Fréttapistill | 04. jan. 2024

Laufey Lín fær Bjartsýnisverðlaunin

Mér hlotnaðist sá heiður að afhenda tónlistarkonunni Laufeyju Lín Jónsdóttur Bjartsýnisverðlaunin í gær. Sá snillingur hefur skotist upp á stjörnuhimininn vegna hæfileika sinna og þokka. Forseti Íslands hefur verið verndari Bjartsýnisverðlaunanna frá upphafi, en þau voru fyrst veitt í tíð forvera míns, Vigdísar Finnbogadóttur, árið 1981. Verðlaunahafarnir eru því orðnir 43 talsins, allt íslenskir listamenn sem hafa veitt okkur gleði og innblástur. Laufey Lín er vandvirk og metnaðarfull en hlý um leið. Í því liggur galdur hennar. Aftur til hamingju!

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta 4. janúar 2024.

  • Laufey Lín flutti tónlist sína fyrir gesti á Kjarvalssstöðum eftir að hafa tekið við Bjartsýnisverðlaununum 2024. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
  • Laufey Lín Jónsdóttir er handahafi Bjartsýnisverðlaunanna 2024, en þau voru afhent við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
  • Laufey Lín Jónsdóttir ásamt dómnefnd og nokkrum af handhöfum Bjartsýnisverðlaunanna frá fyrri árum. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar