Fréttapistill | 02. feb. 2024

Safnanótt á Bessastöðum

Í tilefni Safnanætur á Vetrarhátíð verður opið hús hér á Bessastöðum í kvöld, föstudaginn 2. febrúar, milli klukkan 18 og 22. Gestum býðst að ganga um þjóðhöfðingjasetrið og kynna sér sögu þess og innanstokksmuni. Í húsinu má meðal annars sjá úrval myndlistar eftir íslenska listamenn og sýnishorn gjafa sem borist hafa forsetum lýðveldisins.

Utandyra verður kvikmyndum varpað á gafl Bessastaðakirkju, það er samantekt frá Kvikmyndasafni Íslands sem sýnir íslenskt mannlíf í embættistíð nokkurra fyrrverandi forseta. Bessastaðakirkja verður einnig opin gestum.

Ég hlakka til að taka á móti þeim sem hafa tök á að renna við og minni einnig á aðra spennandi viðburði á Safnanótt, af nógu er að taka. Rétt er að nefna að spáð er suðvestan hvassviðri með éljum og mikilvægt að búa sig í samræmi, en Bessastaðastofa verður þeim mun notalegri þegar inn er komið.

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta 2. febrúar 2024.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar