Forsetahjón heimsækja Grindavík og ræða við heimamenn um jarðhræringar sem valdið hafa usla á Reykjanesskaga og viðbúnað við þeim. Fannar Jónasson bæjarstjóri tók á móti forsetahjónum á skrifstofum Grindavíkurbæjar þar sem þau ræddu við fulltrúa bæjarstjórnar og starfsfólk. Næst litu þau við hjá ungmennum að störfum á vegum Vinnuskóla Grindavíkurbæjar. Þaðan var haldið niður á höfn þar sem forsetahjón heimsóttu skrifstofur útgerðarinnar Þorbjörns og fylgdust með löndun úr frystitogaranum Hrafni Sveinbjörnssyni. Forsetahjón voru gestir á vikulegum fundi eldri borgara í Kviku, menningarhúsi Grindavíkur. Þau litu við í versluninni Blómakoti, þar sem tjón varð í skjálftunum og snæddu að því loknu hádegisverð ásamt heimilisfólki á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð. Heimsókninni í Grindavík lauk með kaffisopa á Bryggjunni þar sem rætt var við starfsfólk og gesti.
![](/media/8325/20220803-grindavík-1.jpeg)
Fréttir
|
03. ágú. 2022
Grindavík
Aðrar fréttir
Fréttir
|
26. júní 2024
Ferð forseta með Ægi 1944
Forseti tekur á móti tveimur ljósmyndum.
Lesa frétt
Fréttir
|
26. júní 2024
Hlutverk verndara
Forsetafrú tekur á móti fulltrúum félagasamtaka.
Lesa frétt
Fréttir
|
26. júní 2024
Lýðveldistré á Brekkuborg
Forseti aðstoðar leikskólabörn við gróðursetningu.
Lesa frétt