• Ljósmyndir: Ole Berg-Rusten / NTB
  • Ljósmyndir: Ole Berg-Rusten / NTB
Fréttir | 20. okt. 2023

Forseti og Noregskonungur

Haraldur Noregskonungur tekur á móti forseta Íslands í konungshöllinni í Osló. Rætt var um heimsókn forseta til Noregs í tilefni af aldarafmæli Íslendingafélagsins í Osló og nágrenni. Einnig var rætt um traust samskipti Íslands og Noregs í áranna rás. Forseti færði konungi að gjöf nýtt rit um samstarf Norðmanna og Íslendinga á sviði skógræktar.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar