Forseti er farþegi um borð í björgunarleiðangri varðskipsins Freyju. För Freyju lá frá Grundarfirði til Patreksfjarðar, þar sem til stóð að forseti og varðskipsliðar tækju þátt í minningarathöfn um krapaflóðin sem þar urðu fyrir 40 árum. Á leiðinni barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um aðstoð frá togaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni GK, sem varð aflvana á halamiðum, úti fyrir Straumnesi. Varðskipið hélt þegar á vettvang, með forseta um borð. Nauðsynlegt reyndist að skera á veiðarfærin úti fyrir Straumnesi og skjóta línu milli skipanna til að draga Hrafn Sveinbjarnarson undan hafísbreiðu sem nálgaðist. Viðgerð tókst á endanum og sigldi togarinn þá fyrir eigin vélarafli til Hafnarfjarðar, en Freyja sigldi norður fyrir land. Forseti fór frá borði á Akureyri eftir tæpa tvo sólarhringa á sjó.
![](/media/9705/halamið-2.jpg)
Fréttir
|
22. jan. 2023
Útkall
Aðrar fréttir
Fréttir
|
26. júní 2024
Ferð forseta með Ægi 1944
Forseti tekur á móti tveimur ljósmyndum.
Lesa frétt
Fréttir
|
26. júní 2024
Hlutverk verndara
Forsetafrú tekur á móti fulltrúum félagasamtaka.
Lesa frétt
Fréttir
|
26. júní 2024
Lýðveldistré á Brekkuborg
Forseti aðstoðar leikskólabörn við gróðursetningu.
Lesa frétt