Fréttir | 17. júlí 2024

Matt Ridley

Forseti á fund með Matt Ridley frá Bretlandi. Hann er doktor í dýrafræði, fyrrverandi vísindaritstjóri vikuritsins Economist og höfundur ýmissa metsölurita um vísindi og samfélag. Ridley tók þátt í rabbfundi í dag við Háskóla Íslands og ræddi þar meðal annars um uppruna kórónuveirunnar, áhyggjur af þöggun í vísindaheiminum, úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu og önnur álitamál.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar