Forseti flytur ávarp og afhendir stjórnunarverðlaun stjórnunarfélagsins Stjórnvísi. Verðlaunin eru veitt árlega í þremur flokkum fyrir framúrskarandi stjórnun, auk sérstakra hvatningarverðlauna. Þetta er í sextánda sinn sem Stjórnvísi stendur fyrir verðlaununum en markmiðið er að stuðla að aukinni fagmennsku á sviði stjórnunar á Íslandi. Einnig er þeim ætlað að vekja athygli á framúrskarandi starfi stjórnenda og frumkvöðla auk þess að örva umræðu um faglega stjórnun.
Handhafar Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2025 eru eftirtaldir:
Í flokki yfirstjórnenda Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innnes, í flokki millistjórnenda þær Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu Bláa Lónsins og Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, menningar og vellíðunar hjá Bláa Lóninu.
Í flokki frumkvöðla stofnendur Good Good þeir Jóhann Ingi Kristjánsson, Agnar Tryggvi Lemacks og Garðar Stefánsson. Stofnendur Indo, Haukur Skúlason og Tryggvi Björn Davíðsson og stofnendur Evolytes þau Íris Eva Gísladóttir og Mathieu G. Skulason. Í umsögn valnefndar segir að þessar þrjár ólíku lausnir eiga það allar sameiginlegt að snúa að bættum lífsgæðum og árangri fyrir fjölskyldur og rekstur heimila.
Auk þess voru veitt sérstök hvatningarverðlaun fyrir frumkvöðlastarf innan rótgróinna fyrirtækja. Þau hlutu Bjargey Harðardóttir meðeigandi og stjórnandi hjá 66 Norður og Eyjólfur Pálsson stofnandi Epal.
Stjórnvísi var stofnað árið 1986 og er stærsta stjórnunarfélag landsins með um 6000 félaga sem koma frá um 400 fyrirtækjum og stofnunum.