Fréttapistill | 06. júní 2024

Opið hús á Bessastöðum

Á laugardaginn kemur verður opið hús á Bessastöðum, kl. 13:00-17:00. Við Eliza hlökkum til að taka á móti gestum sem geta kynnt sér húsakostinn, sögu staðarins og innanstokksmuni. Þetta verður í síðasta sinn sem við höfum viðburð af þessu tagi í minni embættistíð og þykir mér vænt um að geta kastað kveðju á fólk á tröppum Bessastaðastofu. Verið öll hjartanlega velkomin!

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta 6. júní 2024.

  • Frá opnu húsi á Bessastöðum 18. júní 2022.
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar