Vigdís Finnbogadóttir
Fjórði forseti lýðveldisins, Vigdís Finnbogadóttir, er fædd 15. apríl 1930.
Vigdís var kjörin forseti 29. júní 1980, endurkjörin án atkvæðagreiðslu 1984, endurkjörin í kosningum 1988, aftur án atkvæðagreiðslu 1992 og lét af embætti 1996.
Vigdís varð stúdent árið 1949, stundaði nám í frönsku og frönskum bókmenntum í Grenoble og við Sorbonne-háskóla í París 1949-1953. Hún nam leiklistarsögu við Kaupmannahafnarháskóla 1957-1958, tók BA-próf í frönsku frá Háskóla Íslands og próf í uppeldis- og kennslufræðum 1968. Vigdís er heiðursdoktor og heiðursprófessor við marga háskóla og stofnanir víðs vegar um heiminn.
Hún hefur verið sæmd heiðursdoktorsnafnbót við eftirfarandi háskóla: Háskólinn í Grenoble, Frakklandi (1985), Háskólinn í Bordeaux, Frakklandi (1987), Smith College, Bandaríkjunum (1988), Luther College, Bandaríkjunum (1989), Háskólinn í Manitoba, Kanada (1989), Háskólinn í Nottingham, Bretlandi (1990), Háskólinn í Tampere, Finnlandi (1990), Háskólinn í Gautaborg, Svíþjóð (1990), Gashuin háskólinn í Tokyo, Japan (1991), Háskólinn í Miami, Bandaríkjunum (1993), St. Mary´s háskólinn í Halifax, Kanada (1996), Háskólinn í Leeds, Bretlandi (1996), Memorial University, St John, Nýfundnalandi, Kanada (1997) Háskólinn í Guelph, Kanada (1998) og Háskóli Íslands, 2000.
Hún var blaðafulltrúi Þjóðleikhússins 1954-1957 og aftur 1961-1964, leiðsögumaður á sumrin um árabil, kennari við Menntaskólann í Reykjavík 1962-1967 og við Menntaskólann við Hamrahlíð 1967-1972. Hún kenndi um skeið við Háskóla Íslands og var leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur 1972-1980. Vigdís Finnbogadóttir var fyrsta konan í heiminum sem kjörin var forseti í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Myndasyrpa frá forsetatíð Vigdísar Finnbogadóttur.
Innsetningarræður
- 01.08.1992 Ræða Vigdísar Finnbogadóttur við innsetningu í embætti forseta Íslands 1. ágúst 1992
- 01.08.1988 Ræða Vigdísar Finnbogadóttur við innsetningu í embætti forseta Íslands 1. ágúst 1988
- 01.08.1984 Ræða Vigdísar Finnbogadóttur við innsetningu í embætti forseta Íslands 1. ágúst 1984
- 01.08.1980 Ræða Vigdísar Finnbogadóttur við innsetningu í embætti forseta Íslands 1. ágúst 1980
Áramótaávörp
- 01.01.1996 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1996
- 01.01.1995 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1995
- 01.01.1994 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1994
- 01.01.1993 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1993
- 01.01.1992 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1992
- 01.01.1991 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1991
- 01.01.1990 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1990
- 01.01.1989 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1989
- 01.01.1988 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1988
- 01.01.1987 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1987
- 01.01.1986 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1986
- 01.01.1985 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1985
- 01.01.1984 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1984
- 01.01.1983 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1983
- 01.01.1982 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1982
- 01.01.1981 Nýársávarp Vigdísar Finnbogadóttur 1. janúar 1981