Fréttapistill | 14. mars 2025

Takk, Hornfirðingar!

Fyrsta opinbera heimsóknin innanlands er nú að baki hjá okkur Birni. Við erum agndofa yfir fegurðinni sem mætti okkur í Hornafirði síðustu tvo daga. Bæði skartaði náttúran sínu fegursta en það var líka fegurðin í mannlífinu sem snerti okkur. Hvert sem við fórum um Höfn, Suðursveit og Öræfi mætti okkur gleði, góðvild og kynngimagnaður kraftur, sem hvarflar að manni að heimamenn hljóti að sækja til jöklanna og fjallanna í kring. Kæru Hornfirðingar! Takk enn og aftur innilega fyrir að taka svona vel á móti okkur og gefa okkur tækifæri til að kynnast ykkar öfluga og fjölbreytilega samfélagi. Við Björn hlökkum til að fylgjast með Hornafirði vaxa áfram og dafna til framtíðar. Við hlökkum líka mikið til að heimsækja fleiri sveitarfélög í okkar fallega landi.

Fleiri myndir frá Hornafirði má sjá á forseti.is og þar má líka lesa ávarp mitt á hátíðarsamkomu í Nýheimum með íbúum Hornafjarðar.

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta 14. mars 2025.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar