Ungmennafélag Íslands
Ungmennafélag Íslands er landssamband ungmennafélaga. Heiti þess er skammstafað UMFÍ. UMFÍ var stofnað í ágúst árið 1907. Sambandsaðilar UMFÍ eru nú ýmist héraðssambönd eða ungmennafélög með beina aðild og eru hátt á annað hundrað þúsund Íslendinga tengdir UMFÍ gegnum félög sín.
Forseti Íslands er verndari UMFÍ.