Forseti fundar með Vjosa Osmani, forseta Kósovó. Ísland var meðal fyrstu ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Kósovó árið 2008 en þetta er í fyrsta sinn sem forseti landsins sækir Ísland heim. Rætt var um umsókn Kósovó að Evrópuráðinu og stuðning Íslands við uppbyggingu í Kósovó gegnum tíðina, ekki síst á sviði flugsamganga og loftrýmisgæslu á vegum Atlantshafsbandalagsins. Þá var rætt um stöðu mála á Balkanskaga og mikilvægi samstöðu Evrópuríkja gegn innrás Rússa í Úkraínu. Fyrr um daginn fundaði Osmani með Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra, Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Birgi Ármannssyni, forseta Alþingis.
![](/media/9687/20230202-kósovó-2.jpeg)
Fréttir
|
02. feb. 2023
Forseti Kósovó
Aðrar fréttir
Fréttir
|
26. júní 2024
Ferð forseta með Ægi 1944
Forseti tekur á móti tveimur ljósmyndum.
Lesa frétt
Fréttir
|
26. júní 2024
Hlutverk verndara
Forsetafrú tekur á móti fulltrúum félagasamtaka.
Lesa frétt
Fréttir
|
26. júní 2024
Lýðveldistré á Brekkuborg
Forseti aðstoðar leikskólabörn við gróðursetningu.
Lesa frétt