• Gerhard König myndlistarmaður sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu varðveislu íslenskrar menningarsögu. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir

  • Gerhard König og samverkamenn hans í Selárdal, þeir Ólafur Jóhann Engilbertsson, Kári Schram, Ríkharður Kristjánsson og Sigurgeir Þorbjörnsson. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir
  • Frá heimsókn forseta Íslands í Listasafn Samúels Jónssonar í Selárdal í Arnarfirði í september 2023. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir
Fréttir | 17. júlí 2024

Gerhard König

Forseti sæmir Gerhard König myndlistarmann riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu varðveislu íslenskrar menningarsögu. Gerhard er frá Þýskalandi og hefur í yfir aldarfjórðung unnið að endurreisn Listasafns Samúels Jónssonar í Selárdal í Arnarfirði. Gerhard kom fyrst í Selárdal sem ferðamaður árið 1997 og varð þegar hugfanginn af staðnum. Í kjölfarið gerðist hann stofnfélagi í Félagi Listasafns Samúels Jónssonar, ásamt hópi Íslendinga. Sama ár hóf hann viðgerðir á listaverkum Samúels og húsum sem hann hefur síðan unnið ötullega að í yfir 70 ferðum vestur. Stendur verkefnið enn yfir.

Með Gerhard í för við athöfnina voru samverkamenn hans í verkefninu, Ólafur Jóhann Engilbertsson, Kári Schram, Ríkharður Kristjánsson og Sigurgeir Þorbjörnsson sem kynnti hann fyrst fyrir Selárdal.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar