Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Sádi-Arabíu, Enass Alshahwan, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um loftslagsmál og þann vilja til orkuskipta sem víða má finna í heiminum. Sendiherra rakti þau skref sem tekin hafa verið í átt að auknu kynjajafnrétti í Sádi-Arabíu undanfarin ár og lagði mat á framtíðarhorfur í Austurlöndum nær. Forseti rakti sjónarmið Íslendinga á sviði umhverfisverndar, jafnréttis kynjanna og mannréttinda. Þá minnti hann á mikilvægi þess að alþjóðalög verði virt í hvívetna og ofbeldi ekki beitt í samskiptum ríkja.
![](/media/7679/sendiherra-sádi-arabíu.jpg)
Fréttir
|
01. mars 2022
Sendiherra Sádi-Arabíu
Aðrar fréttir
Fréttir
|
26. júní 2024
Ferð forseta með Ægi 1944
Forseti tekur á móti tveimur ljósmyndum.
Lesa frétt
Fréttir
|
26. júní 2024
Hlutverk verndara
Forsetafrú tekur á móti fulltrúum félagasamtaka.
Lesa frétt
Fréttir
|
26. júní 2024
Lýðveldistré á Brekkuborg
Forseti aðstoðar leikskólabörn við gróðursetningu.
Lesa frétt