Forseti tekur á móti fulltrúum Íslands í FIRST Global vélmennakeppninni. Hún var haldin í Washington í Bandaríkjunum í júlí sem leið. Lið Íslands kom til Bessastaða ásamt kennara í forritun fyrir vélmenni og öðru fylgdarliði. Vélmennið sjálft var með í för og sýndu gestirnir hvernig það leysti ætlunarverk sitt í keppninni, að leita uppi bláa og appelsínugula bolta og setja í aðskilin hólf. Auk þjálfunar í vélmennaforritun var keppninni ætlað að vekja athygli á vatnsskorti í heiminum og mögulegum tæknilausnum í þeim efnum. Að ári var svipuð keppni haldin í Mexíkóborg.
Fréttir
|
22. ágú. 2017
Vélmenni
Aðrar fréttir
Fréttir
|
25. apr. 2024
Lýðheilsuverðlaunin 2024 afhent
Forseti afhendir Íslensku lýðheilsuverðlaunin í annað sinn
Lesa frétt
Fréttir
|
25. apr. 2024
Iceland Writers Retreat
Forsetahjón taka á móti þátttakendum ritlistarbúða.
Lesa frétt
Fréttir
|
25. apr. 2024
Reykir og Mið-Fossar
Forseti sækir hátíðarsamkomur í tilefni sumardagsins fyrsta.
Lesa frétt