• Forseti ávarpar Grindvíkinga á samverustund, ári eftir að rýma þurfti bæinn vegna eldsumbrota. Ljósmyndir: Ingibergur Þór Jónasson
  • Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, tekur á móti forsetahjónum í Grindavíkurkirkju. Ljósmynd: Ingibergur Þór Jónasson
  • Frá samverustund Grindvíkinga ári eftir að rýma þurfti bæinn vegna eldsumbrota. Ljósmyndir: Ingibergur Þór Jónasson
  • Forsetahjón og Mary Robinson, fyrrverandi forseti Írlands, sækja samverustund Grindvíkinga, ári eftir að rýma þurfti bæinn vegna eldsumbrota. Ljósmyndir: Ingibergur Þór Jónasson
  • Forseti ávarpar samverustund Grindvíkinga, ári eftir að rýma þurfti bæinn vegna eldsumbrota. Ljósmyndir: Ingibergur Þór Jónasson
  • Forseti ávarpar samverustund Grindvíkinga, ári eftir að rýma þurfti bæinn vegna eldsumbrota. Ljósmyndir: Ingibergur Þór Jónasson
  • Forseti ávarpar samverustund Grindvíkinga, ári eftir að rýma þurfti bæinn vegna eldsumbrota. Ljósmyndir: Ingibergur Þór Jónasson
  • Sr. Elínborg Gísladóttir sóknarprestur ávarpar samverustund í Grindavíkurkirkju. Ljósmyndir: Ingibergur Þór Jónasson
  • Forsetahjón og Mary Robinson, fyrrverandi forseti Írlands, sækja samverustund Grindvíkinga, ári eftir að rýma þurfti bæinn vegna eldsumbrota. Ljósmyndir: Ingibergur Þór Jónasson
  • Forsetahjón sækja samverustund Grindvíkinga, ári eftir að rýma þurfti bæinn vegna eldsumbrota. Ljósmyndir: Ingibergur Þór Jónasson
Fréttir | 10. nóv. 2024

Samverustund í Grindavík

Forsetahjón sækja samverustund í Grindavíkurkirkju þar sem forseti flytur ávarp í tilefni af því að eitt ár er liðið frá því að rýma þurfti bæinn vegna eldsumbrota.

Í ávarpi sínu sagði forseti að enginn, sem ekki hefði gengið gegnum slíkar hamfarir, gæti sett sig í spor Grindvíkinga. Þakkarvert væri að Íslendingar stæðu saman og réttu hver öðrum hjálparhönd þegar slíkar hamfarir ættu sér stað.

Forseti sagði Grindvíkinga hafa sýnt mikið úthald og seiglu. Þá vék hún að því hve aðdáunarvert sé að Grindvíkingum hafi tekist að halda í samfélagsandann, þrátt fyrir að hafa misst heimili sín.

Trú á öflugu samfélagi

„Ég hef ekki, frekar en þið, svör við því hversu lengi móðir náttúra ætlar að herja hér á okkur, né svör við því hvernig skal bregðast við þeim fjölda áskorana sem fylgja hennar háttalagi. En ég hef trú, bæði á ykkur og á okkar öfluga samfélagi, og vil að lokum hvetja ykkur og öll sem að málum koma til að setja á oddinn að vinna saman að framtíðarsýn fyrir ykkar samfélag. Ekkert vekur meiri von og kraft í brjósti en að fá sæti við borðið þegar erfiðleikar steðja að – móta þannig skref fyrir skref þá framtíð og það samfélag sem þið viljið,“ sagði forseti í ávarpi sínu, sem lesa má í fullri lengd hér.

Auk forseta fluttu ávörp þau Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar, séra Elínborg Gísladóttir sóknarprestur og Ólafur Ólafsson, fyrirliði meistaraflokks karla í körfuknattleik. Kirkjukór Grindavíkurkirkju og Kristján Hrannar Pálsson organisti fluttu tónlist. Athöfnin var sýnd í beinu streymi sem sjá má hér.

Sjá myndasafn frá samverustund Grindvíkinga.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar