• Forseti setur UngRIFF kvikmyndahátíðina. Ljósmyndir: Martin Tomiga
  • Forseti ræðir við gesti UngRIFF kvikmyndahátíðarinnar. Ljósmyndir: Martin Tomiga
  • Forseti setur UngRIFF kvikmyndahátíðina. Ljósmyndir: Martin Tomiga
  • Forseti setur UngRIFF kvikmyndahátíðina. Ljósmyndir: Martin Tomiga
Fréttir | 25. sep. 2024

UngRIFF

Forseti flytur ávarp og afhendir heiðursverðlaun á kvikmyndahátíð ungmenna, UngRIFF. Hátíðin er nú haldin í annað sinn og fór opnunarviðburðurinn fram í Smárabíói í Kópavogi og á sama tíma í Herðubíói á Seyðisfirði og Skjaldborgarbíói á Patreksfirði.

Forseti afhenti heiðursverðlaun fyrir framlag til barnaefnis og voru þau veitt Stúdíó Sýrlandi en þar hefur barnaefni verið talasett á íslensku síðan á tíunda áratugnum.

UngRIFF er hátið fyrir ungmenni á aldrinum 14-16 ára, skipulögð í samstarfi við ungmennaráð UngRIFF. Markmið UngRIFF er að vera leiðandi í kennslu gegnum kvikmyndir og kvikmyndagerð. Í ávarpi sínu sagðist forseti hafa mikla trúa á kennslu í gegnum kvikmyndamiðilinn sem geti gefið nýja sýn á samfélagið, spurt mikilvægra spurning og tekið fyrir málefni sem þurfi að ræða.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar