Forseti tekur á móti A.K.M. Shahidul Karim, nýjum sendiherra Bangladess gagnvart Íslandi með aðsetur í Kaupmannahöfn. Rætt var um leið íbúa Bangladess úr sárri fátækt til betri lífskjara. Sendiherra nefndi til dæmis hvernig konur efldust smám saman til dáða í textíliðnaði landsins. Einnig var rætt um váleg áhrif hnattrænnar hlýnunar í Bangladess, meira úrhelli og aukin flóð og leiðir til að verja landslýð fyrir þeim hremmingum. Forseti rakti markmið og sjónarmið íslenskra stjórnvalda á alþjóðavettvangi á sviði mannréttinda og utanríkismála, jafnréttis- og umhverfismála.
![](/media/11329/20230919-sendiherra-bangladess-2.jpg)
Fréttir
|
19. sep. 2023
Bangladess
Aðrar fréttir
Fréttir
|
14. júlí 2024
Árneshreppur á Ströndum
Forseti fer í sína síðustu opinberu heimsókn innanlands.
Lesa frétt
Fréttir
|
11. júlí 2024
Ólympíufarar kvaddir
Forsetahjón taka á móti Ólympíuliði Íslands.
Lesa frétt
Fréttir
|
11. júlí 2024
Nýr Landspítali
Forsetahjón heimsækja framkvæmdasvæði Nýs Landspítala.
Lesa frétt