Forseti tekur á móti Landssambandi bakarameistara (LABAK) sem færa henni fyrsta eintakið af Köku ársins 2025, í tilefni af því að 30 ár eru liðin síðan fyrsta kaka ársins var útnefnd. Í kjölfarið komst á sú venja að efna til árlegrar keppni meðal íslenskra bakara.
Hefð er fyrir því að tileinka fyrstu kökuna ár hvert konu sem skarað hefur framúr í þjóðlífinu og hefja að því loknu söluna á konudaginn, sem er fyrsti dagur góu og fellur í ár á sunnudaginn 23. febrúar. Fulltrúar stjórnar LABAK færðu forseta fyrsta eintakið, ásamt höfundi kökunnar, Arnór Ingi Bergsson hjá Bakaranum á Ísafirði sem sigraði keppnina í ár.
Kaka ársins 2025 er með frönskum súkkulaðibotni, rjómaostafrómas með bananabragði ásamt piparmyntu-ganache og hjúpuð mjólkursúkkulaði, en aðalhráefni kökunnar er íslensku rjómi.