Fréttir | 11. sep. 2024

Nordatlantisk Hus

Forseti á fund með stjórn menningarmiðstöðvarinnar Nordatlantisk Hus í Óðinsvéum í Danmörku. Við Nordatlantisk hus er áhersla lögð á að kynna listir og menningu frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Auk þess er húsið samkomustaður fyrir fólk frá þessum löndum og Danmörku. Stjórn menningarmiðstöðvarinnar sagði forseta frá áætlunum um að stækka húsið til að skapa meira rými fyrir núverandi starfsemi, sem er 11 ára gömul, og til að bæta við starfsemina upplýsingamiðstöð um loftslagsmál. Hluti af því brýna verkefni verður uppsetning varanlegrar sýningar sem mun fjalla um loftslagsáskoranir og tillögur um hvernig takast megi á við þær komandi kynslóðum til heilla.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar