Forseti er heiðursgestur og tekur þátt á Opnunarviðburði Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA, sem fram fer í starfsstöð Carbfix við Hellisheiðarvirkjun. Viðburðurinn var haldinn til að fagna upphafi 25. starfsfárs félagsins. Forseti átti þar opið samtal um loftslagsmál, sjálfbærni og kvenleiðtoga í atvinnulífinu við Eddu Sif Pind Aradóttur, framkvæmdastjóra Carbfix. Þá var farin vettvangsferð á framkvæmdasvæði Carbfix, þar sem koldíoxíði er dælt ofan í jarðlög þar sem það binst í steindir. Forseta fékk afhentan að gjöf stein úr basalti sem er afrakstur tækni Carbix.
Fréttir
|
05. sep. 2024
25 ára afmæli FKA
Aðrar fréttir
Fréttir
|
20. des. 2024
Fundir boðaðir í ríkisráði
Tveir ríkisráðsfundir verða haldnir á Bessastöðum.
Lesa frétt