Forseti sendir heillaóskir til Volodimír Selenskí og úkraínsku þjóðarinnar í tilefni af þjóðhátíðardegi þeirra þann 24. ágúst. Kveðjan var á myndbandsformi og send ríkissjónvarpi Úkraínu, þar sem hún var spiluð á þjóðhátíðardaginn ásamt kveðjum frá öðrum þjóðhöfðingjum.
Í kveðjunni óskaði forseti úkraínsku þjóðinni allri til hamingju með daginn og áréttaði stuðning Íslands við sjálfstæði og fullveldi Úkraínu.