Fréttir | 11. mars 2021

Römpum upp Reykjavík

Forseti flytur ávarp á viðburði í Iðnó í Reykjavík. Með honum hófst formlega átak til að bæta aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum í miðborg höfuðborgarinnar. Haraldur Þorleifsson frumkvöðull hefur forystu um verkefnið sem er unnið í samvinnu við ríki, Reykjavíkurborg, ýmis félagasamtök og fyrirtæki sem leggja því lið. Nánari upplýsingar má sjá á vefsíðu verkefnisins.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar