• Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Fréttir | 02. júní 2024

Heillaóskir til nýkjörins forseta

Forseti sendir nýkjörnum forseta, Höllu Tómasdóttur, bréf og heillaóskir. Í bréfinu segir:

„Kæra Halla. Ég óska þér innilega til hamingju með kjörið. Þú verður góður forseti. Ég færi einnig Birni, börnunum og fjölskyldunni allri heillaóskir. Þar nefni ég líka sérstaklega móður þína sem var svo virðuleg og hlý í viðtölum. Hún má svo sannarlega vera stolt af dóttur sinni. 

Þú tekur við embætti sem Íslendingum þykir afar vænt um. Þjóðin kaus sín ólíku forsetaefni eins og vera ber en mun núna sameinast um að styðja þig og styrkja til góðra verka. Það sýna fyrri fordæmi og við Eliza verðum alltaf boðin og búin að veita ykkur stuðning á vandasömum vettvangi. Við hjónin vonum sömuleiðis að ykkur muni líða vel hér á Bessastöðum. Hér er gott að búa.

Kæra Halla! Ég ítreka hlýjar kveðjur til þín og þinna, með einlægri ósk um farsæl næstu ár í þágu lands og þjóðar. Gangi þér og ykkur allt að sólu!"

Þá sendi Eliza Reid forsetafrú einnig heillaóskabréf til Björns Skúlasonar, eiginmanns Höllu. Í bréfinu óskar forsetafrú honum velfarnaðar á nýjum vettvangi og góðs gengis við að móta stöðu forsetamaka eftir eigin höfði og á farsælan hátt.

Sjá pistil forseta: Til hamingju með nýkjörinn forseta.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar