• Forseti ásamt öllum handhöfum Menntaverðlaunanna 2022. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
  • Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
  • Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
  • Elísabet Ragnarsdóttir leikskólakennari og aðstoðarleikskólastjóri við leikskólann Heiðarborg í Reykjavík hlaut verðlaun sem framúrskarandi kennari, fyrir einstaka fagmennsku við leikskólakennslu. Verðlaunin afhenti Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
  • Grunnskóli Snæfellsbæjar hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefnið Átthagafræði. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
  • Grunnskóli Snæfellsbæjar hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefnið Átthagafræði. Verðlaunin afhenti Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
  • Tækniskólinn var verðlaunaður fyrir framúrskarandi iðn- og verkmenntun með átaksverkefninu #kvennastarf sem unnið hefur verið á hans vegum í samvinnu við aðra iðn- og verkmenntaskóla. Verðlaunin afhenti Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
  • Menntaskóli Borgarfjarðar hlaut hvatningarverðlaunin, fyrir framsækna endurskoðun á námskrá. Verðlaunin afhenti Gerður Kristný , rithöfundur og skáld. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
  • Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
Fréttir | 03. nóv. 2022

Íslensku menntaverðlaunin 2022

Forseti afhendir íslensku menntaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Markmið verðlaunanna er sem fyrr að vekja athygli á og hefja til vegs í samfélaginu það metnaðarfulla og vandaða starf sem unnið er með börnum og ungmennum á öllum skólastigum. Verðlaunaathöfninni var sjónvarpað af RÚV og má sjá útsendinguna hér.

Verðlaunin voru veitt í fjórum flokkum, auk hvatningarverðlauna:

Verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur hlýtur Leikskólinn Rauðhóll í Reykavík fyrir fagmennsku og gæði í leikskólastarfi og öflugt þróunarstarf.

Verðlaun sem framúrskarandi kennari hlýtur Elísabet Ragnarsdóttir leikskólakennari og aðstoðarleikskólastjóri við leikskólann Heiðarborg í Reykjavík fyrir einstaka fagmennsku við leikskólakennslu.

Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni hlýtur þróunarverkefnið Átthagafræði í Grunnskóla Snæfellsbæjar en það beinist að því að efla jákvæð og virk tengsl skóla og samfélags, þekkingu nemenda á heimabyggð sinni og auka fjölbreytni í námi.

Verðlaun fyrir framúrskarandi iðn- eða verkmenntun fær Tækniskólinn fyrir átaksverkefnið #kvennastarf sem unnið hefur verið á hans vegum í samvinnu við aðra iðn- og verkmenntaskóla og beinst hefur að því að vekja athygli á fjölbreyttum störfum í iðn-, tækni- og verkgreinum og benda á þann kynjamun sem hefur viðgengist í sumum starfsstéttum.

Hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2022 hlýtur Menntaskóli Borgarfjarðar fyrir framsækna endurskoðun á námskrá með það að leiðarljósi að búa nemendur sem best undir áskoranir í lífi og starfi í nútíð og framtíð.

 

Facebook-pistill forseta um Íslensku menntaverðlaunin 2022.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar