Forseti ávarpar gesti á leiðtogafundi Evrópuráðsins sem fram fer í Hörpu í Reykjavík dagana 16.-17. maí. Þetta er í fjórða sinn í 74 ára sögu stofnunarinnar sem leiðtogar aðildarríkja koma saman undir merkjum ráðsins. Forseti bauð leiðtogana velkomna til landsins á samkomu sem haldin var fyrir upphaf fundarins, þar sem forsetar, forsætisráðherrar og utanríkisráðherrar rúmlega 40 ríkja voru saman komnir. Í ávarpi sínu áréttaði forseti að í alþjóðavæddum heimi geti ekkert ríki þrifist án samvinnu. Farsæl samskipti ríkja verði að byggja á virðingu fyrir alþjóðalögum fremur en hnefarétti hins sterka. Ávarp forseta má lesa hér.
![](/media/10388/_dsf0991.jpg)
Fréttir
|
16. maí 2023
Leiðtogafundur Evrópuráðsins
Aðrar fréttir
Fréttir
|
26. júní 2024
Ferð forseta með Ægi 1944
Forseti tekur á móti tveimur ljósmyndum.
Lesa frétt
Fréttir
|
26. júní 2024
Hlutverk verndara
Forsetafrú tekur á móti fulltrúum félagasamtaka.
Lesa frétt
Fréttir
|
26. júní 2024
Lýðveldistré á Brekkuborg
Forseti aðstoðar leikskólabörn við gróðursetningu.
Lesa frétt