sameiginlegar áskoranir í bráð og lengd, ekki síst á sviði öryggis- og loftslagsmála, sem tengjast í raun þegar vel er að gáð.
![](/media/5354/sendihnoregs2019.jpg?width=950)
Fréttir
|
01. okt. 2019
Sendiherra Noregs
Aðrar fréttir
Fréttir
|
14. júlí 2024
Árneshreppur á Ströndum
Forseti fer í sína síðustu opinberu heimsókn innanlands.
Lesa frétt
Fréttir
|
11. júlí 2024
Ólympíufarar kvaddir
Forsetahjón taka á móti Ólympíuliði Íslands.
Lesa frétt
Fréttir
|
11. júlí 2024
Nýr Landspítali
Forsetahjón heimsækja framkvæmdasvæði Nýs Landspítala.
Lesa frétt