• Bessastaðir.
Fréttir | 19. nóv. 2024

Þúsund dagar frá innrás

Forseti sendir kveðju til úkraínsku þjóðarinnar sem markar þau tímamót að 1000 dagar séu liðnir frá innrás Rússa í landið árið 2022. Kveðjan var á myndbandsformi og send ríkissjónvarpi Úkraínu, þar sem hún var spiluð ásamt kveðjum frá öðrum þjóðhöfðingjum þann 19. nóvember. Kveðjuna má einnig sjá á X-síðu úkraínska utanríkisráðuneytisins.

Í kveðjunni ítrekar forseti stuðning Íslands við Úkrínu og segir Íslendinga bera djúpa virðingu fyrir þrautseigju úkraínsku þjóðarinnar. 

Áður hafði forseti sent heillaóskir til Volodimír Selenskí og úkraínsku þjóðarinnar á þjóðhátíðardegi Úkraínu þann 24. ágúst.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar