Fréttapistill | 12. júlí 2024

Frækinn hópur á Ólympíuleika

Við Eliza nutum þess í gær að taka á móti þeim frækna hópi sem senn heldur til Frakklands og heldur merki Íslands á lofti á Ólympíuleikunum í París. Við óskuðum þeim góðs gengis og báðum ekki um annað en að hver gerði sitt besta – og aðeins betur ef það er það sem þarf eins og segir í laginu.

Alls munu fimm keppa fyrir Íslands hönd og eru vel að því komin en keppendurnir mættu auðvitað vera fleiri. Sú verður eflaust raunin þegar afreksstefna í íþróttum verður efld hér á landi. Það kostar sitt en það fé má finna með því að efla lýðheilsu, hugsa forvirkt á þeim vettvangi og spara þannig mikla fjármuni þegar allt kemur til alls. Ég óska fulltrúum okkar í París alls velfarnaðar. Koma svo, áfram Ísland!

Og auðvitað óska ég stelpunum okkar góðs gengis í fótboltaleiknum gegn Þýskalandi á Laugardalsvellinum í dag. Fjölmennið á völlinn, öll þið sem hafið á því tök - ég veit að stelpurnar á Símamótinu munu mæta og styðja sín átrúnaðargoð!

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta 28. júlí 2024.

  • Með þremur af fimm Ólympíuförum Íslands, ásamt forsvarsmönnum ÍSÍ og sendiherra Frakklands í kveðjumóttöku á Bessastöðum fyrir Sumarólympíuleikana í París 2024.
  • Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, kom færandi hendi með treyjur og húfur merktar íslenska Ólympíuliðinu.
  • Með Hákoni Þór Svavarssyni, Ólympíufara og fánabera Íslands á Sumarólympíuleikunum í París 2024, auk Lárusar Blöndals, forseta ÍSÍ.
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar