Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Angóla, Cecília Caldeira da Conceição Rosário, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Forseti rakti sjónarmið Íslands á alþjóðavettvangi, áherslu á mannréttindi, virðingu fyrir alþjóðalögum, samstöðu í umhverfismálum og nýtingu grænnar orku. Þá var rætt um leiðir til að efla samskipti ríkjanna á ýmsum sviðum, ekki síst í sjávarútvegi. Loks ræddi sendiherra um áhuga Angóla á að efla ferðamennsku í landinu og vildi horfa til reynslu Íslendinga í þeim efnum.
![](/media/13783/20240528-sendiherra-angóla-2.jpg)
Fréttir
|
28. maí 2024
Sendiherra Angóla
Aðrar fréttir
Fréttir
|
26. júní 2024
Ferð forseta með Ægi 1944
Forseti tekur á móti tveimur ljósmyndum.
Lesa frétt
Fréttir
|
26. júní 2024
Hlutverk verndara
Forsetafrú tekur á móti fulltrúum félagasamtaka.
Lesa frétt
Fréttir
|
26. júní 2024
Lýðveldistré á Brekkuborg
Forseti aðstoðar leikskólabörn við gróðursetningu.
Lesa frétt