• Ljósmyndir/Gunnar Vigfússon
Fréttir | 01. mars 2022

Sendiherra Paragvæ

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Paragvæ, Genaro Pappalardo, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um leiðir til að auka samskipti Íslands og Paragvæ á ýmsum sviðum. Forseti rakti sjónarmið Íslendinga á sviði umhverfisverndar, jafnréttis kynjanna og mannréttinda. Þá minnti hann á mikilvægi þess að alþjóðalög verði virt í hvívetna og ofbeldi ekki beitt í samskiptum ríkja.

 

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar