• Forseti fundar með Liu Zhenmin, sérstökum erindreka Kína í loftslagsmálum. Ljósmynd: Skrifstofa forseta Íslands/Una Sighvatsdóttir
  • Forseti tekur á móti afmæliskveðju frá Xi Jinping, forseta Kína, úr hendi sendiherra Kína og sérstaks erindreka í loftslagsmálum.
Fréttir | 18. okt. 2024

Loftslagserindreki Kína

Forseti fundar með Liu Zhenmin, sérstökum erindreka Kína í loftslagsmálum. Hann er hér á landi í tengslum við ráðstefnu Hringborðs norðurslóða sem fer nú fram í Hörpu í Reykjavík. Rætt var um stefnu Kínverja gagnvart norðurheimskautinu og markmið Kína í loftslagsmálum, þar á meðal aukna uppbyggingu sólar-, vind og kjarnorkuvera í Kína. Markmið þeirra er að allt að 80% af orkugjöfum landsins verði endurnýjanlegir. Einnig var rætt um framþróun við kolefnisförgun og mögulega samstarfsmöguleika landanna í orkumálum. Þá var greint frá viðleitni Kínverja til að koma á beinu flugi milli Kína og Íslands og aukna ferðamennsku Kínverja hér á landi. Fundinn sat einnig He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi. 

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar