Fréttir | 06. júní 2024

Opið hús á Bessastöðum 8. júní

Forsetasetrið að Bessastöðum verður opið almenningi laugardaginn 8. júní í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldis á Íslandi. Forsetahjón taka á móti gestum og býðst fólki að skoða staðinn milli klukkan 13:00 og 17:00. 
Þetta verður í síðasta sinn sem Bessastaðir eru opnir almenningi í tíð fráfarandi forseta. Frá því að hann tók við embætti árið 2016 hefur opið hús á Bessastöðum orðið að reglulegum viðburði, tvisvar til þrisvar á ári, í því skyni að gefa almenningi öllum kost á að kynnast þjóðhöfðingjasetrinu.
Bessastaðir eiga sér merka sögu. Auk Bessastaðastofu, sem byggð var á 18. öld, munu gestir geta skoðað móttökusal og bókhlöðu forsetasetursins sem eru síðari tíma viðbyggingar. Í húsinu má meðal annars sjá úrval myndlistar eftir íslenska listamenn og sýnishorn gjafa sem borist hafa forsetum lýðveldisins. Þá verða til sýnis dæmi um mannvistarleifar sem fundist hafa við fornleifarannsóknir og veita innsýn í búsetu á Bessastöðum allt frá landnámstíð. Að þessu sinni verður Bessastaðakirkja lokuð vegna framkvæmda og fornleifauppgraftar. Einnig verður fornleifakjallarinn lokaður.
Kór Vídalínskirkju hyggst syngja nokkur lög á hlaði Bessastaðastofu um það leyti sem húsið verður opnað kl. 13:00 ef veður leyfir. Í hlaði stendur einnig fyrsti forsetabíllinn, Packard-bifreið Sveins Björnssonar, og er bifreiðin árgerð 1942. Starfsmenn embættis forseta og sjálfboðaliðar veita upplýsingar um staðinn og verða gestum til aðstoðar.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar