Forseti tekur við íslenskum húsgögnum og munum sem verða til sýnis og notkunar á Bessastöðum. Húsgögnin, sem eru verk íslenskra hönnuða og framleidd á vegum íslenskra fyrirtækja, voru afhent á grundvelli samkomulags við Samtök iðnaðarins og í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands. Frá árinu 2019 hefur íslensk hönnun og húsgagnagerð verið í öndvegi í suðurstofu Bessastaða. Íva Rut Viðarsdóttir innanhússarkitekt valdi húsgögnin og munina úr þeim tillögum sem bárust frá hönnuðum og framleiðendum og skipulagði rýmið. Við valið var haft í huga að sýna þá miklu fjölbreytni sem einkennir íslenskt handverk og hönnun, auk þess sem litið var til sjálfbærni og hringrásarhugsunar. Áformað er að þessi nýja innsetning vari í þrjú ár.
Gestir Bessastaða geta nálgast upplýsingar á íslensku og ensku um húsgögnin og munina með því að skanna inn QR-kóða sem vísar á upplýsingasíðuna Í öndvegi.