Fréttapistill | 26. júní 2024

Annasamur afmælisdagur

Ég þakka kærlega fyrir allar þær heillaóskir sem mér hafa borist á afmælinu. Dagurinn var annasamur að vanda en mér þótti vænt um að geta líka fagnað eigin afmæli með því að heimsækja unga sem aldna. Fyrst hélt ég í leikskólann Brekkuborg í Grafarvogi. Þar var mér boðið að gróðursetja tré með börnum skólans í morgun og var það afar ljúf stund. Í lok dags sótti ég svo veislu í Hafnarfirði þar sem Gunnar Már Torfason hélt upp á 100 ára afmæli sitt í dag, í faðmi ættingja og vina.

Með þessu vildi ég á táknrænan hátt þakka eldri kynslóð þessa lands fyrir þeirra atbeina við að efla og styrkja okkar ágæta samfélag og óska um leið ungviðinu alls velfarnaðar á uppvaxtarbraut. Þau munu standa sig. Framtíðin er björt!

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta 26. júní 2024.

  • Tré gróðursett á afmælisdaginn með börnum á leikskólanum Brekkuborg í Grafarvogi í Reykjavík. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir
  • Tré gróðursett á afmælisdaginn með börnum á leikskólanum Brekkuborg í Grafarvogi í Reykjavík. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir
  • Veisla til heiðurs Gunnari Má Torfasyni á aldarafmæli hans þann 26. júní 2024.
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar