Fréttir | 26. júlí 2024

Sendiherra Danmerkur kveður

Forseti á kveðjufund með sendiherra Danmerkur, Kirsten R. Geelan, sem lýkur senn störfum hér á landi. Geelan afhenti trúnaðarbréf sitt í september 2021.

Rætt var um farsæl samskipti Íslands og Danmerkur í embættistíð forseta, gagnkvæmar heimsóknir og sameiginlega hagsmuni landanna á alþjóðavettvangi. Þá var rætt um framtíð norrænnar samvinnu og vestnorrænu landanna, Íslands, Færeyja og Grænlands. 

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar