Forsetasetrið á Bessastöðum

Bessastaðir eru aðsetur forseta Íslands og jafnframt staður sem á sér mikilvægan sess í sögu landsins.
Forsetasetrið Bessastaðir er jörð á Álftanesi sem á sér sögu frá landnámstíð (sjá nánar hér). Í núverandi mynd eru Bessastaðir þyrping bygginga þar sem eru meðal annars Bessastaðastofa, móttökusalur, þjónustuhús, íbúðarhús forseta og fjölskyldu, Bessastaðakirkja og bílageymsla. Bessastaðastofa er heiti elstu byggingarinnar sem er sú sem stendur næst kirkjunni.