• Forsetahjón Íslands, Þýskalands og Finnlands ásamt konungshjónum Danmerkur og ríkisörfum Svíþjóðar og Noregs, við hátíðarkvöldverð í forsetahöllinni í Berlín.
  • Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, býður forseta Íslands velkomna til Berlínar að viðstöddum heiðursverði. Ljósmynd: Bundesregierung/Jesco Denzel
  • Forsetahjón Íslands, Þýskalands og Finnlands ásamt konungshjónum Danmerkur og ríkisörfum Svíþjóðar og Noregs, við hátíðarkvöldverð í Felleshus í Berlín.
  • Forseti og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, ásamt Frank-Walter Steinmeier, forseta Þýskalands, og Elke Büdenbender, eiginkonu hans, við forsetahöllina í Berlín.
Fréttir | 21. okt. 2024

Sendiráð Norðurlanda í Berlín 25 ára

Forsetahjón eru nú stödd í Þýskalandi vegna 25 ára afmælis norrænu sendiráðanna í Berlín. Í tilefni afmælisins er efnt til hátíðardagskrár með þátttöku þjóðhöfðingja og fulltrúa konungsfjölskyldna Norðurlanda.

Sjá myndasafn: 25 ára afmæli norrænu sendiráðanna í Berlín

Sendiráð Norðurlandanna í Berlín voru opnuð 20. október 1999 og reka þau þar sameiginlegu menningarmiðstöðina Felleshus þar sem efnt er til ýmissa norrænna menningarviðburða. Fyrirkomulagið, sem er einstakt á heimsvísu, hefur reynst afar vel og orðið til þess að efla enn frekar náið samstarf Norðurlanda í Þýskalandi.

Afmælisdagskrá og hátíðarkvöldverður

Á fjórða hundrað gesta sóttu 25 ára afmælishátíðina sem fram fór á sendiráðssvæðinu síðdegis í dag. Forseti Þýskalands flutti þar ávarp, auk forseta Íslands og forseta Finnlands, og einnig Hákon, krónprins Noregs, og Viktoría, krónprinsessa Svíþjóðar. Þjóðhöfðingjarnir heimsóttu svo hver sitt sendiráð og ræddu forseti og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, við starfsfólk íslenska sendiráðsins.

Í ávarpi sínu fagnaði forseti norrænni samvinnu og þeim nánu böndum sem tengja þjóðirnar. „Ef til vill gæti þetta samfélag þjóða sem við sjáum hér í Felleshus orðið fyrirmynd víðar um heim. Þannig gætum við komið okkar sýn og gildismati á framfæri í heimi sem þarf sárlega á slíku að halda."

Ávarp forseta á afmælishátíðinni (á ensku) má lesa hér.

Um kvöldið bauð svo Þýskalandsforseti þjóðhöfðingjum og ríkisörfum Norðurlanda auk sendinefnda til hátíðarkvöldverðar í forsetahöllinni, Schloss Bellevue. Þar flutti Friðrik X. Danakonungur ræðu fyrir hönd Norðurlandaþjóðanna.

Tvíhliða fundir með forsetum Þýskalands og Finnlands

Áður en hátíðardagskráin hófst buðu Frank-Walter Steinmeier Þýskalandsforseti og Elke Büdenbender, eiginkona hans, forsetahjón Íslands velkomin með athöfn við forsetahöllina, þar sem þjóðsöngvar beggja landa voru leiknir að viðstöddum heiðursverði. Við tók tvíhliða fundur forseta Þýskalands og Íslands, sem Auðunn Atlason, sendiherra Íslands í Þýskalandi, og Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, sátu einnig ásamt forsetaritara. Þá átti forseti hádegisverðarfund með Alexander Stubb, forseta Finnlands. 

Á meðan á Þýskalandsförinni stendur hitta forsetahjón einnig fulltrúa Íslendingasamfélagsins í Berlín og heimsækja tvo háskóla í borginni.

Sjá fréttatilkynningu.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar