Forseti tekur á móti Volodimír Selenskí, forseta Úkraínu, til fundar á Bessastöðum. Selenskí er hér á landi í tilefni af þingi Norðurlandaráðs sem haldið er í Reykjavík dagana 28.-31 október. Yfirskrift þingsins í ár er „Friður og öryggi á norðurslóðum“ og er forseti Úkraínu sérstakur gestur og ávarpar þingið síðar í dag.
Norðurlöndin hafa verið samstíga öðrum bandalags- og samstarfsríkjum í aðgerðum til stuðnings Úkraínu allt frá allsherjarinnrás Rússa árið 2022.
Fyrsti fundur forseta Íslands og Úkraínu
Á einkafundi forsetanna, sem var þeirra fyrsti fundur, áttu forsetarnir persónulegum nótu, meðal annars um börnin sín. Þá var rætt um ástandið í Úkraínu, áhrif þess og um líðan almennra borgara í landinu. Þau ræddu um ábyrgð þeirra sem nú fara með völd til þess að tryggja friðsama framtíð. Þá var rætt um komandi kosningar í Bandaríkjunum, þróun mála í Miðausturlöndum og í alþjóðasamfélaginu og um traust samband Úkraínu við Norðurlöndin. Forseti áréttaði stuðning Íslands við Úkraínu og mikilvægi frelsis, sjálfstæðis og virðingar við alþjóðaleg.
Að loknum einkafundi forsetanna var sest til tvíhliða fundar með sendinefndum þar sem meðal annars sátu Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands gagnvart Úkraínu, og Olha Dibrova, sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi, auk ráðgjafa. Selenskí þakkaði fyrir stuðning Íslands og Norðurlanda við Úkraínu. Hann ræddi einnig um áherslu Úkraínumanna á að endurheimta úkraínsk börn sem numin hafa verið á brott til Rússlands í þúsundatali.
Langtímastuðningur við Úkraínu
Á fundinum var einnig rætt um möguleika á samstarfi við enduruppbyggingu í Úkraínu, þar á meðal endurnýjanlegra orkuinnviða. Þá var rætt um upplýsingaóreiðu og varnir gegn fjölþótta ógnum í Evrópu. Loks vakti forseti máls á starfi íslensku líftækni- og stoðfyrirtækjanna Kerecis og Össurar og tækifæri til frekari stuðnings þeirra við úkraínska heilbrigðisþjónustu.
Sérstök stefna um stuðning við Úkraínu var samþykkt á Alþingi 29. apríl 2024 og miðar að því að styðja við sjálfstæði, fullveldi, friðhelgi landamæra, öryggi borgara, mannúðaraðstoð og uppbyggingarstarf í Úkraínu. Þann 31. maí 2024 undirritaði forsætisráðherra tvíhliða samning landanna um öryggissamstarf og langtímastuðning.