• Forseti í ræðustól Alþingis. Myndin var tekin við setning 154. löggjafarþings Alþingis þann 12. september 2023. Ljósmynd/Eyþór Árnason
Fréttir | 23. júní 2024

Þingfrestun

Forseti flytur ávarp við frestun þingfunda á Alþingi. Hefð er fyrir því að forseti Íslands flytji ávarp við síðustu þingfrestun í embættistíð sinni eða við þinglausnir áður fyrr. Ávarp forseta má lesa í heild sinni hér.

Í ræðu sinni þakkaði forseti þingmönnum fyrir samstarfið í átta ár og þá virðingu sem þingheimur ber fyrir embætti forseta Íslands. Forseti árréttaði þá skoðun sína að halda þurfi endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins áfram, ekki síst með hliðsjón af þeim kafla hennar sem lýtur að völdum og verksviði þjóðhöfðingjans. Þar megi til dæmis finna ákvæði um meint vald forseta til að veita undanþágur auk kostnaðarsamra og úreltra ákvæða um verksvið handhafa forsetavalds. Þá beindi forseti því til þingheims að æskilegt væri að setja lög um embætti forseta Íslands, ekki síst til að tryggja stjórnsýslulegt sjálfstæði þess.

Í ræðu sinni lagði forseti einnig til nokkrar breytingar sem taka mætti til skoðunar á afmælisári lýðveldisins. Nefndi hann að í ljósi einstakrar stöðu í stjórnskipun og samfélagi væri við hæfi að forseti Íslands flytti ávarp til þjóðarinnar á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn 17. júní í stað forsætisráðherra eins og venja hefur verið. Þá benti forseti á að vel færi á því að þjóðhöfðinginn ætti tryggan og formlegan sess í Þingvallabænum sem nýverið var gerður upp en þurfi ekki að vera gestur á tignum stað, til dæmis þegar aðra þjóðhöfðingja ber að garði.

Í lok ræðu sinnar óskaði forseti nýkjörnum forseta, Höllu Tómasdóttur, velfarnaðar á vandasömum vettvangi. Þá færði hann þingmönnum góðar óskir og landsmönnum öllum kveðjur og þakkir fyrir samfylgdina. 

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra frestaði forseti fundum Alþingis til 10. september.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar