Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda

Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (NKG) er hugmyndasamkeppni fyrir nemendur í 5. 6. og 7 bekk grunnskóla. Undirbúningur fer fram í skólum landsins samhliða skólaárinu þar sem nemendur fá kennslu við að þróa verkefni á sínu áhugasviði, allt frá hugmyndum til veruleika. Þetta ferli virkjar sköpunarkraft nemenda í lausnamiðuðum hugsunarhætti og eykur sjálfstraust þeirra og frumkvæði.

NKG hefst á haustin og lýkur á vorin með vinnusmiðju þar sem þátttakendur í úrslitum fá tækifæri til að útfæra hugmyndir sínar frekar með aðstoð leiðbeinenda frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Í kjölfarið er haldið lokahóf þar sem  forseti Íslands afhendir verðlaun.

 

Markmið NKG

  • Gera einstaklingnum grein fyrir sköpunargáfu sinni og þroska hana í gegnum vinnu með eigin hugmyndir
  • Efla og þroska frumkvæði nemandans og styrkja þannig sjálfsmynd hans
  • Efla nýsköpunarstarf í grunnskólum og vekja athygli á hugviti barna í skólum og atvinnulífi

 

Framtíðarsýn NKG

  • Er að fjölga grunnskólum sem taka þátt úr alls 60 í 100 talsins
  • Að stofnaður verði sjóður vegna ferðakostnaðar þátttakenda og foreldra þeirra sem koma um langan veg í vinnusmiðju og lokahóf
  • Að það verði tengiliður frá hverjum grunnskóla sem sinnir móttöku gagna og kemur upplýsingum til kennara og nemenda skólanna
  • Að tryggt verði rekstrarfjármagn til framtíðar í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki


Vefur Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar