• Annette Lassen rannsóknarprófessor fræðir forsetahjón og konungshjónin um sagnaarfinn sem handritasafn Árna Magnússonar hefur að geyma. Ljósmynd: Mads Frost
  • Annette Lassen rannsóknarprófessor fræðir forsetahjón og konungshjónin um sagnaarfinn sem handritasafn Árna Magnússonar hefur að geyma. Ljósmynd: Mads Frost
  • Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Christina Egelund, mennta- og vísindamálaráðherra Danmerkur, undirrita sameiginlega yfirlýsingu um gildi handritasafns Árna Magnússonar. Ljósmynd: Mads Fros
  • Annette Lassen rannsóknarprófessor við Árnastofnun ávarpar forsetahjón, konungshjónin og aðra gesti á Árnasafni í Kaupmannahöfn. Ljósmynd: Mads Frost
Fréttir | 08. okt. 2024

Handritin heimsótt

Forsetahjón heimsækja Árnasafn við Kaupmannahafnarháskóla, í fylgd með Friðriki X. Danakonungi og Mary drottningu.

Á safnið komu einnig Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Christina Egelund, mennta- og vísindamálaráðherra Danmerkur, sem undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu um gildi handritasafns Árna Magnússonar. Þá kveður yfirlýsingin á um leiðir til að auka þekkingu á handritunum og efla áframhaldandi samstarf og samvinnu landanna um varðveislu þeirra. Viðburðurinn var liður í tveggja daga ríkisheimsókn forseta Íslands til Danmerkur.

Sjá einnig myndasafn frá ríkisheimsókn til Danmerkur.

Fengu að skoða öryggishvelfinguna

Handritasafn Árna Magnússonar er einstakt á heimsvísu og hefur að geyma heimildir sem eru að miklu leyti undirstaða að sögu Íslands og Norðurlandanna. Handritasafnið er varðveitt í tveimur söfnum í tveimur löndum, í Árnasafni í Kaupmannahöfn og á Árnastofnun í Reykjavík. Handritasafnið var í heild sinni sett á sérstakan varðveislulista UNESCO árið 2009 sem kallast Minni heimsins sem undirstrikar mikilvægi þess fyrir heimsbyggðina.

Forsetahjónin og konungshjónin fengu kynningu á safninu og sagði Annette Lassenn rannsóknarprófessor við Árnastofnun viðstöddum frá sagnaarfinum sem þau varðveita. Þá fengu þjóðhöfðingjarnir einnig að skoða öryggishvelfinguna þar sem handritin eru varðveitt.  

Á undanförnum árum hafa Ísland og Danmörk unnið að leiðum til þess að gera handritaarfinum hærra undir höfði. Nánar má lesa um efni viljayfirlýsingarinnar á vefsíðu menningar-og viðskiptaráðuneytisins.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar